Vikan - 01.10.1994, Page 52
AFREKSMAÐUR
BIRKIR RÚNAR GUNNARSSON
ÓLYMPÍUVERÐLAUNAHAFI, TÓNLISTARMAÐUR
OG NÁMSHESTUR:
TEXTI: SVAVA
JÓNSDÓTTIR
UÓSMYNDIR:
KRISTJÁN E.
EINARSSON
Isumar mælti undirrituð
sér mót við Birki á
heimili hans í Garða-
bænum. Það var sama hve
oft dyrabjöllunni var hringt
og hve bankað var fast. Eng-
inn kom til dyra. Nú voru góð
ráð dýr. Skyldi drengurinn
hafa gleymt viðtalinu? Hann
hafði svo sem sagst hafa
mikið að gera. Best að reyna
aftur eftir smá tíma. Eftir að
hafa ekið nokkra hringi um
nágrennið var reynt aftur.
Nei. Engin hreyfing. Nokkru
síðar náðist samband við
Birki símleiðis. Jú, jú, hann
hafði verið heima. Hann
heyrði hvorki í bjöllunni né
bankið vegna þess að hann
hafði verið að æfa á píanóið
sitt ásamt öðrum. Var að
æfa fjórhent. Við mæltum
okkur aftur mót og í þetta
skipti heyrði hann í bjöllunni.
Birkir, sem er sautján ára,
býr ásamt foreldrum sínum
og systrum í tveggja hæða
raðhúsi í Garðabæ. Hann er
með stórt herbergi á jarð-
hæðinni þar sem hann hefur
komið fyrir píanói, rauðu
trommusetti, hljómborði og
tölvu. Allir veggir eru þaktir
verðlaunapeningum fyrir
sund, á píanóinu eru verð-
52 VIKAN 9. TBL. 1994