Vikan


Vikan - 12.11.1992, Blaðsíða 26

Vikan - 12.11.1992, Blaðsíða 26
TEXTI: HJALTIJÓN SVEINSSON / UÓSM.: BINNI þann 1. maí árið 1987. Hann kvaðst hafa samið Ijóðið með þetta tiltekna lag í huga. Maístjarnan er því ekki eins fínt Ijóð og allir halda, hún er bara dægurlagatexti. Lagið er gamall slagari, tangó sem gekk hérna á milli- stríðsárunum og kemur líklega frá Rússlandi eða Þýskalandi." TEXTINN Í HÁSÆTI „Textana kalla ég sparitexta vegna þess að ég hef haldið þeim fyrir mig og ekki tímt að leggja þá einhverjum öðrum í munn, líklega hefur mér þótt þeir liggja eitthvað nær mér en aðrir textar sem ég hef gert. Ég hef reynt að vanda mig og ekki síður við þýðingarnar sem ég hef leitast við að hafa sem allra næst upp- runanum." Tónlistin er með ýmsu móti að sögn Aðal- steins, eins og djass, tangó og blús. Hann vill samt í stórum dráttum flokka hana sem vísnatónlist. „Ástæðan er sú að við leggjum höfuðáherslu á textann í hverju lagi, hann er settur í hásæti. í vísnatónlist er lagið gjarnan umgjörð um textann sem er aðalatriðið og þannig er það hjá okkur.“ Alls koma átta hljóðfæraleikarar við sögu en það eru einkum þrír sem mest mæðir á, Þórir Baldursson sem spilar á píanó og útset- ur öll lögin, Tómas R. Einarsson sem leikur á kontrabassa og slagverksleikarinn Pétur Grét- arsson. NÆTURBLÚS UM NÁNAST ALLT OG EKKI NEITT Næturloft og nýkviknað tungl, á næstu grösum enginn sjáanlegur. Ég flækist um og fagna því að framundan er langur vegur. Mitt líf er einsog hálfbyggt hús, - ég held áfram að syngja blús. Tregablandinn tónn á vörum mér, í takti sem er löngu viðurkenndur, og veröldin er vingjarnleg. Ég veit ekki hvernig á því stendur. Mitt líf er einsog hálfbyggt hús, - ég held áfram að syngja blús. Aðalsteinn hefur verið einn mikilvirkasti höf- undur dægurlagatexta síðustu árin og hefur skipað sér á bekk með öndvegishöfundum þeirrar bókmenntagreinar. Hann hefur til dæmis átt texta við nokkur vinsælustu lögin úr sönglagakeppni sjónvarpsstöðvanna, Evró- visjón. „Ég ætlaði ekki að vera með í fyrra en svo æxlaðist að einn texta minna fylgdi lagi í keppninni. Ég ætla aftur á móti að taka mér frí frá keppninni um sinn þó hún hafi vissulega verið ákveðin lyftistöng fyrir mig sem textahöf- und. Mörg laganna hafa náð vinsældum og auðvitað þykir mér vænt um það. Það er ekki gott ef það eru alltaf sömu höfundar laga og texta sem þátt taka í keppninni. Við verðum að leyfa fleirum að spreyta sig. Ég hef verið að gera texta fyrir ýmsa laga- höfunda og flytjendur og þessi vinna hefur verið býsna drjúg á síðustu árum. Ég hef alltaf haft gaman af því að semja dægurlagatexta, einkum þó ef ég fæ lög sem höfða til mín. Ég hef verið svo lánsamur að geta leyft mér að A EINU SPJALLAÐ VIÐ AÐALSTEIN ASBERG UM TEXTA OG NÝJAN GEISLADISK Nýlega kom út geislaplata með þeim hjónakornum Aðalsteini Ásberg Sig- urðssyni og Önnu Pálínu Árnadóttur. Þau hafa sungið saman i ein átta ár og hafa víða komið fram á þeim tíma bæði hér innan- lands og á Norðurlöndunum. Um skeið bjuggu þau í Noregi þar sem þau fluttu tónlist sfna og íslensk alþýðulög við fjölmörg tækifæri. Þau hafa bæði starfað mikið með Vísnavinum, sem fremur hljótt hefur verið um upp á þér, með texta Aðalsteins. „Þetta er afraksturinn af þessu samstarfi okkar í gegnum árin,“ sagði Aðalsteinn Ás- berg í spjalli við blaðamann Vikunnar. Um lagavalið á geisladiskinum sagði hann að þar kenndi ýmissa grasa og væru lögin frá Norðurlöndunum, Chile og Þýskalandi auk fimm frumsaminna. „Þetta eru þau lög úr safninu sem okkur þóttu eiga erindi inn á plötu. Ég hef unnið Vísna- og heiöurshjónin Anna Pálína Árnadóttir og Aöalsteinn Ásberg Sigurösson. síðkastið ef frá er talin norræn vísnahátíð sem haldin var hér á landi sfðastliðið vor. Ýmist hafa þau Aðalsteinn Ásberg og Anna Pálína komið fram ein sér eða í félagi með öðrum. Hann var til dæmis meðlimur hljómsveitarinn- ar Hálft í hvoru og hún söng eftirminnilegt lag inn á plötu Gísla Helgasonar í fyrra með glæsibrag. Það var titillagið, Heimur handa lengi í þessu efni og textana kalla ég spari- textana mína en allir eru þeir eftir mig, ýmist frumsamdir eða þýddir, nema Maístjarnan sem er eftir Halldór Laxness eins og allir vita. Það ber til tfðinda að Ijóðið er nú flutt með öðru lagi en fólk á að venjast - laginu sem skáldið raulaði fyrir hlustendur í viðtali við Pét- ur Pétursson, fyrrum þul í Ríkisútvarpinu, 22 VIKAN 21.TBL. 1992
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.