Vikan - 12.04.1999, Blaðsíða 59
Hverju svarar læknirinn ?
Appelsínuhúð
Kæri læknir
Eg er ákveðin í að taka mér
tak og fara að hugsa um sjálfa
mig. Eg hef bara sinnt öðrum
undanfarin ár og mér líður
eins og slöppu hrúg-
aldi, er slöpp eftir barneignir
og sjálfstraustið er eftir því.
En ég er byrjuð að synda
nokkrum sinnum í viku og tek
bætiefni og lýsi og hef breytt
mataræði mínu nokkuð. Nú
borða ég mikið af salati og
ávöxtum á hverjum degi. En
svo er eitt sem ég byrjaði að
gera og veit ekki hvort virkar
það er að nudda lærin og
mjaðmir með náttúrulegum,
hörðum svampi allavega einu
sinni á dag, þegar ég er í
sturtu. Er það rétt að þetta
örvi blóðrásina og hjálpi
manni að grennast? Það eru
margar konur með svona
svampa eða skrúbba í sundi
og ég veit ekki hvort þetta
hefur raunverulega áhrif til að
draga úr fitusöfnun og appel-
sínuhúð. Hvað segir þú um
þetta? Er líklegt að ég styrkist
og grennist ef ég syndi 3-400
metra í einu? Ég syndi ekki
mjög hratt.
Vonandi geturðu gefið mér
góð ráð.
S. Ásta.
Kæra S. Ásta
Til hamingju með áfangann,
farin að taka á og byggja upp
bjarta framtíð og sjálfstraust.
Veistu, þú átt það skilið að
eiga bjarta og góða framtíð.
Öll hreyfing er góð, a.m.k. í
hófi. Já, ég er alveg viss um að
þú bæði grennist og styrkist
við að synda 3-400 metra í
einu, jafnvel þótt þú syndir
ekki hratt.
Appelsínuhúð, cellulite, er
afar algeng meðal kvenna og
því miður litlar líkur að ná
sléttri áferð á húð eftir að
appelsínuhúðin er komin þrátt
fyrir loforð snyrtivörufram-
leiðenda. Utlit húðarinnar er
eins og börkur á appelsínu,
oftast á lærum og upp á rass.
Sumir segja að allt að 90%
kvenna fái appelsínuhúð og er
það ekki háð kynþáttum.
Óreglulegt fitulag næst húð-
inni veldur þessu hjá konum,
en húð kvenna er þynnri en
karla og því blasir óreglulegt
fitulagið við. Því meiri fita
sem þarna er þeim mun meiri
líkur eru á appelsínuhúð.
Besta meðferðin við appel-
sínuhúð er hreyfing, rétt
mataræði og megrun. Styrkja
vöðva og draga úr fitu. Ekki
hefur verið hægt að staðfesta
að öll þessi krem sem er verið
að bjóða upp á gagnist. Nudd
virðist hjálpa sumum, líka
svona nudd sem þú lýsir með
harða svampinum. Nudd er
oftar en ekki hressandi og
örvandi, þér líður vel í húðinni
og skrokknum á eftir. Það er
hins vegar ákveðin fylgni á
milli þess að konur sem nota
svona harðan svamp hugsa
líka betur um sjálfa sig al-
mennt og eru því í betra formi
en meðalkonan. Appelsínu-
húð er næstum óþekkt meðal
íþróttakvenna, þær eru í góðu
formi og hreyfa sig reglulega.
Orsakir fyrir appelsínuhúð
eru kvenhormónar, en fitu-
dreifing í húð kvenna er önn-
ur er karla. Vissulega sjást
karlar með appelsínuhúð en
það eru oftar karlar með eitt-
hvert hormónaójafnvægi.
Stundum er reynt er að laga
appelsínuhúð með fitusogi, en
samkvæmt þeim heimildum,
sem ég hef undir höndum, þá
verður að beita sérstakri fitu-
sogsaðferð sem nær bæði til
djúpa og grunna fitulags húð-
arinnar hjá konum, en algeng-
asta fitusogið nær oftar en
ekki eingöngu til djúpu fitunn-
ar og þá versnar appelsínu-
húðin.
