Vikan


Vikan - 04.11.1993, Side 10

Vikan - 04.11.1993, Side 10
MÁLDRAUMANNA Suma drauma er auðvelt að skilja og til þess þarf engar skýringar. Dreymi þig kynferðislegt samband við geð- þekkan nágranna eða samstarfsfélaga sýnir draumurinn aðeins ástarhug þinn til hans eða hennar. Ef þig dreymir að þú drepir mann er augljóst að þú berð fjandsamlegar hugsanir til hans, jafnvel þótt þú viljir ógjarnan viður- kenna þær. í því tilfelli er mál hjartans þýtt yfir í líkinga- mál. Flóknustu og afkáralegustu draumar hafa sama hlutverk og þeir augljósustu: að láta á líkingamáli í Ijós tilfinningar og skilning. Sumir draumar geta þó að sjálf- sögðu verið flóknari en aðrir. Draumurinn er kvikmynd sem sýnd er á tjaldi hugans. Hann flytur boðskap sinn með hjálp hugmyndatengsla. Þó að þetta líkingamál geti virst óaðgengilegt í byrjun er það í rauninni gleggsta og áhrifaríkasta mál sem völ er á þegar um er að ræða að skýra allar hliðar á vitundar- hæfni okkar. Að hugsa í líkingum eða myndum nær alveg aftur til upphafs mannkynsins, þegar maðurinn hafði hvorki til- einkað sér tungumál né sértæka hugsun. Við notum sí- fellt margvísleg myndræn orðatiltæki í daglegu tali, til dæmis: Ekki er allt gull sem glóir, hamra skal járn með- an heitt er, úlfur í sauðargæru, gefa einhverjum langt nef og svo framvegis. Þessi orðtök eru svo sjálfsagður hluti málsins að við áttum okkur oft ekki á þeim sem líkingum- Þegar okkur dreymir verður hugurinn eins og kvik- 8

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.