Vikan - 12.04.1999, Side 25
ðasta sambúðarvandamálið
frumorsök getuleysis.
Hér á landi var staddur á
dögunum bandarískur sál-
fræðingur William Seabloom
sem hefur sérhæft sig í vanda-
málum tengdum kynlífi og
kynhegðun. Dr. Seabloom tel-
ur að getuleysi stafi meðfram
af líkamlegum orsökum en
þær séu aldrei það eina sem
að baki liggi. Getuleysi eigi
sér einnig rætur í því hvernig
kynhlutverk vestrænna karl-
manna sé mótað í uppeldinu.
„Karlmenn eru 7-9 ára
gamlir þegar þeir hafa full-
mótaðar hugmyndir um kyn-
hlutverk sitt (sexuality). Þá
þegar eru þeir þess fullvissir
að náin samskipti við kyn-
bræður sína séu óæskileg.
Hugsanlega er þetta hræðsla
við að það bendi til þess að
þeir séu samkynhneigðir.
Vestrænir karlmenn leita til
kvenna frekar en karla með
vandamál sín. Þeir hafa til-
hneigingu til að trúa að konan
eigi að geta uppfyllt allar
þeirra þarfir en hún getur það
ekki, fyrst og fremst af því
hún er ekki sama kyns.
Þeim er líka kennt að karl-
mennska felist í að ná og
halda stinningu í hvert sinn
sem reynt er að hafa samfarir.
Staðreyndin er hins vegar sú
að það er aðeins lítill hluti
kynlífs sem byggir á stinningu
eða aðeins örfáar mínútur.
Það eru til æfingar sem hægt
er að stunda sem hjálpa
mönnum að ná stinningu án
lyfja og einnig eru til kennslu-
myndbönd sem sýna aðferðir
til að fá fullnægingu án stinn-
ingar. Ég þekki og veit um
menn sem komnir eru yfir sjö-
tugt sem lifa góðu og fullnægj-
andi kynlífi án þess að ná
stinningu."
En hvað getur kona gert
þegar getuleysi verður vanda-
mál í ástarsambandi?
„Mikilvægt er að konan
muni að hún ber ekki ábyrgð
á getuleysi karlmannsins.
Hver og einn verður að taka
ábyrgð á eigin lífi og tilfinn-
ingum. Kynlífið er yfirleitt
það fyrsta sem lætur undan ef
samskipti fólks eru á fallanda
fæti enda návígið þá mest. í
mínu starfi skoða ég öll sam-
skipti fólks en vegna sérþekk-
ingar minnar á kynlífi og kyn-
hegðun manna kem ég fljótt
auga á þau vandamál er tengj-
ast kynrænni upplifun. Ég tel
að fólk eigi að koma inn í
sambönd sjálfstæðir og heil-
steyptir einstaklingar og
styðja hvert annað sem slíkir.
Það verða seint vanmetin
áhrif kynrænnar upplifunar
barna á kynlíf einstaklingsins
þegar hann er orðinn fullorð-
inn. Ég tel að við verðum að
rannsaka þennan þátt mun
mikil áhrif á vandann, kvíði og
þunglyndi geti komið í kjölfar-
ið enda verði menn á besta
aldri ekki getulausir og hristi
aðeins hausinn yfir því.
Hvernig geta hjón
brugðist við þegar
getuleysi gerir vart
við sig?
Fyrsta boðorð: Talið saman.
Fyrstu viðbrögð flestra eru að
reyna að þegja vandamálið í
hel. Um þetta þurfi tæpast að
tala enda sé ólíklegt annað en
að það lagist. Reynsla sér-
fræðinga er sú að vandinn
verður frekar viðvarandi ef
hann er ekki ræddur en ef rætt
er um hann frá byrjun.
Helstu orsakir getuleysis
Reykingar, óhollt mataræöi og áfengisdrykkja geta orsakað getuleysi.
Ýmis lyf geta haft þessar aukaverkanir og ýmsir sjúkdómar s.s. sykur-
sýki, taugasjúkdómar, æðaþrengingar, hjartasjúkdómar og sumar skurð-
aðgerðir geta haft þessar hliðarverkanir.
betur en þegar hefur verið
gert til að öðlast dýpri skilning
á þessari hlið mannlegs lífs.“
William Seabloom vill taka
það fram að hann þekkir best
til bandarísks samfélags og
byggir skoðanir sínar á því.
Hann segist hafa haft sam-
vinnu við fólk í sama fagi á
Norðurlöndum og hann hafi á
tilfinningunni að samfélag
okkar sé opnara gagnvart kyn-
ferðismálum og taki á þeim á
heilbrigðari hátt en gerist í
Bandaríkjunum.
