Vikan - 11.06.1992, Síða 55
„Nei, í rauninni ekki. Þaö
má heita aö ég hafi leyst þaö
upp. Ég hef einfaldað mitt hlut-
verk í þessu fyrirtæki til muna,
tek minni ábyrgð á framleiðslu
þess og hef gert það verulega
minna en þaö var. Fyrirtækið
framleiðir sárafáar myndir sem
ég leik í. Ég naut satt best að
segja mjög lítils I sambandi
við þetta fyrirtæki og ég held
að ég hafi aðeins verið að
breiða meira úr mér en ég
hafði ánægju af.“
HÉLT AÐ NEKTIN GERÐI
MYNDINA ÁHUGA-
VERÐARI
Þú hefur talað um að þú vildir
leika í mynd þar sem komið
væri við tilfinningalíf fólks og
meðal annars þess vegna haf-
irðu farið út í Basic Instinct.
Heldurðu að það hefði ekki
verið hægt án þess að svona
mikið sæist af líkamanum?
„Jú, að sjálfsögðu. Ég hef
gert svipaða hluti áður, eins og
til dæmis í myndinni Shining
Through. Þannig mynd er bara
ekki í anda Pauls Verhoeven.
Maður er allan tímann með
Paul algerlega uppi í andlitinu
þannig að það er ekki hægt að
beita neinum undanbrögðum,
fyrir utan að ég hélt sjálfur að
myndin vekti meiri áhuga, yrði
dramatískari og meira æsandi
ef meira sæist!"
Heldurðu að þessi mynd
hefði verið gerð ef þú hefðir
ekki leikið í henni? Þú ert tví-
mælalaust í lykilhlutverki
hennar, svo ekki sé meira
sagt.
„Já, því ekki? Fyrst þeir
borguðu alla þessa peninga
bara fyrir handritið er augljóst
að þeir hafa séð marga mögu-
leika á að gera úr því góða
mynd, í hvaða stærð sem hún
hefði svo sem verið. Hún er til
dæmis toppurinn á ísjakanum
hvað starfsferil Pauls varðar
og ég er upp að eyrum alla
myndina.
Ég yrði samt fyrstur manna
til að viðurkenna að það finn-
ast alltaf að meðaltali í kring-
um fimm leikarar sem geta
leikið hvert hlutverk. Ég get
líka sagt þér að samt sem
áður segja margir leikarar að
hefðu þeir ekki leikið hlutverk-
ið hefði velgengni myndarinn-
ar, sem þeir léku í, ekki orðiö
eins og hún varð. Það er bara
ekki sannleikanum sam-
kvæmt!"
Hvers vegna hefurðu í síö-
ustu myndunum alltaf valist til
að leika persónur sem áhorf-
andinn hefur litla samúð með?
Er það tilfellið að leikstjórar
velji þig til að vonast eftir að fá
örlítið meiri samúð með per-
sónunni, þar sem þú ert eins
og þú ert?
„Þessi hlutverk eru minn
valkostur. Ég er almennt heill-
aður af baráttu hins góða og
illa, bæði uppbyggjandi hlið
mannsins, grundvallareðlinu
og villidýrinu sem býr innra
með okkur öllum. Ég held að
allt þetta komi fram af og til í
öllum mönnum, hvort sem er í
reiði eða einhverju öðru sálar-
ástandi.
Mig langaði mikið til að leika
gamaldags hetju og prófaði
það í Shining Through. Ég fór
þá að líta yfir leiklistarferil
minn og sagði eins og þú: Guð
minn góður. Þetta eru allt ein-
hverjar skuggapersónur sem
ég hef verið að leika. Málið er
bara það að mér líkaði það.
Líttu bara á myndina War of
the Roses. Það var frábær
mynd, gott handrit og myndin
var sjúk. Fólki líkaði hún og ég
var á vissan hátt undrandi."
Hvert er óskahlutverkið
núna?
„Ég hef leikið í um það bil
þremur kvikmyndum á ári.
Síðastliðið ár eru það Shining
Through, Basic Instinct og svo
Falling Down sem ég er að
leika í núna og verður líklega
frumsýnd í lok ársins, þannig
að ég er aö hugsa um að taka
mér svolítið frí, alla vega eitt
og hálft ár. Fyrst ætla ég þó að
klára mynd sem ég er að vinna
með föður mínum og er ég
með krosslagða fingur í sam-
bandi við það. Handritið verð-
ur tilbúið í lok júní þannig að
við skulum bara sjá til.“
Hvert verður nafnið á þeirri
mynd?
„Hmm!“ segir Douglas og er
ekki viss um hvort hann eigi að
gefa nafnið upp, segir síðan:
„Það verður High Wire.“
LANGT SÍÐAN HANN
HEFUR KOMIÐ TIL
ÍSLANDS
Hvernig var þetta með söguna
um að þú hafir nefbrotið Paul
Verhoeven?
„Paul átti í einhverjum
læknisfræðilegum vanda með
nefið á sér sem betra væri fyrir
þig að spyrja hann um. Það er
af og frá að ég hafi slegið hann
eða eitthvað ámóta. Ég veit
ekki hvaðan þessi sögusögn
kemur. Okkar samband var
allan tímann mjög gott. Við átt-
um að sjálfsögðu okkar rök-
ræður og hann var eins og
gefur að skilja undir miklu
álagi en okkur samdi alltaf vel.
Það kom þó stundum fyrir að
^ BILA
06 VEISLUSALI
Gefið meðgöngunni
sumarlegan blæ í fatnaði
frá okkur
Fis-létt
Grettisgötu 6
Sími 626870
VILTU GIF
Blómastofa
FriÖfinns
Suðurlandsbraut 10
Sími31099
✓
_
12. TBL, 1992 VIKAN 55