Vikan - 04.11.1993, Page 59
Hér var um mikilvægan boðskap að ræða, það er að
segja að krafturinn að baki tilfinningunum (vindurinn að
baki bylgjunum) er sami lífgefandi krafturinn og gegnsýrir
alla náttúruna og fyllir mennina frjósamri andagift. Það
væri því ámóta heimskulegt að sökkva sér alveg niður í
einhver háskólafræði (glerhúsið sem stóð svo hátt) eins og
að fórna slíkum hlutum að fullu fyrir innantóma vellíðan
innan heimilisins (húsið við hafið). í hvorugu tilfellinu mundi
vindurinn vera orkugjafi, hann mundi aðeins verka truflandi
á staðnaðar lífsvenjur. Það skapandi líf sem Ann óskaði
sér varð að standa henni opið. Hún hafði í senn þörf fyrir
náin tilfinningatengsl og vitsmunalega örvun en hún varð
að gæta þess að hvort tveggja væri alltaf opið fyrir nýjum
hiöguleikum og þroska.
MARTRÖÐ
^artröð, sem endurtekur sig með jöfnu millibili árum sam-
an, getur orsakast af raunverulegum viðburði sem aldrei er
raunar hægt að ráða bót á.
Martröð kemur oft fram hjá börnum og endurspeglar
9jarna eitthvað sem hefur hrætt þau þann daginn. Sé um
andurtekningu að ræða gæti það verið merki um innri
^einsemd. Það besta sem hægt er að gera er að taka
barnið upp, hugga það og vera hjá því þangað til það er
aftur tilbúið að fara að sofa. Sennilega sækja þá ekki að
Því fieiri vondir draumar þá nóttina. Martraðir geta komið
fram á vissum tímabilum og þær hverfa gjarnan sjálfkrafa.
Meðal fullorðinna er martröð óþægilegur draumur, nógu
57