Þorsteinn Gíslasson, þvag-
færaskurðlæknir, segir að bæði
líkamlegar og geðrænar orsak-
ir séu fyrir getuleysi. Mikil-
vægt sé að greina vandann og
bregðast síðan við honum.
Hann segir að læknar séu al-
mennt sammála um það í dag
að líkamlegar orsakir liggi að
baki getuleysi í þremur af
hverjum fjórum tilfellum.
Þetta sé afskaplega ólíkt því
sem áður var talið en fyrir svo
sem aldarfjórðungi hafi verið
talið að getuleysi væri í 90%
tilfella andlegt vandamál. Þor-
steinn segir engan lækni hugsa
á þeim nótum í dag þótt and-
legt álag geti vissulega haft
Búist ekki endilega við hinu
versta. Þótt getuleysis verði
vart er ákaflega ólíklegt að
eiginmaðurinn hafi misst
áhuga á konu sinni eða að um
óyfirstíganlegan vanda sé að
ræða. Rannsóknir sýna að í
langflestum tilfellum stafar
vanlíðanin af öðru en óham-
ingju í hjónabandi og utanað-
komandi erfiðleika tekst flest-
um hjónum að yfirstíga í sam-
einingu.
Það er enginn sekur. Farið
ekki undir eins að velta fyrir
ykkur hvað það sé sem þið
gerið rangt eða hvort eitthvað
sem þið segið geti hellt olíu á
eld. Sektarkennd annars hvors
eða beggja hindrar ykkur í að
takast á við vandann. Reynið
heldur að styðja hvort annað
og verið hreinskilin í stað þess
að láta einhver orð ósögð af
misskilinni tillitsemi.
Njótið samverunnar. Munið
að hægt er að njóta kynlífs á
marga vegu. Samfarir eru ekki
nauðsynlegar til að veita mak-
anum ánægju. Hægt er að
njóta mikillar kynrænnar
vellíðunar án fullnægingar.
Hrósið makanum. Gefið
honum til kynna á allan hátt
að þið metið hann og væntum-
þykjan sé söm og áður ef ekki
meiri og þetta á við um bæði
hjónin. Karlmenn átta sig
nefnilega oft ekki á því að
margar konur upplifa getu-
leysi þeirra sem höfnun og
trúa því að skortur þeirra á
aðdráttarafli sé frumorsökin.
Farið í frí saman. Oft getur
það að skipta um umhverfi og
njóta afslöppunar frá daglegu
amstri gert kraftaverk. Veljið
ykkur rómantískan stað og
gjarnan stað sem tengist góð-
um minningum ykkar beggja.
Hikið ekki við að leita
hjálpar. Algengt er að fólk
forðist í lengstu lög að leita
sér aðstoðar sérfræðinga.
Feimni, hræðsla og fordómar
halda aftur af mörgum en
sama almenna reglan gildir
um öll vandamál. Því lengur
sem beðið er með að leysa
þau því verri verða þau viður-
eignar.
I?
x
<A
2.
5'
(O
(D
o*
c
■«
</>
2.
5'
a>
t
</>
o.
o«
Helstu úrræði við getuleysi:
Testósteron inngjafir eða plástrar. Karlhormónið testósterón er nauðsynlegt til
að líkamstarfsemi karlmannsins virki sem skyldi og stundum minnkar framleiðsla
þess í líkama karlmanna eftir miðjan aldur. Konur á breytingaskeiði taka einnig
stundum estrógen (kvenhormón) til að bæta líðan sína.
Sprautur: Menn geta sprautað sig með prostaglandíni sem hefur þau áhrif að
slaka á mjúkum vöðvavefum í limnum og auka þannig blóðflæði til hans. Kostur-
inn við þessa meðferð er að stinningin virkar fullkomlega eðlileg. Aukaverkanir
eru fáar en í sumum tilfellum geta menn fundið fyrir sársauka og einstaka menn
upplifa óeðlilega langa stinningu.
Litlir stílar með prostaglandíni sem smeygt er inn í þvagrásina með mjóum þar
til gerðum leggjum. Aukaverkanir eru sjaldgæfar en þess eru dæmi að menn finni
fyrir verkjum, einkum við þvaglát.
Töflur: Viagra töflurnar hafa enn ekki verið leyfðar á Islandi nema gegn lyfseðli
frá læknum og eru þeir háðir samþykki lyfjaeftirlits. Kostir Viagra eru þeir að lyfið
veldur ekki stinningu sjálfkrafa. Það hefur hins vegar þau áhrif að blóðflæði til
limsins eykst og karlmaöurinn er líklegur til aö svara kynörvun. Aukaverkanir eru
fáar en örfáir kvarta undan þrálátum höfuðverkjum, meltingartruflunum og
vöðvaverkjum.