Vikan - 12.11.1992, Blaðsíða 35
90210. Hafði það áhrif á val þitt á þessu hlut-
verki?
„Já, vissulega. Á þeim tíma sem ég fékk
handritið í hendur var ég líka að skoða önnur
handrit en þau voru öll svipuð þvi sem ég er
vanur að leika og mér fannst meiri áskorun
fyrir mig að taka að mér eitthvert nýtt og gjör-
ólíkt hlutverk. Tímasetningin fyrir gerð mynd-
arinnar passaði Ifka vel fyrir mig og mér leist
vel á liðið sem átti að leika í henni og þá sem
að henni stóðu. Mér fannst handritið Ifka mjög
fyndið og sagan óvenjuleg, maður sér ekki of
mikið af gamansömum hrollvekjum. Stærð
hlutverksins átti líka vel við mig. Ég vildi alls
ekki láta nafnið mitt koma á undan heiti mynd-
arinnar því mér fannst ég ekki tilbúinn að axla
þá ábyrgð að standa eða falla með „Luke
Perry“- myndinni.
- Hefur þér þá verið boðið aðalhlutverkið f
mörgum kvikmyndum sem þú hefur afþakk-
að?
„Nei, ég reyni að taka alla þá vinnu sem
mér býðst.“
- Þú mundir þá leika hvernig hlutverk sem
er?
„Nei, en ég hugsaði meira svoleiðis áður
fyrr. Það tekur tíma að venjast því að tilboð-
unum rigni yfir mann en ferill minn er langt því
frá að vera stráður gylliboðum. Það er freist-
andi að stökkva til og segja bara já en ég vil
gefa mér tíma til að vega og meta hvert hlut-
verk sem mér er boðið og byggja ákvörðun
mína á því mati. Ég gerði það í samband við
Buffy the Vampire Slayer og ég er ánægður
með þá ákvörðun."
- Hvað var það f fari Pikes sem dró þig að
hlutverkinu?
„Eftir að hafa leikið Dylan daglangt var það
ekki spurningin um að setja sig inn í hlutverk
Pikes þegar ég mætti til upptöku á kvöldin
heldur að losa sig úr hinu hlutverkinu sem
gerði vinnuna léttari en ella.“
- Ert þú að einhverju leyti líkur honum?
„Já, við erum mjög líkir í útliti..."
- Hann er uppreisnargjörn týpa, hvað um þig?
„Ég er alls ekki eins uppreisnargjarn og fólk
heldur. Það er einkennilegt þegar maður er
bara að reyna að vera maður sjálfur og það er
litið á það sem uppreisnargirni. Það er mis-
jafnt hvað fólk lítur á sem uppreisnargirni.
Sumum finnst hneyksli ef maður er boðinn
eitthvað og mætir ekki í kjól og hvítu. Ef mér
mislíkar eitthvað læt ég viðkomandi örugglega
vita af því en ég öskra ekki og geng berserks-
gang ef ég mæti mótlæti. Ég á heldur ekkert
Harley Davidson sem ég þeytist um á ólög-
legum hraða um götur borgarinnar þannig að
þetta er ekki fmynd sem ég gengst upp í.“
- Þér hefur verið líkt við James Dean. Er
það þungur kross að bera?
„Nei, alls ekki, mér finnst það heiður út af
fyrir sig. Það eina neikvæða við það er ef fólk
heldur að það sé allt sem ég get gert. Ég hef
marga aðra eiginleika. Ef ég rakaði af mér
hárið líktist ég James Dean ekki mikið en ég
gæti samt leikið, skilurðu."
- Átt þú von á því að segja fljótlega skilið
við leik í sjónvarpsþáttum til að geta einbeitt
þér betur að kvikmyndaleik?
„Nei, ég er ósköp sáttur við stöðuna eins og
hún er - en hver veit? Spyrðu mig sömu
spurningar eftir hálft ár og þá getur svarið orð-
ið allt annað. Mér er alveg Ijóst að ástæðan
fyrir því að við erum að tala saman hér er leik-
ur minn í Beverly Hills 90210 og ég ætla ekki
að fara að láta eins og ég sé orðinn of fínn
fyrir hlutverkið mitt þar. Ég held áfram að leika
í þáttunum á meðan ég hef gaman af því og
tilhugsunin um næsta vinnudag íþyngir mér
ekki. Hversu lengi það verður treysti ég mér
ekki að segja til um en ég held að ég eigi tvö
ár eftir af samningnum mfnum. Á meðan ég
fæ launaumslagið mitt reglulega stend ég við
skuldbindingar mínar við framleiðandann."
- Það hafa verið gerðar skoðanakannanir
sem sýna að þú ert örlítið vinsælli en Jason
Priesley sem leikur hitt aðalkarlhlutverkið í
Beverly Hills 90210. Ert þú ánægður með
það?
„Mér er skítsama. Við erum góðir vinir og
vinnum vel saman. Við vissum að það yrði
farið út í það í blöðunum að bera pkkur sam-
an en það er engin samkeþpni okkar á milli
þó alltaf sé verið að láta það í veðri vaka.“
- Hvað um samband ykkar Shannon? Það
er oft sagt að það sé erfitt að vinna með
henni. Frh. á bls. 94.
MAKE UP - LÍNA RUT, HÁR - HÁR EXPO, UÓSM. GÍISTI, MÓDEL - SIF MÓDEt 79
MAKE UP FOR EVER
IwUuumd makf u|i
FÖRÐUNARMEISTARINN
BORGARKRINGLUNNI S: 677280
BÝÐUR UPP Á:
■ FÖRÐUN FYRIR ÖLL TÆKIFÆRI ■ FÖRÐUNARNÁMSKEIÐ
■ PERSÓNULEGA ÞJÓNUSTU (ATH. ALLTAF FÖRÐUNARMEISTARL
Á STAÐNUM)
ADRIR ÚTSÖLUSTADIR: HÁR EXPO LAUGAVEGI • KOMPANÍIÐ ÁRMÚLA • SNYRTISTOFAN ÞEMA
HAFNARFIRÐI • NÝTT ÚTLIT KEFLAVÍK • SNYRTISTOFA NÖNNU AKUREYRI • AB SALON MOSFELLSBÆ •
HJÁ SOLLU HVERAGERÐI • HJÁ HILDI OG GUNNELLU HÚSAVÍK • SNYRTISTOFAN AIFA AKRANESI • HEILD-
SÖLUDREIFING S: 11288
21.TBL. 1992 VIKAN 31