Vikan - 01.10.1994, Blaðsíða 40
SALRÆN SJONARMIÐ
JONA RUNA SKRIFAR UM
SÁLRÆN SJÓNARMIÐ
ENND
Við íhugum að þessu
sinni bréf frá ungum
manni sem kýs að
kalla sig Palla. Hann er mið-
ur sín sökum þess að hann
telur sig hafa drepið ófætt
barn sitt. Hann gerði unga
stúlku ófríska og vildi sfðan
ekkert með hana hafa. Þeg-
ar hún aftur á móti vildi fá
hann ( sambúð við sig,
vegna væntanlegs barns
þeirra, benti hann henni á að
best væri að láta eyða fóstr-
inu. „Eftir að ég tók þessa
vanhugsuðu og afdrifaríku
ákvörðun fyrir okkur bæði
leið mér ekkert illa. Þegar
svo ég fór að hugsa um
þetta atvik af og til þá rann
upp fyrir mér smátt og smátt,
að ég hafði að vanhugsuðu
máli látið hana drepa vænt-
anlegt barn okkar,“ segir
Palli sem er undir tvítugu.
KJAFTSHÖGG OG
ÓRÉTTLÆTANLEG
FORSENDA
Hann er mjög ósáttur við að
hafa tekið þessa ákvörðun.
„Eftir á séð, kæra Jóna
Rúna, sé ég engan tilgang
með þessari ákvörðun
minni. Ég sé enga réttlæt-
anlega forsendu í dag fyrir
þessu framferði mínu. Ég
viðurkenni, að ég gat ekki
hugsað mér stelpuna. Ég
hafði, undir áhrifum áfeng-
is, farið eina nótt með
henni heim og við sváfum
saman með þessum af-
leiðingum. Það var því
mikið kjaftshögg fyrir mig,
þegar hún svo hringdi í
mig nokkrum vikum
seinna og sagðist vera
ófrísk." Palli lýsir því þannig
að honum hafi fundist fram-
tíð sín verða að engu.
DATT EKKERT
BETRA í HUG
„Ég fylltist bara örvænt-
ingu og þorði ekki að
segja foreldrum mínum frá
þessu. Þau þola engin
mistök af okkur krökkun-
um. Allt okkar heimilislíf á
að vera fullkomið. Mér datt
ekkert betra í hug, en að
segja stelpunni að fara í
fóstureyðingu. Hún reyndi
að fá mig til þess að sjá
þennan atburð í öðru og
jákvæðara Ijósi. Hún vildi
raunverulega aldrei gera
þetta. Hana langaði að
eignast barnið en treysti
sér ekki til að bera ábyrgð
á því ein. Hún er í skóla og
það eru miklir erfiðleikar
heima hjá henni. Brennivín
eða eitthvað svoleiðis ves-
en,“ segir Palli og það er
Ijóst að hann á erfitt í meira
lagi.
FYRIRLITNING
OG SJÁLFSHATUR
Hann talar um að sektar-
kenndin sé gjörsamlega að
drepa hann. Hann hefur
mikla þörf fyrir það núna að
ná sambandi við stúlkuna.
Hún vill aftur á móti ekkert af
hans tilvist vita. Þau eiga
samt sem áður saman
þessa reynslu. Hann vildi
óska þess núna að það sem
gerðist hefði ekki gerst.
Hann gerir sér grein fyrir því,
að hann sá ákveðna hluti frá
röngu sjónarhorni. „Mér
finnst ég hafa brotið af
mér á margan hátt með því
að láta stelpuna fara í fóst-
ureyðingu. Hún fyrirlítur
mig og ég skil það vel því
ég fyrirlít sjálfan mig. Ég
hreinlega hata sjálfan mig
fyrir það að verða til þess
40 VIKAN 9. TBL. 1994