Vikan - 01.10.1994, Qupperneq 8
KVENSKORUNGUR
flest í gömlum, sígildum stíl.
Viö setjumst viö boröstofu-
borðiö og gæöum okkur á
kræsingunum viö undirleik
íslensku sumarsinfóníu-
hljómsveitarinnar sem hefur
ræst hljóöfæri sín og er byrj-
uð að fella strá í garðinum.
Þegar við erum byrjuð að
gæða okkur á kræsingunum
segir Margrét frá því að Ás-
geir hafi verið á fullu í tón-
listinni meðan þau foreldrar
hans bjuggu í London en
Nú hafa bræðurnir fjórir
verið nefndir til sögunnar.
Enn er þá ótalin systirin
Snjólaug, en hún er elst al-
systkinanna. Snjólaug er
uppeldisfræðingur. „Hún
Snjólaug mín er yndisleg,"
segir Margrét, „Guðmundur
Árni, sem er fjórum árum
yngri, kallaði hana alltaf
Litlu-Mömmu þegar hann
var lítill því hún hjálpaði mér
mjög mikið hér heima við.
Hún var strax byrjuð að
,Hér heima var alltaf mikió rætt um pólitík sem eflaust hefur haft
mikil áhrif á börnin, sérstaklega um og eftir fermingaraldurinn,"
segir Margrét Guómundsdóttir
Stefán starfaöi þar sem við-
skiptafulltrúi við íslenska
sendiráðið. Ásgeir gerði sér
góða grein fyrir því að hljóð-
færi og hljómtæki væru mun
ódýrari í Englandi en á ís-
landi en hann lagði stund á
tónlist og nam upptökufræði
i London.
„Ég keypti stundum ein-
hver tæki fyrir hann og vini
hans, meðal annarra Bjössa
Blöndal, sem nú er í rokk-
hljómsveitinni Ham, en þá
var hann að byrja í tónlist-
inni,“ segir Margrét sem
greinilega fylgist vel með
fleiru en pólitík, „og þeir voru
farnir að bera mikla virðingu
fyrir mér, ensku tollverðirnir,
þeir héldu örugglega að ég
væri einhver tónsnillingur,
þegar ég var að fara í gegn
með gítarkassa og einhver
tæki. Ég man til dæmis eftir
stórum Marshall-magnara
sem við roguðumst með
gegnum tollinn einu sinni!"
skipta sér af uppeldinu. Ég
man til dæmis eftir atviki þar
sem Guðmundur Árni hafði
verið að hrekkja einhvern fé-
laga sinn, ætli þeir hafi ekki
verið fimm ára gamlir eða
þar um bil. Ég var ekki
heima en Guðmundur Árni
kom hlaupandi heim, þaut
upp í herbergið sitt og skellti
hurðinni. Pabbi stráksins
kom til að lesa yfir hausa-
mótunum á Guðmundi en
Snjólaug, þá átta eða níu
ára, varð fyrir svörum.
„Blessaður vertu, láttu þá
bara um þetta sjálfa. Þeir
verða brátt orðnir góðir vinir
aftur,“ sagði Snjólaug mér að
hún hefði sagt við pabbann,
þessi smáhnáta. Þarna var
hún strax komin í það hlut-
verk sem hún kaus síöan að
gera sér að ævistarfi.
Ég man líka eftir því að
Guðmundur Árni var ekki
nema rétt eins eða tveggja
þegar Snjólaug spurði mig af
hverju ég væri ekki búin að
kenna honum bænirnar.
Barnið var varla farið að tala!
Hún var ógurlega hneyksluð
á mér.
Síðan ætluðu þau öll söm-
ui að ala Ásgeir upp því þeg-
ar hann fæddist var Guð-
mundur Árni, sem hafði ver-
ið yngstur, orðinn 14 ára og
heimilishaldið komið í fastar
skorður. Það breyttist auðvit-
að allt þegar Ásgeir kom í
heiminn.“
Fengu krakkarnir kristilegt
uppeldi?
