Vikan


Vikan - 09.07.1992, Page 38

Vikan - 09.07.1992, Page 38
UOSMYNDASAMKEPPNI VIKUNNAR OG VERÐLAUN KOMA FRA STÆRSTA MYNDAVÉLAFRAMLEIÐANDA JAPANS má sumrinu hér á landi; börnum aö leik, landslagi, tjaldútilegu, stangveiði, golfleik eða öðrum íþróttaleik, rigningardegi, sól- skinsdegi, fólki í fríi, vinnandi fólki, beljum á beit, heyskap eða hverju öðru sem fyrir linsu ber. VERÐLAUNIN Aðalverðlaunin eru FUJI DL 3000 myndavél að verðmæti kr. 33.000, Reflekta skyggnusýning- arvél með sýningartjaldi samtals að verðmæti kr. 30.000, Cullman myndavélataska, Cullman þrífót- ur, 10 Fuji filmur fyrir pappír, 10 Fujichrome litskyggnufilmur og áskrift að Vikunni í eitt ár. Sam- tals er andvirði aðalvinnings kr. 104.120. Auk þess verða veitt aukaverð- laun, samtals að verðmæti kr. 125.500. Er þar um að ræða 10 Fuji FZ-5 myndavélar og 10 Fuji DL-8 myndavélar. Og ekki má heldur gleyma 100 Fuji Quick- snap einnota myndavélunum sem gefnar verða snjöllum þátt- takendum Ijósmyndasamkeppn- innar. KEPPNISREGLURNAR Þátttökurétt eiga allir áhuga- Ijósmyndarar með íslenskan ríkisborgararétt. Aðeins koma til álita myndir sem teknar eru á ís- landi. Myndum má skila inn hvort heldur er á pappír eða litskyggn- um. Allar myndir skulu merktar með dulnefni og skal fylgja umslag, merkt dulnefninu, sem inniheldur nafn Ijósmyndarans, síma og heimilisfang. Vikan áskil- ur sér rétt til að birta eins mörg sýnishorn af aðsendum myndum og þurfa þykir. Myndirnar þurfa ekki aö vera frá þessu sumri. Líttu í myndasafnið, aðgættu hvort þar leynist ekki einmitt verðlauna- myndin! Skilafrestur er til 7. september, en á næstunni úthlutum við áfangaverðlaunum svo að þú skalt ekki draga það að senda myndina þína inn. Eða myndirn- ar því hver og einn má senda eins mikinn myndafjölda og hon- um líkar. Utanáskrifitin er: VIKAN FUJI, Ijósmyndasamkeppni, Ármúla 22, 108 Reykjavík. Það eru engir aukvisar sem veita verðlaunin í Ijós- myndasamkeppni Vikunn- ar og Fuji. Staðreyndin er sú að Fuji-fyrirtækið í Japan er annars vegar með 70 prósent filmu- markaðarins í Japan og er um leið í öðru sæti í öllum heiminum. Á undanförnum árum hefur fyrir- tækið verið að auka markaðshlut- deild sína í sölu hvers konar myndavéla. Nú er svo komið að Fuji-myndavélar eru þær mest seldu í Japan og hefur fyrirtækið þar með skotið þekktum merkjum Canon, Minolta, Nikon og Olymp- us aftur fyrir sig. f grein í hinu virta, bandaríska viðskiptatíma- riti, The Economist, komu upplýs- ingar þessar fram fyrir skömmu. VERTU MEÐ Ert þú búinn að senda inn Ijós- mynd í samkeppnina? Myndin þín þarf að sýna íslenskt sumar og þarf ekki endilega að vera tek- in á þessu sumri. Hún getur verið af nánast hverju því sem tengja

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.