Vikan


Vikan - 11.06.1992, Síða 60

Vikan - 11.06.1992, Síða 60
TEXTI: CHRISTOF WEHMEIER ALÞJÓÐLEGAR FRÉTTIR A F KVIKMYNDAIÐNAÐINUM legt aö vera lesbíur. Myndin þykir svæsin og hörkuleg, mik- iö um heit ástaratriöi, sérstak- lega þegar Michael Douglas og Sharon Stone eru að njót- ast af miklum hita og æsingi. í Bandaríkjunum er myndin bönnuð innan 17. Bandaríkjamenn hafa búið til tvær útgáfur af Basic Instinct, evróþska útgáfu sem þykir djarfari og svo amerísku útgáfuna sem er meira klippt. Myndin þykir frökk, æsandi og æsispennandi. Michael Dougl- as segir sjálfur að þetta sé safaríkasta hlutverk sitt og láir það honum enginn. Myndin er sýnd í Regnboganum. ALLT GETUR GERST ÞEGAR VERIÐ ER AÐ GERA KVIKMYND I myndinni Batman Returns, sem verður án efa geysivinsæl og eftirsótt í sumar, leikur kynngimagnað leikaralið. Má nefna Michelle Pfeiffer sem átti eftirminnilegan leik í Frankie & Johnny, Christoph- er Walken (King of New York, Dead Zone), Pee Wee Her- man og Danny DeVito. Svo er þar auðvitað leðurblöku- maðurinn sjálfur, Michael Keaton. ◄ Sam- kynhneigð- ir morðingj- ar í myndinni Basic Instinct. V Leður- blökumað- urinn er kominn aftur i Batman Returns. Við gerö myndarinnar urðu Michelle Pfeiffer og Michael Keaton rómantíkinni að bráð. Slíkt er raunar ekkert einstakt dæmi og þannig fór fyrir Ann- ette Bening og Warren Beatty þegar þau unnu við tökur á myndinni Bugsy árið 1990. Þau létu líka gefa sig saman á tökustaðnum sjálfum í Las Vegas. í myndinni Batman Returns leikur Michelle Pfeiffer Kattar- konuna og er hún því fjand- maður Batmans. Danny De- Vito leikur Mörgæsina og Christopher Walken leikur ósvífinn glæpaforingja. Mynd- in verður sýnd í SAM-bíóun- um í sumar. ANTHONY HOPKINS í RÓLEGU HLUTVERKl Nýjasta kvikmynd Anthony Hopkins heitir Howards End og er framleidd af Merchant Ivory teyminu. í myndinni leika auk hans Emma Thompson (Dead Again, Henry V), Helena Bonham Carter (Hamlet, A Room with a View) og Vanessa Red- grave. Myndin gerist í byrjun 20. aldar og fjallar um íhalds- sama fjölskyldu sem síðan splundrast þegar ein dóttirin lendir í leynilegu ástarsam- bandi. Myndin þykir snilldar- lega vel tekin og leikin. Þetta er dramatísk mynd eins og þær gerast bestar. NÝTT OG SJÁLFSTÆTT KVIKMYNDAFYRIRTÆ Kl SEM HEITIR CONTINENTAL Continental Film Group heit- ir þetta sjálfstæða kvikmynda- fyrirtæki fullu nafni og er í Cleveland í Ohio en ekki í New York né Hollywood. Furðuleg staðsetning, ekki satt? Áform þessa fyrirtækis þetta árið eru mikil. Til stendur að framleiða myndina Gunga Din sem byggð er á skáldsögu Rudyard Kipling. Þess má geta að fyrsta myndin um ævintýri Gunga Din var gerð árið 1939 og var með sígildum leikurum eins og Cary Grant, Douglas Fairbanks Jr og Joan Fontaine. Nýja myndin um Gunga Din mun aðeins kosta 50 milljónir Bandaríkja- dala og meðal leikara eru Ben Kingsley (Bugsy, Gandhi), Art Malik (Living Daylights), Charles Dance (Golden Child) og John Malkovich (Object of Beauty, Sheltering Sky). Myndin um Gunga Din ger- ist á nýlendutímabilinu á Ind- landi á 19. öld. Tökur munu hefjast í september í Kákas- usfjöllum, nálægt lýðveldinu Georgíu. Fyrir utan þessa stórmynd ætlar Continental fyrirtækið að framleiða aðrar myndir en ódýrari. Ein þeirra er Golden Anthony Hopkins í rólegri mynd sem heitir Howards End. Þessi kvikmyndaþáttur veröur með öðruvísi sniði en oft áður. Hér á eftir verður ekki eingöngu fjall- að um væntanlegar kvikmynd- ir heldur verður líka fjallað um ýmsa þætti hins alþjóðlega kvikmyndaiðnaðar, svo sem hvernig kvikmyndafyrirtækjum reiðir af um þessar mundir, tíðindi af leikurum og svo auð- vitað kvikmyndum. Þetta verð- ur sterkblandaður kvikmynda- þáttur með krassandi fréttum úr kvikmyndaiðnaðinum. Við skulum hefjast handa. HEITASTA OG DJARF- ASTA MYND ÁRSINS Hollendinginn Paul Verho- even þarf varla að kynna. Hann gerði meðal annars myndirnar Robocop 1 og Tot- al Recall sem þóttu kraftmikl- ar, með ívafi af kynlífi og of- beldi. Nú bætir hann um betur með mjög umtalaðri mynd, Basic Instinct. í henni leika Michael Douglas (Black Rain, Shining Through, Wall Street) og Sharon Stone (Year of the Gun, Total Recall). Michael Douglas leik- ur skotglaðan lögregluforingja í San Francisco sem tekur að sér að rannsaka dularfullt morðmál. Myndin hefst á morði á vinsælli rokkstjörnu og þrjár konur liggja undir grun. Allar þrjár eiga það sameigin- 60 VIKAN 12. TBL.1992
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.