„Já, uppeldið byggði á
kristinni trú og góðri blöndu
af aga og freisi. Sjálf er ég
trúuð og leita til Guðs. Og ég
man að krakkarnir lásu allir
heilmikið í Nýja-testament-
inu þegar þau voru yngri auk
þess sem þau voru virkir fé-
lagar í KFUM og -K. Samt
voru þau mjög ólík hvert
öðru. Til dæmis var fátt skylt
með Gunnlaugi og Guð-
mundi Árna. Ég hélt að Guð-
mundur Árni myndi verða
prestur. Hann lá alltaf hreint í
bókum og var fljótur að læra,
dálítið mýkri persónuleiki en
Gunnlaugur sem var miklu
kraftmeiri og alltaf ofboðs-
lega mikið að gera hjá hon-
um. Hann hélt ég að yrði
skipstjóri. Gunnlaugi þótti
líka mjög gaman að vera í
sveit en Guðmundur Árni
hafði ekkert gaman af því,
vildi helst vera heima. Engu
að síður voru þeir miklir vinir
og stóðu saman eins og þeir
gera enn.
Hér heima var alltaf mikið
rætt um pólitík sem eflaust
hefur haft mikil áhrif á börn-
in, sérstaklega um og eftir
fermingaraldurinn. Ég man
til dæmis eftir því einu sinni,
meðan Stefán var bæjar-
stjóri, að Gunnlaugur gekk á
milli manna í bæjarvinnu-
flokki sem var að störfum
hér fyrir utan hjá okkur.
Gunnlaugur kom síðan inn til
pabba síns með nokkrum
fyrirgangi og sagði: „Heyrðu,
pabbi, þeir ætla allir að kjósa
þig nema einn, hann er
íhald!“ Þá var hann búinn að
tala fram og aftur um pólitík
við karlana."
Finnur Torfi staldraði við í
stjórnmálum ein sex eða sjö
ár. Hann er menntaður lög-
fræðingur en hefur nú snúið
sér að annars konar lögum;
semur óperur og fleiri teg-
undir tónverka. Hann er þó
enginn nýgræðingur í tónlist-
inni, lék m.a. í hljómsveitum
fyrr á árum og hefur alla tíð
verið mjög músíkalskur.
„Þau hafa reyndar öll verið
í tónlist, krakkarnir,“ segir
Margrét, „Guðmundur Árni
og Snjólaug lærðu á píanó,
Gunnlaugur náði að komast
í Lúðrasveit Hafnarfjarðar,
þar sem hann lék á alt-horn,
og Ásgeir leikur bæði á
píanó og gítar.“
Hvöttuð þið þá til þess að
fara út I stjórnmálin?
„Nei, þess þurfti ekki.
Þetta kom alveg af sjálfu
sér.“
Hvað finnst þér um börnin
þin í dag?
„Mér líst vel á þau og það
sama gildir um alla krakkana
mína. Þeir halda mjög vel
saman. Snjólaug hefur
reyndar verið hlynnt kvenna-
framboði, var til dæmis full-
trúi Kvennalistans í Reykja-
vík eitt kjörtímabil í Æsku-
lýðsráði. Henni þykir ég
ferlega gamaldags því ég er
á móti því. Pólitíkin er eig-
inlega orðin „tabú“ þegar við
erum að tala saman,“ segir
Margrét og kímir.
Kvennapólitíkin liggur
nærri þér víðar í ættinni og
mér skilst að það hitni oft vel
í ættarkolunum í fjölskyldu-
boðum?
Margrét hristir höfuðið yfir
þessu. „Ég lít þannig á að
Kvennalistinn eigi engan rétt
á sér. Flokkur, sem berst fyr-
ir jafnrétti, á ekki að byggja
sjálfan sig á ójafnrétti. Mér
finnst sjálfsagt að konur taki
þátt í stjórnmálum en þær
eiga ekki að gera það með
sérframboði. Hvað yrði sagt
við því ef karlar tækju sig til
og bönnuðu konur á fram-
boðslista? Það yrði sent
beinustu leið til mannrétt-
indadómstólsins!“ segir Mar-
grét.
„Konur kjósa heldur ekkert
frekar aðrar konur í kosning-
um,“ heldur hún áfram,
„sjáðu til dæmis prófkjör Al-
þýðuflokksins hér í Hafnar-
firði fyrir síðustu kosningar.
Það varð ein kona á meðal
þeirra sex efstu. Samt var
hlutfall kvenna jafnt hlutfalli
karla á prófkjörslistanum,1'
segir Margrét. Hún er farin
að iða í sæti sínu, hefur
greinilega mjög gaman af
því að velta stjórnmálum fyrir
sér.
„Ég tel þó mjög mikilvægt
að auka veg og áhrif kvenna
í islenskum stjórnmálum.
8 VIKAN 9. TBL. 1994