Vikan


Vikan - 01.10.1994, Síða 20

Vikan - 01.10.1994, Síða 20
UNGFRU NORÐURLOND Nýkrýndar fegurdardýsir að aflokinni Feguröarsamkeppni íslands 1994. T.v.: Birna Braga- dóttir í öðru sæti, Margrét Skúladóttir Sigurz fegurðardrottning íslands og Unnur Guöný Gunnarsdóttir, sem var kjörin í þriðja sæti keppninnar. Hún hlaut flest atkvæöi áhorfenda í keppninni um titilinn ungfrú Norðurlönd. LJÓSM.: HREINN HREINSSON riö 1994 hefur veriö viðburðaríkt ár hjá Birnu Bragadóttur. í maí varö hún í ööru sæti í fegurðarsamkeppni íslands og í september bárust þau tíðindi frá Finnlandi að Birna hefði verið valin fegurst kvenna á Norðurlöndum. Af því tilefni heimsótti VIKAN Birnu og fékk að safna sam- an myndum af henni á ýms- um skeiðum úr fjölskyldu- albúminu. Birna vann fimm af tíu for- keppnum í Finnlandi en keppnirnar voru nokkurs konar kynningar á stúlkun- um, með því fráviki að greiða mátti atkvæði með þeirri stúlku sem þætti sigur- stranglegust. Hvað bíður hennar núna eftir þennan sigur? „Það er mikið undir mér sjálfri komið. Þeir úti koma til með að hafa samband við mig þegar þeir vilja fá að nota mig í eitthvað en þetta er ekki eins og að vinna Þriggja ára á bikinibaöfötum í Grindavík. Tíu mánaða, tannlaus og sköllótt. Miss World. Ég er ekki skuldbundin til neins sér- staks næsta árið meðan ég ber titilinn, nema þess að fara út næsta ár og krýna ungfrú Norðurlönd 1996." Birna býr í föðurhúsum á Álftanesi. Bragi Guðmunds- son, faðir hennar, er mat- reiðslumaður og rallíkappi og Guðrún Gísladóttir, móðir hennar, er kennari. Birna fæddist í Kópavoginum en var innan við ársgömul þeg- ar fjölskyldan lagðist í ferða- lög, því Bragi starfaði í Am- eríkusiglingum í eitt ár á meðan hann var í námi. 20 VIKAN 9. TBL. 1994

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.