Vikan


Vikan - 01.10.1994, Page 36

Vikan - 01.10.1994, Page 36
o > Matta í stássstof- unni ásamt eiginmanni sínum, Ingi- mar, og Jó- hönnu dótt- ur þeirra, sem býr á heimilinu og aöstoóar foreldrana viö rekstur gistiheimil- isins. Séó inn í eitt svefn- herbergi gistiheimil- isins. Óneit- anlega vist- legt og um- fram allt hcimilislegt. þveran og endilangan og séð fegurstu staði og hitt einstakt og yndislegt fólk. Ég starfaði fyrir Loftleiðir frá árinu 1972 og vegna þeirra fríðinda starfsfólksins að fá frímiða varð okkur kleift að fara í fyrstu ferðina til Ástralíu árið 1973 og komu börnin okkar Jóhanna og Pálmar Þór með. Þetta var ógleymanleg ferð. Við lögðum af stað í september og flugum fyrst til London og gistum þar nokkra daga, skoðuðum söfn og lysti- garða. Þegar við ætluðum út á flugvöll til að halda ferðinni áfram voru miklar tafir á leið- inni og komumst við að því að sprenging hafði orðið í flugstöðinni og öngþveiti hafði skapast. Þetta minnti okkur á hverfulleika heims- ins en áfram héldum við. Leiðin lá til Los Angeles en við flugum yfir ísland á leið þangað og hugsuðum hlý- lega heim, á meðan við flug- um yfir, en flestir farþeganna steinsváfu og vissu ekkert um þetta litla land sem kúrði þarna niðri. Ég hafði aðeins einu sinni ferðast til útlanda þegar hér var komið sögu. Það var með Gullfossi forð- um og var það nokkurs kon- ar verslunarferð en ferðírnar okkar til Ástralíu voru og eru stór hluti af lífi okkar allra. Ferðirnar til Ástralíu eru orðnar 6 og alltaf sjáum við eitthvað nýtt og að ég tali nú ekki um móttökurnar hjá dóttur okkar, tengdasyni og börnunum þeirra tveimur. í síðustu ferðinni hittist svo á að við komum til Ban- kok á Tailandi á gamlársdag. Við gistum á Menam hótel- inu og áramótadansleikur stóð fyrir dyrum. Það var ekki annað að gera en að skella sér í sturtuna og sparifötin. Þarna voru dekk- uð borð úti á verönd. Þetta eru þau lengstu hlaðborð sem við höfum á ævinni séð. Þarna léku hljómsveitir með söngvurum og trúðar léku listir sínar. Við byrjuðum óvart á eftirrétti, pönnukök- um með sírópi. Við urðum hálf ringluð af úrvalinu en okkur langar bæði að fara á þennan stað aftur á tíma- mótum sem þessum því það var nánast ógleymanlegt. Landið er svo fallegt og Tai- lendingar einstaklega gest- risnir og góðir heim að sækja." Þótt Matta og Ingimar hafi notið gæfu og gengis í lífinu, þá knúði sorgin dyra hjá þeim þegar sonur þeirra, Pálmar, veiktist af krabba- meini fyrir nokkrum árum. Lengi vonuðu allir að lækn- ing hefði orðið en það var aðeins frestur gefinn og í vor þegar vorsólin skein sem skærast fylgdu þau syni sín- um til grafar. „Það var svo undarlegt," segir lngimar„að nóttina, sem Pálmar fæddist, ók ég Möttu á spítalann en þá var ekki vaninn að feðurnir væru viðstaddir fæðingu barna sinna. Ég var svo spenntur að ég reyndi að sofna til að stytta biðina. Þá dreymdi mig að ég væri staddur á 36 VIKAN 9. TBL. 1994

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.