Vikan


Vikan - 12.04.1999, Blaðsíða 19

Vikan - 12.04.1999, Blaðsíða 19
Púsluspil Vikunnar! Klipptu út alla þrjá bitana sem birtast neðst á síðunum og sendu okkur. Fjöldi stórglæsilegra sumarvinninga í boði! Þetta er ósköp einfalt: Þú klippir út miðann hér neðst á síðunni og geymir hann. í næstu tveim tölublöðum birtast hinir tveir bitarnir úr púsluspil- inu og þegar þú hefur safnað þeim öllum sendir þú okkur miðana ásamt nafni þínu og heimlisfangi og ert þar með dottinn í lukkupottinn. Dregið verður úr lukkupottinum og hinir heppnu hljóta glæsilega vinninga: 50.000 kr. vöruúttekt hjá Fálkanum á útivistar- fatnaði og skóm að eigin vali. 30.000 kr. vöruúttekt hjá Fálkanum á útivistar-fatnaði að eigin vali. 5.000 kr. vöruúttektir hjá Fálkanum á viðlegu-búnaði að eigin vali. Klippið út og geymið! Síðasti bitinn birtist í næsta tölublaði! Á leið í brúðkaupsferð. Ástfangin leiddust þau í upphafi en ferðin hefur snúist upp í martröð. svölunum og Greg eyðir dögunum við sundlaugina og horfir á fallegar konur. Greg segir þau ákaflega ólík hjón með ólíkan bak- grunn. „Ég hef áhyggjur af því að geta ekki veitt henni það sem hún er vön að fá. Pabbi hennar á bensínstöðv- ar og fjölskyldan býr í ein- býlishúsi í hverfi efnafólks í Birmingham. Pabbi minn er námuverkamaður og ég er alinn upp við lítil þægindi.“ Carla hefur sagt Greg að hún elski hann ekki, a.m.k. ekki ennþá. „Það er ekki þar með sagt að hún eigi aldrei eftir að elska mig,“ segir hann bjartsýnn. „Ég er ákveðinn í að láta hjóna- bandið ganga. Ég get ekki hugsað mér að hlusta á fólk segja eftir á að þetta hafi verið vonlaust frá upphafi. Ég treysti því að allt fari á betri veg þegar við komum aftur heim til Englands og förum að búa saman og lifa venjulegu lífi. Carla er ekki eins bjart- sýn á framtíðina. „Ég sakna mömmu og fjölskyldunnar,“ segir hún. „Ég hlakka til að komast heim til Englands og fara út að skemmta mér með vinkonum mínum eins og ég er vön að gera. Greg segist sætta sig við það og það er líka eins gott fyrir hann. Nú hef ég verið með honum, allan daginn, alla daga, í tvær vikur. Mér þykir það leiðinlegt, en ég hef komist að því að ég er ekki ástfangin af honum. Ég geri mér grein fyrir því að brúð- kaupið vakti mikla athygli og veit um skoðanir fólks á því að það sé brjálæði að æða í hjónaband ef ástin er ekki til staðar. Ég bið fólk einfaldlega um að sýna okk- ur þolinmæði, það er enginn kominn til með að segja að ég geti ekki elskað Greg með tímanum.“ Þrátt fyrir þessar yfirlýs- ingar er helst að heyra á Cörlu að hún sé enn ekki búin að átta sig á því að hún sé í raun og veru gift Greg. „Enn sem komið er treyst- um við hvort öðru ekki full- komlega. Og stuttu seinna segir hún:- „Hvers vegna ætti ég ekki að líta í kringum mig, ég er ennþá ung. Samt sem áður er ég ánægð með að hafa „unnið“ Greg í keppninni í stað þess að hitta hann á einhverjum barnum. Þá skærum við okkur ekki úr fjöldanum.“ Lokaorð Cörlu eru ekki til þess að fylla Greg bjartsýni: „Mér var í raun alveg sama hvaða keppandi varð fyrir valinu. Ég hefði gifst þeim öllum, eingöngu til þess að fá alla þessa athygli." BIG Big pack útivistar- fatnaður er þýsk gæðavara. Falleg- ur og vandaður klæðnaður með góðri vatnsvörn og mikilli útöndun. Fisléttur og fínn. Nú er tækífærið fyrir lesendur Vikunnar að verða sér úti um frábæran útivistarbúnað frá Fálkanum við Suðurlandsbraut. Glæsilegir vinningar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.