Vikan - 04.11.1993, Page 21
táknaö hluta af þínum eigin persónuleika. Dreymi þig vin
sem er listamaður getur draumurinn birt þér viðhorf þitt
til þess tiltekna manns en hann getur líka táknað þína
eigin listahæfileika.
ÓKUNNUGIR SEM BIRTAST í DRAUMI
Algjörlega ókunnugt fólk getur staðið fyrir raunverulegar
persónur, aðstæður eða stofnanir. Vitanlega getur það
líka táknað hluta af okkur sjálfum. Dreymi okkur til dæm-
is persneskan konung eða krossfara er oft auðvelt að
tengja það við fólk sem er okkur mikilvægt. Stundum er
samhengið þó ekki eins Ijóst.
Mann nokkurn dreymdi að hann heyrði mikinn hávaða
utan við húsið. Gluggarnir voru opnir, regnið streymdi
niður og hvassviðri var skollið á. Hann brá fljótt við og
'okaði gluggunum. Fyrir utan húsið var hræðilegur
villimaður sem gekk berserksgang, hljóp öskrandi um
öæinn og olli margs konar uppþoti. Lögreglan var á hæl-
Um hans. Hér var villimaðurinn hluti af dreymandanum
sjálfum, það er að segja hin stórlynda hlið. Boðskapur
raumsins var sá að ef villimaðurinn ætti að nást yrði
maðurinn sjálfur að hafa taumhald á skapsmunum sín-
Urn. Hvassviðrið táknaði hans eigið stormasama eðli.
Hálffimmtugan mann dreymdi að hann ýtti á undan sér
öarnavagni. í vagninum sat yfirmaður hans og önnur hlið
andlits hans var gjörólík hinni. Þessum manni geðjaðist
ans ekki að yfirmanni sínum, gagnrýndi hann og þóttist
n°num miklu fremri. Yfirmaðurinn, sem hann hafði svo
19