Vikan


Vikan - 11.06.1992, Page 81

Vikan - 11.06.1992, Page 81
Beautifying TWatxievt FouMvvnos' FOKD Dt TtlVr SUMiMAIEUR v Nivea-lípósómkremin ei ung sem byggir á nýjustu rannsóknum í húðfræði. Fyrir- myndin að hárfínum fituefna- samböndum þeirra er sótt til sjálfrar húðarinnar. Þau þrengja sér inn í innstu lögin og endurnæra hana innan frá. Þannig verst húðin öldrun á virkan hátt. Áferð þessara nýju lípósómkrema er í senn mjúk og létt og notkun þeirra veldur vellfðan. NIVEA CREME JEUNESSE aux LIPOSOMES er virkt og nærandi dagkrem. Það tefur fyrir öldrun og byggir húðina upp innan frá á þrenns konar hátt. Það örvar virkni húðar- innar og gefur langvarandi raka og vernd gegn utanað- komandi áhrifum. Dagkremið smýgur inn í húðina án þess að skilja eftir feitt lag. Húðin verður frískleg og viðheldur lit sínum og æskublóma. Efnasamsetningin á NIVEA LIPOSOME-gelinu er sérstak- lega ætluð til að koma í veg fyrir hrukkumyndun og þornun á hinni viðkvæmu húð í kring- um augun. Gelið verndar húð- ina og örvar virkni hennar. Efnasamsetningin gerir það að verkum að það fer fljótt inn í húðvefinn og hlífir honum við áhrifum augnfarða. JUVENA JUVENA CLEANSER/LOTION COLLECTION HÚDHREINSILÍNAN FRÁ JUVENA Svissneska snyrtivörufyrirtæk- ið Juvena hefur nú sett á markaðinn nýja hreinsilínu, Cleanser, Lotion Collection, sem gerir konum auðveldara fyrir við daglega umönnun húðarinnar. Juvena-hreinsilínan er sögð henta öllum gerðum húðar - hún sé einkar mild og skili mjög góðum árangri. Gentle Cleansing Milk (hreinsimjólk): viðheldur nátt- úrulegu rakastigi húðarinnar. Fyrir venjulega og þurra húð. Rich Cleansing Cream (hreinsikrem): mýkir húðina og jafnar. Fyrir mjög þurra, við- kvæma og erta húð. Soft Lotion (andlitsvatn án vínanda): frískar og endurlífg- ar húðina og viðheldur raka- stigi hennar. Fyrir allar gerðir húöar. Active Lotion (andlitsvatn með vínanda): frískar húðina og hefur auk þess sótthreins- andi áhrif á svitaholur. Fyrir feita og óhreina/blandaða húð. Nýja hreinsilínan frá Juvena er í snyrtilegum umbúðum og umhverfisvænum - því að öll- um ytri pakkningum er sleppt. ZANCASTER SÓLARVÖRN FRÁ LANCASTER Á íslenskan sumarmarkað eru nú komnar nýjar vörur frá LANCASTER - OIL-SUN LOTION (hlífðarstuðull 6), sól- arolía sem ver húðina fyrir bruna, og OIL-FREE BRONZ- ING GEL (hlífðarstuðull 4), ætlað húð sem þegar er orðin brún. Þessar fitulausu sólarvörur henta hvers konar húð, bæði í andliti og á líkama. Þær veita góða vörn gegn sólbruna, gefa húðinni raka og koma í veg fyrir ofþornun og flögnun. Þær flýta jafnframt fyrir þvi að húð- in verði brún, kæla og hressa hörundið í heitu sólskininu. Framleiðandinn segir krem þessi tilvalin fyrir þá sem vilja létt og fitulaus krem, til dæmis íþróttafólk og karlmenn með mikinn hárvöxt. í öllum sólarvörum frá Lanc- aster er brúnkuhvatinn „heliot- an“ sem sagður er þrefalda brúnkumyndun húðarinnar. MEÐFERÐARFARÐI frá Helenu Rubenstein Nú hefur Helena Rubenstein komið með nýjan meðferðar- farða á markaðinn og nefnir hann SUBLIMESCENCE. Hann er sagður gefa húðinni rlkulegan raka og næringu auk þess sem hann gefi fallega áferð. ( farða þessum er að finna hina svokölluðu Hydroceram- ide-efnasamsetningu sem mun ekki vera notuð af öðrum framleiðendum en Helenu Rubenstein en hún ákveður ákjósanlegt rakastig húöarinn- ar. Farðinn inniheldur jafn- framt E-vítamín sem vinnur gegn áhrifum sindurefna I húðinni, sem er varin fyrir skaðlegum áhrifum sólarljóss- ins. Mjög auðvelt er að dreifa úr Sublimescence-farðanum, hann fellur vel að húðinni og þekur vel og lengi. Haþn inni- heldur aðeins hágæða olíur sem næra og mýkja húðina. Sublimescence er ætlaður fyr- ir venjulega húð sem þurra og jafnvel mjög þurra. HELENA Rubinstein SUBLIMESCENCE e40 ml HELENARUBINSrEiN SUBLlMF<;rcK,„„ VIKAN 81

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.