Haltu áfram þínu frábæra
framtaki og stattu þig.
Þorsteinn
Skalli: Mikið
feimnismál
Þorsteinn læknir
Þakka þér fyrir hlýleg skrif
þín í Vikuna. Ég les alltaf
svörin þín og vil gjarnan fá
meira lesefni um heilsuna. Er-
indið mitt er viðkvæmt mál.
Sonur minn er rétt rúmlega
tvítugur og myndarlegur mað-
ur en hann er að fá skalla og
hefur af því miklar áhyggjur.
Þetta er ekki í ættinni minni
og pabbi hans er með gott hár.
En strákurinn er svo ungur og
þetta veldur honum miklum
vonbrigðum. Það er alveg
sama þótt skrifað sé um það
að skalli sé í tísku, merki um
vald, þyki sexí, konur vilji
ekki síður karla með skalla.
Hann er alveg miður sín og á
erfitt með að tala um þetta.
Hvað get ég sagt við hann og
er eitthvað sem svona ungur
maður getur gert? Eru til
bætiefni/lyf sem hægja á
skallamyndun? Ég veit ekki til
þess að ungir menn séu með
topp eða eitthvað gervihár,
svo hvað ætti ég að ráðleggja
honum?
Með fyrirfram þökk.
Móðir
Sæl og blessuð, móðir
Það er alveg rétt hjá þér að
þetta er viðkvæmt mál hjá
svona ungum manni, sérstak-
lega þegar engin fordæmi eru
úr innsta kjarna. Skalli virðist
oftar en ekki vera lítt viðráð-
anlegur eftir að hann er kom-
inn, hann er alveg eins og þú
segir hormóna- og erfðabund-
inn. Vissulega eru til aðferðir
þar sem beitt er hárígræðslum
og settir toppar á karla sem er
satt best að segja heilmikill
iðnaður. Hér held ég hins veg-
ar að aðalmálið sé að byggja
upp sjálfstraustið og snúa vörn
í sókn. Hann á að spyrja sjálf-
an sig hvað hann geti gert til
að gera hárið og byrjandi
skallamerki að aðalsmerki
sínu, sínum karakter. Ég
myndi ráðleggja honum að
leita ráða á hárskerastofu því
þar er hægt að meta mismun-
andi klippingaraðferðir sem
geta átt við hann og ná von-
andi því fram sem hann vill.
Margir ungir karlmenn með
sama vanda og sonur þinn
klippa sig mjög snöggt og er
það sem meira segja í tísku
núna. Skilaboðin sem þeir
senda með þannig klippingu
og yfirbragði er oftar en ekki
að þeir séu öryggir með sig og
ákveðnir og það sem meira er
fyrir tvítugan karlmann, virki-
leg kvennagull, stelpunum
finnst þeir vera karlmannlegir
og spennandi.
Það er alltaf verið að koma
með eitthvað sem eigi að laga
skalla, meira að segja lyf.
Þessi sem ég hef séð á mark-
aðnum eru öll með því marki
brennd að þegar hætt er á
þeim þá hverfa hárin og eru
þau heldur ekki án aukaverk-
ana. Ég reyndi að spyrja upp-
áhaldsnáttúrulækninn minn
um þetta en hann hafði lítinn
áhuga, líklega vegna þess að
hann hefur verið með skalla
frá tvítugsaldri, sem hann hef-
ur reyndar gert að sínu aðals-
merki.
Að lokum þetta, ef einhver
sem þú þekkir er að stríða
honum vegna skallans, fáðu
þá viðkomandi til að hætta því
ekki seinna en í gær. Ef sjálfs-
traustið er ekki sterkt þá er
rétt að athuga hvort ekki sé
ástæða til að vinna úr því.
Láttu mig vita ef þú vilt fá
frekari upplýsingar um þann
þátt.
Þakka kveðjurnar
Þorsteinn
Spurningar má senda
til „Hverju svarar
læknirinn?“ Vikan,
Seljavegi 2, 101
Reykjavík. Farið er
með öll bréf sem
trúnaðarmál og þau
birt undir dulnefni.
Netfang: vikan@frodi.is
Vikan 59