Vikan - 12.04.1999, Blaðsíða 4
A ftur beinum við sjónum okkar að kvenlegri fegurð og óskum
/\ eftir þátttöku ykkar. ísíðasta blaði völdu lesendur Vikustúlk-
/~~..« una úr hópi keppenda í Fegurðarsamkeppni Norðurlands.
JL M Það val gekk Ijómandi vel og verður Vikustúlka Norðurlands
kynnt á síðum blaðsins bráðlega. En það verður ekki síður mikið um
dýrðir á Broadway 15. apríl þegar Ungfrú Reykjavík verður krýnd. Les-
endum gefst nú kostur á að láta sitt álit í Ijós og velja fallegustu stúlkuna
með því að hringja ísíma 905-2500. Gaman verður að vita hvort lesendur
blaðsins velja sömu stúlkuna og dómnefndin á Broadway.
Og fleira sem gleður augað er á síðum þessarar Viku. Sumartískan er
kynnt á síðu 40 og þar má sjá að Ijósir litir og kvenleg snið eru aðalmálið
eins og vera ber á sumrin.
Marentza Poulsen er líka í vorhug og býður upp á létt ogfersk salöt á síðu
34. Þetta eru litríkir réttir sem gleðja augu og gœla við bragðlaukana.
En mannfólkið þarfað fást við fleira en lífsins lystisemdir. Á bls. 12 er athyglisvert viðtal við konu sem missti ungan og
efnilegan son sinn í umferðarslysi á Norðurlandi. Hún greinir frá þessum sára missi og þeirri baráttu sem hún og vinir
sonarins hafa hafið fyrir bœttri umferðarmenningu og notkun bílbelta.
Það er vitað að beltin bjarga! Og eins og móðirin veltir upp í greininni: Hvað er að þeim foreldrum sem spenna ekki beltin
á ung börn sín??? Um daginn sá ég konu bíða í bíl sínum á fjölförnum gatnamótum í Reykjavík. Hún fékk sér sígarettu
meðan hún beið og púaði yfir börnin tvö. Annað barnið sat frammí en hitt var á ferðinni til ogfrá í aftursœtinu. Hvorugt
þeirra var í bílbelti! Hvað er að svona fólki? Börn eiga betra skilið en þetta.
En fleira er í blaðinu sem ég hvet lesendur til að missa ekki af. Önnum kafinn sölumaður kúventi lífi sínu og gerðist
heimavinnandi húsfaðir auk þess að leggja stund á nám í hómópatíu. Hann er heillaður affrœðum smáskammtalækninga
og leggur auk þess stund á pólun. Já, sumir þora svo sannarlega að breyta til í lífinu.
Og góð heilsa er okkur ofarlega í huga sem störfum við Vikuna. Á bls. 56 fjallar Ellen Mooney húðsjúkdómalœknir um
húðkrabbamein. Hvað ber að varast og hvenær er rétt að láta athuga bletti á húðinni? ígreininni er líka viðtal við konu
sem sá hœttumerki í tíma og gat komið í vegfyrir að sjúkdómurinn næði að „grassera".
Greinin um getuleysi karla (bls. 24) er athyglisverð. Hvort á það sér oftar andlegar eða líkamlegar orsakir?
Þessu svara færir sérfrœðingar og gefa fólki um leið góð ráð til að takast á við vandann.
Afþessu má sjá að Vikan tekur á léttum og þungum málum, allt er þetta passlegt í bland.
Njótið Vikunnar
Sigríður Arnardóttir ritstjóri
Jóhanna
Harðardóttir
ritstjóra-
fulltrúi
Kristín
Guðmunds-
dóttir
auglýsinga-
stjóri
Þórunn Steingerður
Stefánsdóttir Steinars-
blaðamaður dóttir
blaðamaður
Guðmundur
Ragnar
Steingrímsson
Grafískur
hönnuður
Útgefandi Fróði Seljavegur 2, Simi: 515 5500 Fax: 515 5599
Stjórnarformaður Magnús Flreggviðsson Aðalritstjóri Steinar J.
Lúðviksson Simi: 515 5515 Framkvæmdarstjóri Halldóra
Viktorsdóttir Sími: 515 5512 Ritstjóri Sigríður Arnardóttir Simi:
515 5582 Vikan@frodi.is Ritstjórafulltrúi Jóhanna Harðardóttir
Simi: 515 5637 Blaðamenn Þórunn Stefánsdóttir Sími: 515
5653 Thorunn@frodi.is og Steingerður Steinarsdóttir Sími: 515
5569 Auglýsingastjóri Kristin Guðmundsdóttir Sími: 515 5628
Vikanaugl@frodi.is Ljósmyndarar Bragi Þór Jósefsson Gisli Egill
Hrafnsson Sigurjón Ragnar Sigurjónsson Gunnar Gunnarsson
Hreinn Hreinsson Grafiskur hönnuður Guðmundur Ragnar
Steingrimsson Verð í lausasölu Kr. 459,-. Verð í áskrift ef greitt
er með greiðslukorti Kr. 344,-. Pr eintak . Ef greitt er með
giróseðli Kr. 389,-. Pr. eintak. Unnið i Prentsmiðjunni Odda hf.
Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir
Áskriftarsími:
515 5555