Vikan - 12.11.1992, Blaðsíða 51
THELMA
Frh. af bls. 18
áöur. Hann tét okkur ganga hvert
fyrir sig I stórum fallegum garöi,
kafa djúpt inn í okkur og hugsa
um eitthvað sérstakt.
í kringum mig voru mörg há
tré. Ég horfi á þau á göngu minni
og fer að iíkja mér viö þau. Rætur
trjánna eru fastar í jöröinni en
sjálf hafa þau vaxiö og þroskast
og teygja ótal greinar til himins,
rétt eins og þau vilji grípa í hann
en nái honum aldrei. Þannig eig-
um viö okkur öll rætur en höfum
fariö mismunandi leiöir í lífinu.
Viö höfum vaxiö i óiíkar áttir og
eigum óiik markmiö. Viö erum
alltaf aö teygja okkur í eitthvaö í
leitinni aö lifshamingjunni, en í
raun nær hamingjan aidrei há-
marki, þvi viö náum aldrei til him-
ins fremur en trén.
Ég geng þarna í rökkrinu og
horfi niöur fyrir fætur mér; niöur á
erlenda jörö, sem ég átti ekki ræt-
ur í. Þetta var um miöjan vetur og
mér var oröið kalt á fótunum. Viö
þaö kom Skerjafjöröurinn upp í
hugann. Þetta voru sömu fæturnir
og mér hafði oröiö kalt á þegar
ég var lítil viö leik í móanum í
Skerjafiröinum. Mér fannst eins
og ég heföi aldrei yfirgefiö æsku-
stöövarnar. Kannski aöeins
skroppiö i burtu.
Ég fékk mjög sterkt á tilfinning-
una aö ég væri og yröi alla tíð
þetta barn sem fæddist á íslandi.
Þótt ég lifi ævi mína í öðru landi
verö ég aldrei annaö en litla
stúlkan foreldra minna.
Þetta var góö tilfinning og veitti
mér þá hugarró sem ég þráöi.
Þarna opnuöust augu mín fyrir
því að þótt okkur hætti til aö
gleyma uppruna okkar er hann
svo mikils viröi i lífinu öllu. Þaö
skiptir máli hvar ræturnar liggja;
hvar viö hófum vöxtinn og
þroskann.
FYRSTU KYNNI
AF FYRIRSÆTU-
HEIMINUM
Þegar ung stúlka er aö
reyna aö koma sér á
framfæri í fyrirsætuheim-
inum veröa ýmsar freistingar á
vegi hennar. Ég sá stundum stúlk-
ur falla í þær gryfjur. Ljósmyndar-
ar eöa aörir reyna stundum aö
notfæra sér barnaskap og ákafa
þeirra stúlkna sem vilja allt til
vinna aö koma sér áfram í þess-
um haröa heimi.
Eiturlyf eru eitt af því sem
margar stúlkur hafa fallið fyrir, og
sumar bíöa þess aldrei bætur.
Þegar ég var á hátindi ferils míns
var fólk aö kynnast eiturlyfjum.
Sumt af samstarfsfólki mínu
reyndist ginnkeypt fyrir þeim eins
og fleira ungt fólk. Mér fannst af-
skaplega sorglegt aö horfa upp á
efnilegt fólk í blóma lífsins ánetj-
ast eiturlyfjum uns fíknin haföi
sogið úr því lífskraftinn og jafnvel
dregið þaö til dauða. Fólk vissi
ekki hvaö þaö var aö gera og
geröi sér hreinlega ekki grein fyrir
því aö meö því að fikta viö fíkni-
efni var þaö aö leika sér að eldi.
Nú er sem betur fer meira vitað
um skaðsemi margra þessara
efna, en fjölmargir láta sér þaö þó
ekki aö kenningu verða.
Ein af vinkonum minum í París,
austurrísk fyrirsæta sem Eva hét,
ánetjaðist fíkniefnum. Viö höföum
unnið mikið saman og áttum sam-
skipti utan vinnunnar. Allt í einu
varö ég þess vör aö hún var farin
aö umgangast fólk sem mér líkaði
ekki viö.
Kvöld eitt bauð hún mér meö
sér í veislu þar sem hún sagöi
verða geysilegt fjör og skemmti-
legt fólk. Um leið og viö gengum
inn í húsið þar sem veislan var
haldin fannst mér eitthvað óþægi-
legt liggja í loftinu. Allir gestirnir
sátu á gólfinu og reyktu og létu
sérkennilega. Ég fann strax að
þetta var ekki samkvæmi viö mitt
hæfi, þótt ég áttaði mig ekki á
hvers vegna né hvaö væri um aö
vera. Ég gekk umsvifalaust til
dyra og fór heim.
Eftir þetta fjarlægðumst viö Eva
hvor aðra. Ég heyrði ekkert af
henni í eitt ár, en þá hittumst viö á
veitingastað fyrir tilviljun. Mér brá í
brún þegar ég sá hana. Líkami
hennar var allur sveittur, varalitur-
inn klesstist út fyrir varir hennar
W8
I ENWOOD Chef
er kostagripur
'' i ár^.
■ fii -mm
Grænmetisriljárn Hakkavél Safapressa
Blandari
Kartöfluflysjari
' * f * ‘ — —& ;— —?..\r ÍLl _UÍ >.y. -t. -' é . . iT « ‘' 1 r> . »n sf, %
Fáanlegir aukahlutir: Innifalið í verði: ‘‘ - .* u - Té X
□ Blandari □ Þeytari v.i
e.y ^ **'■*•. □ Grænmetisrifjárn □ Hnoðari s'*;
V •*. J □ Hakkavél □ Hrærari ■■■1 • % 'V
i-rfr □ Safapressa |H| : C' ■* •■;• .r*
HV -v. □ Kartöflufiysjari Verð Kr. 21.575. - stgr. v «*
' n'. □ o fl LAUGAVEGI 174 ’» ,* ’*•
. A • . v 4: K >* .. 4.. >.•*.■*. . k’H. V ", S. 695500/695550
v,y? v; .** : ví, Q&Ytí** ..•» * *> -'
?*■ -í* .■ - " 'öí'" m: