Vikan


Vikan - 09.07.1992, Síða 27

Vikan - 09.07.1992, Síða 27
vera búinn meö hana í júlí. „Hún er aö hluta til byggð á barnasögunni Palli var einn í heiminum,“ segir Einar sem jafnframt því aö leikstýra myndinni fer meö eitt af aðal- hiutverkunum. „Þetta veröur stuttmynd um þaö þegar Palli er orðinn fulloröinn og á konu og börn.“ Viö ræöum svo ekki frekar um þaö. Hvaö skyldi hins vegar ís- lenskur kvikmyndagerðarnemi ætla aö gera þegar skólanum sleppir? „Ég fer heim að vinna fyrir skuldum," segir Einar meö bros á vör og virðist nokk- uö laus við að pirra sig á fjár- hagsstöðunni eftir rándýrt nám. „Við Paul stefnum síðan aö því aö fara að vinna saman. Viö höfum unniö saman viö allar myndir sem við höfum gert frá því að viö byrjuðum í skólanum og okkur langar aö„ halda því samstarfi áfram. Þaö er mjög þægilegt þegar menn eiga sameiginlega sýn aö vinna saman. Einar segist stefna aö vinnu í kvikmyndaiðnaðinum erlend- is frekar en á íslandi til að byrja meö. „Ég held aö þaö sé mjög hollt og gott af því aö þetta er svo alþjóðlegur miðill aö prófa aö vinna viö hann er- lendis." Einar telur þó að ís- lendingar hafi miklu meiri tæki- færi heldur en fólk í Bretlandi og Evrópu, alla vega miðað viö þessa frægu höfðatölu. „íslendingar geta vel komið sér á framfæri með kvikmynd- um sem unnar eru heima. Börn náttúrunnar eru dæmi um þaö.“ Einar segir aö fram- lög til kvikmyndasjóðs megi þó að ósekju margfalda. „Þaö skiptir máli aö peningum sé varið í að fá ungt fólk snemma inn í listgreinina. Ungtfólk hef- ur aöra sýn og öðruvísi hug- myndir um heiminn, með fullri viröingu fyrir þeim sem eldri eru.“ HANDRIT í VINNSLU Einar er þekktur meðal vina og Einar ásamt Regínu upptekinni viö kinnslátt. ínu.“ Einar fékk síöan lánaöa spólu meö upptökum af tónlist sem búksláttarflokkurinn hefur veriö aö vinna aö fyrir plötuút- gáfu. „Þaö hentaöi mjög vel aö nota einmitt þessa tónlist," segir Einar um leið og hann viöurkennir aö handritið hafi orðiö betra fyrir vikið. „Ég var líka svo heppinn aö finna leikara sem voru tilvaldir í hlutverkin." Einar segir þó að búksláttur hafi ekki veriö sér- grein leikaranna og reyndar hafi þeir ekkert vitað hvað var á feröinni. „Þau höföu hins vegar verið aö fást við ámóta pælingar um hvernig brjóta má samskiptamúra og voru bæði leið á þvi aö þurfa aö tala mjög mikið þannig aö þetta voru óskahlutverk og okkur tókst mjög vel aö vinna saman. Ég er mjög hrifinn af alls konar hljóöum og hef gaman af að eiga viö þau. Það var því skemmtileg reynsla aö vinna þessa mynd. Þetta var oft á tíðum mikill spuni, við vorum aö prófa okkur áfram og þaö var mjög skemmtilegt." BESTA MYNDIN Regína var valin besta fimmtu annar myndin í The Internat- ional Film School þarsem Ein- ar hefur lagt stund á kvik- myndagerðarnám undanfarin tvö ár. í kjölfarið var myndin sýnd á árlegri skólasýningu í apríl. Þar er fólki úr kvik- myndaiðnaðinum boðið að koma og kynna sér markverð- ustu myndirnar sem framleidd- ar eru í skólanum á hverju ári. Þetta hefur ekki aöeins viöurkenningu í för meö sér heldur hefur skólinn nú sam- þykkt aö veita peninga í eftir- vinnslu á myndinni og komiö henni á framfæri viö kvik- myndahátíðirog umboðsaðila. Meðal þeirra sem sýnt hafa myndinni áhuga er Grenada- fyrirtækið. Ef af kaupum yröi myndi þaö veröa til þess aö Regína yrði sýnd á Channel 4 í Bretlandi. Þar fyrir utan er myndin skráö á Haugesunds- kvikmyndahátíðina í sumar, á kvikmyndahátíð á Kúbu i des- ember og mjög líklegt er að hún veröi sýnd á Nordisk Pan- orama í Finnlandi. Paul, sem er nemandi viö sama skóla og Einar og var framkvæmdastjóri viö gerö Regínu, segir aö í tengslum viö Haugesunds-hátíðina veröi myndin kynnt norska sjónvarpinu og boöin til sölu. Síöan hafi British Council líka óskaö eftir eintaki af myndinni sem geti haft í för meö sér frekari dreifingarmöguleika. Þaö er því Ijóst aö Regína mun gera víðreist seinni hluta þessa árs. PALLI VAR EINN f HEIMINUM Einar vinnur nú aö útskriftar- myndinni sinni og ætlar aö samstarfsmanna fyrir að vera frumlegur og hugmyndaríkur, meö mikla hæfileika til að sjá hversdagsleikann frá skop- legu sjónarhorni. Þaö kemur því ekki á óvart aö hann sé búinn aö gera drög aö kvik- mynd í fullri lengd. „Þaö er bara spurning um aö fá aö- stööu til aö vinna hana,“ segir hann og bætir viö aö hann eigi orðiö á milli tíu og tuttugu hug- myndir. Eftir þráláta forvitni blaðamanns um hvað sé í bí- gerö upplýsir hann aö upp- áhaldshugmyndin hans, sem hann sé þegar byrjaöur á handriti aö, sé byggð á sögu Gísla á Uppsölum og kynnum hans af nýjum heimi. „Þaö veröa á sinn hátt pælingar um samskiptaform líka, hvernig þessi gamli maður, sem var búinn aö einangra sig í afdal, var hættur aö tala almennilega og farinn aö jarma eitthvert undarlegt afbrigði af tungu- málinu. Fyrst og fremst mun myndin þó fjalla um hvernig Gísli sá íslendinga hugsan- lega, hvernig hann var kynntur fyrir þjóöinni og hver örlög hans urðu.“ □ Búkslátt- armeistar- inn Diddi fiöla á fullri ferð. Einar ásamt samstarfs- mönnum sínum við upptökur. VIKAN 27

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.