Vikan


Vikan - 09.07.1992, Side 13

Vikan - 09.07.1992, Side 13
 _ ◄ Snæfells- nes er I heild sinnl unaðs- reitur. Þar finna allir eitthvað við sitt hæfi. Lika þær Steinunn María (t.v.) og Irena Ósk sem gáfu færi á sér að Búðum, en aðeins eina mynd. Þá ruku þær. A Hér búa riturnar í „blokkinni" sinni. Á Arn- arstapa. Og Stapáfellið hefur góðar gæturá varp- inu sem hlýt- ur verðskuld- aða athygli mannfólks- ins. •< Sólsetrið er tignarlegt, alveg i anda nessins og mistrið gefur fjöllunum dulrænt yfir- bragð. ► Löngu- fjörur i stafa- logni. En sjórinn lætur eins og í hávaðaroki. Þannig eykur brimið enn frekar á upp- lifunina á ströndinni. Skyldi engan undra þó reiðtúrar eftir henni séu vinsæl skemmtun. ► Sandurinn i Löngufjörum ergulur, svolít- ið sólarlanda- legur, og upp úr honum gægjast tindar fjalla sem graf- in eru í sandinn. Líkt og í blokk liggja riturnar allar eins og úti á svölum í sólbaöi. Yfir öllu gnæfir Stapafellið og viröist fylgjast meö því að allt fari nú vel fram. Enda ekki vanþörf á, ein veigamesta perla íslenskrar náttúru er í húfi. Arnarstapi. Og þar er líka Gatklettur, hraun- drangi nefndur í höfuö sjálfum sér, götóttum. Svolítið vestar er sandfjara sem heitir Djúpa- lónssandur. Þar hvílir breskur togari ryöguö bein og gefur ókunnugum endalaus tilefni til vangaveltna um dapurleg örlög og hugsanlegt útlit fleysins meöan þaö klauf öldurnar, hvít- freyöandi. Endalaus sjónarhorn alls staöar, endalaust myndefni. Glæsilegt nes, Snæfells- nes. Filmurnar hreinlega æddu í gegnum mynda- vélina svo vart varö viö ráöið. Engu likara en aö jökullinn hafi fyllt vélina einhverjum fítons- krafti. Og alls staðar getur maður gleymt sér. Það er ævintýri milli fjalls og fjöru, á fjalli og í fjöru, úti á sjó, í eyjum, úti um allt. Ævintýraferö meö Eyjaferðum út á Breiöafjörö. Alls kyns kræsingar á hörpudiskum, úr ígulkerjum og krabbar. Beint af lager, sagöi einhver. Mjög þokkaleg gisting i Görðum með útsýni yfir Löngufjörur og kóngurinn á Nesinu, Snæfells- jökull, breiðir úr sér. Meö bungurnar tvær eins og demanta í kórónunni, tilkomumikill og kynngimagnaður aö sögn. Uppi á honum er is- lenska skíðalandsliðið aö renna sér. Og safna orku, eflaust. Snæfellsnes skartar fleiru en náttúrufegurö. Þar er að finna matreiðslumenn á heimsvisu. Þrátt fyrir aö vöövinn úr hörpudiskinum og hrognin úr ígulkerinu bragðist ágætlega beint

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.