Vikan - 12.04.1999, Síða 18
Texti: Þórunn Stefánsdóttir
ÖMURLEG BRÚÐKAUPSFERÐ!
HANN VILL FULLKOMNA
^■MTFTTfjJTm]? -1
GRÆTUR OG VILL FARA
HEIM TIL MOMMU!
Brúðurin sem vann brúðgumann í útvarpskeppni og við
sögðum frá í síðustu Viku, hefur nú lokað sig inni í brúðar-
svítunni á Bahamaeyjum og hringir daglega til mömmu
sinnar. „Ég vil fara heim,“ segir hún og sér eftir öllu saman.
Carla Corsell hefur
ekki ennþá sofið hjá
Greg, eiginmanni sín-
um. Nú eru tvær vikur síðan
þau hittust í fyrsta sinn, fyrir
framan altarið. Brúðkaupið
Nýgift og lukkuleg? Ónei, eftir því sem
dagarnir líða verður sambandið stirðara.
vakti mikla athygli í heima-
landi þeirra, Bretlandi.
Þjóðin fylgdist með brúð-
kaupinu og uppi voru skipt-
ar skoðanir á uppátækinu,
sumum fannst hugmyndin
frábær, aðrir töku
andköf af hneyksl-
un yfir uppátæk-
inu. En báðir hóp-
arnir fylgjast
spenntir með frétt-
um úr brúðkaups-
ferðinni og vilja fá
svar við því hvern-
ig hjónalífið geng-
ur!
Greg er orðinn
örvæntingarfullur.
Brúðkaupsferðin
er allt öðru vísi en
hann gerði sér í
hugarlund og
dreymdi um. Ljós
húð hans er
eldrauð og brunn-
in og hann lítur
gráðugum augum
til ferðafélaga
þeirra Cörlu,
glæsimeyjar, sem
liggur og sólar sig
við sundlaugina í
hótelgarðinum.
Hann segir það
hafa fyllt mælinn
þegar í ljós kom að
Carla kunni ekki
einu sinni að skrifa
nafnið hans rétt. En
hún hefur það sér til
afsökunar að hún
hafði hvorki heyrt
hann né séð fyrr en
fyrir tveimur vikum.
„Ég er mjög vilja-
sterk kona og ég vil ekki
sofa hjá Greg, enn sem
komið er, vegna þess að ég
þekki hann ekki nógu mik-
ið. Ég verð að segja honum
það til hróss að hann lætur
mig alveg í friði. Kannski
verð ég reiðubúin að sofa
hjá honum eftir nokkra
daga, kannski ekki fyrr en
eftir marga mánuði. Ég bíð
þangað til rétti tíminn kem-
ur.“
Greg krossar fingurna og
vonar að „rétti tíminn“
komi sem fyrst. „En ég
þekki hana orðið það vel að
ég veit að ég enda með glóð-
arauga ef ég geng of langt.
Þessi bið reynir á taugarnar
og ég hef alltof mikinn tíma
til þess að velta því fyrir mér
hvað gerist þegar við sofum
saman í fyrsta sinn. Hvað
gerist ef henni finnst ég vera
lélegur elskhugi? Þessi
heragi sem konan mín beitir
er alveg að fara með mig.“
Greg og Carla eru í brúð-
kaupsferð á Bahamaeyjum í
boði útvarpsstöðvarinnar
BRMB í Birmingham á
Englandi. Dvölin er hluti af
verðlaunum fyrir að vinna
keppnina, en auk brúð-
kaupsferðarinnar fengu þau
í verðlaun nýjan bíl og
lúxúsíbúð án leigugjalds í
eitt ár. í upphafi brúðkaups-
ferðarinnar sögðust þau
vera ánægð með brúðkaupið
og alla athyglina sem þau
fengu og hvað þau hlökkuðu
til að fá tækifæri til þess að
kynnast hvort öðru. Greg
sagðist fúslega bíða með að
fullkomna hjónabandið þar
til Carla væri reiðubúin til
þess. Nú, þegar mesta nýja-
brumið er yfirstaðið, er
komið annað hljóð í strokk-
inn. Carla sólar sig ein á
18 Vikan