Vikan


Vikan - 11.06.1992, Page 68

Vikan - 11.06.1992, Page 68
SÁLIN OG PÉTUR KRISTJÁNSSON í GÓÐU GEIMI ‘TGtðáccUtuf' Nú er nýútkominn geisladiskurinn Garg meö Sálinni hans Jóns míns og inniheldur öll gömlu lögin Sálarinnar af hinum og þessum safnplötum frá Steinum. Gömlu lögin eru öll endurhljóðblönduð og hefur það verulega mikið að segja um lokaútkomuna. Þrjú glæný lög eru á disknum; Krókurinn, Só- dóma sem er úr samnefndri kvikmynd og ball- aðan Hjá þér. Sálin hans Jóns mins ætlar alls ekki að sitja auðum höndum í sumar, þeir félagar eru búnir að bóka sig um hverja ein- ustu helgi og um verslunarmannahelgina verða þeir í Eyjum að leika fyrir dansi á þjóð- hátíð. Þessa dagana er verið að leggja lokahönd á myndband við Krókinn, eitt laganna á Gargi. Það er Júlíus Kemp sem leikstýrir myndband- inu en hann fékk verðlaun RÚV fyrir tónlistar- myndband með Todmobile um síðustu ára- mót. Myndbandið mun verða í öndvegi á vídeó- spólu sem Steinar gefa út með afurðum sveit- arinnar. Þetta verður í fyrsta skipti sem gefin er út myndbandsspóla með íslenskri hljómsveit. Krókurinn er þegar farinn að heyrast á öldum Ijósvakans en margir hafa velt fyrir sér hvernig textinn sé. Þeir sem hafa reynt að skilja eitt- hvað í honum hafa án efa flestir gefist fljótlega upp. Það skal upplýst hér og nú að textinn er byggður á frösum og hendingum sem leikið hafa um fagurlega skapaðar varir Péturs Kristj- ánssonar undangengna áratugi hans í popp- bransa íslensku þjóðarinnar. Vel er því við hæfi að Pétur er gestasöngvari Sálarinnar í þessu lagi. Og héreru þeir Jens Hansson, Friðrik Sturluson og Atli Örvarsson komnir fyrir framan suðandi vélina hjá Jóni Karli. Maria Ólafsdóttlr fatahönnuður reynir að ná lyftingu í hár Stefáns Hilmarssonar. Stefán er höfundur texta Króksins og samdi lagið i kompaníi við Guðmund Jónsson gítarleikara. Til að lesendur geti glöggvað sig á textanum birtir Vikan hann hér í heild og lauslega þýð- ingu á hluta hans. Afgang textans verða frómir lesendur að ráða í sjálfir. Komdu nú með gamla Guðstein út á kantinn. Gamli Dwellinn skýtur á sig grimmu skoti. Það er ekki nokkur spuming að hún er til deildar þessi Svanfríður, þessi svan, svan fríður. Gamli var í hnokara hér áður fyrr I old-days; eftir að hafa lent í alveg sjúku gargi. Hey gamli swingur vertu klár í gamla „hook- inn“. Skjóttu, skjóttu - Oaww! Skjóttu! Stefán biður Pétur að „skjóta" og Pétur undirbýr „skotið“ íklæddur átján grýlna jakkanum. Jón Karl Helgason kvikmyndatökumaður lagar förðunina á Atla Örvarssyni. Jón Karl er kvikmyndatökumaður en hóf feril sinn í kvik- myndabransanum sem ferðill (nýtt íslenskt orð fyrir karlkyns farðara). Það var Lína Rut sem sá um að farða hljómsveitina. Krókurinn hér. Hvar og hvenær sem er ég er kominn I gamla formið. Hvernig sem fer, - ekki stendur á mér. Skiptir engu með gamla normið. Þett'er allavega átján grýlna jakki, ef ekki þá að minnsta kosti svona sautján. OOh, þvílíkan „thunderwagon" hef ég aldrei áður séð, „ Wildarinn" tekinn líka „Later on“ og sjúkheit. Haffari eða klukkari með gömlu. Blöðruskapur, Emmarínn, Ystarinn Oaww! Þett'er nú fyrir löngu orðið algjört Cerwin. Já komdu með Hookinn gamli swingur -Skjóttu! Krókurinn hér hvar og hvenær sem er. Ég er kominn í gamla gargið. Ég „kúarann" ber, - ekki stendur á mér. Skiptir engu með aukaargið. ORÐASKÝRINGAR: Átján grýlna jakki: Svo flottur jakki að á hann má veiða í það minnsta átján hjá6væfur. Gæði klæðnaðar eru mæld í grýlufjölda sem má veiða á hann. Thunderwagon: Undirvagn, botn, stór og mik- ill rass. Wildarlnn: Lagið Wild Thing sem Pétur Kristj- ánsson syngur manna best. Later on: Lagið Seinna meir sem Pétur Kristj- ánsson söng á árum áður. Sjúkheit: Eitthvað sjúklega flott, gott eða skemmtilegt o.s.frv. Afganginn af textanum verður fólk að ráða í sjálft, engar orðabækur geta orðið að liði nema persónuleg slangurorðabók Péturs Kristjáns- sonar, sem ekki hefur enn komið út. 68 VIKAN 12. TBL.1992

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.