Vikan


Vikan - 12.04.1999, Síða 38

Vikan - 12.04.1999, Síða 38
Vikan Grœnt og vœnt Eiríkur St. Eiríksson Það hefur vaxið mðrgum garðeigendum í augum að halda vexti limgerða og ann- arra trjáa í skefjum með klippingum. Það er eins og það sé innbyggt í þjóðarsál- ina í þessu gróðurrýra landi að það sé glæpur gegn nátt- úrunni að láta sér detta í hug að hrófla við blessuðum trjáhríslunum. Þetta er auð- vitað algjör firra. Nauðsyn- legt er að klippa tré og grisja og ef garðeigendur treysta sér ekki til þess sjálfir þá ættu þeir að leita til fagmanna í garðyrkju- stétt. Einnig geta áhuga- samir garðeigendur sótt frekari fróðleik í ágæta bók um trjáklippingar sem Steinn Kárason, garðyrkjumeistari, sendi frá sér fyrir nokkrum árum. 38 Vikan Nú er runninn upp sá tími sem flestir nota til að klippa limgerði og grisja trjágróður í heima- görðum og sumarbú- staðalöndum. Það hefur lengi verið útbreiddur misskilningur að aðeins mætti klippa lauftré seinni hluta vetrar. Staðreynd- in er sú að flest lauftré má klippa hressilega árið um kring. Víðitegundir og aspir liggja einkar vel við höggi að þessu leyti því þessar tegundir er hægt að brytja niður hvenær ársins sem er og eng- um ætti að hrjósa hugur við því að klippa alaskavíði þannig að aðeins standi eftir 20-40 sentímetrar af stofnin- um. Kosturinn við trjáklipp- ingar seinni hluta vetrar, t.d. í mars og aprfl, er sá að auðveldara er að átta sig á formi og lögun gróðursins áður en hann laufgast. Þá er sól komin nokkuð hátt á loft og alltaf koma nokkrir góðviðrisdagar í mars og aprfl sem hægt er að nota til trjáklippinga. Svo vikið sé að klippingum á limgerðum þá eru þær oftast gerðar af hreinum fagurfræði- legum ástæðum en einnig eru limgerði klippt til þess að síð- ur sé hætta á að þau brotni niður undan snjóþyngslum. Almenna reglan er sú að klippa limgerðin í trapisulaga form. Reynt er að hafa neðri hluta limgerðisins ekki meira en 50-60 sentímetra á breidd og síðan er gerðið látið mjókka upp og er æskileg breidd að ofan 10-30 sentí- metrar. Alaskavíðir hentar illa í limgerði í litlum görðum, enda getur hann stundum vax- ið vel á annan metra yfir sum- arið. Brúnum og grænum ala- skavíði er ekki hægt að halda í skefjum með venjulegum trjá- klippum nema í fimm til sex ár í einu en þá þarf að grípa til góðrar viðarsagar og helst saga limgerðið verulega niður. Þetta má gera í hvaða mánuði ársins sem er. BIRKI MÁ KLIPPA ÁRIÐ UM KRING Aðrar limgerðisplöntur, s.s. birki, má ekki skerða eins mikið og víðinn. Birkið vex mun hægar en víðirinn og það er líka auðveldara að móta með klippingum. Lengi vel var það nokkurs konar skóg- gangssök að klippa birki að sumarlagi en helstu sérfræð- ingar í trjáklippingum hafa fyrir löngu sammælst um að kveða þær gróusögur í kútinn. Birkið er viðkvæmast á meðan laufgun stendur og ættu garð- eigendur að hafa það í huga. Stök birkitré má einnig grisja árið um kring en ef saga á stórar greinar af trjánum þá er réttast að gera það seinni hluta vetrar Hér sést hvern- ig saga.á grein- ar af birki Á þessum teikningum sést hvernig æskilegt er að forma limgerði og hvað ber að varast á meðan þau eru í dvala. Með- alstórar greinar má stýfa af hvenær sem er að því tilskildu að þær séu sagaðar af á réttum stað (sjá skýringarmynd). Ymsar grenitegundir henta ágætlega í limgerði og þær má ekki síður klippa að sumarlagi en á útmánuðum. Auðvelt er að forma grenilimgerði með klippingum. Skógartré eins og stafafura eiga tæpast erindi í litla garða en rétt er að vekja athygli á því að hægt er að stjórna vexti stafafurunnar með því að klippa á vaxtar- broddana. Þá má láta vaxa s.s. til hálfs áður en þeir eru klipptir um miðjuna. Með því er hægt að fá þéttari vöxt og minnka umfang trésins. GEITASKEGG í LIMGERÐI Víða á snjóþungum svæðum hafa garðeigendur gefist upp á hefðbundnum limgerðum. Þau brotna niður undan snjó- þunganum og verða sjaldan augnayndi. Á slíkum stöðum ætti fólk að huga að því að nota svokallaða hálfrunna sem limgerði. í þessum flokki eru tegundir eins og geita- skegg (jötunjurt) og reyni- blaðka. Þessa hálfrunna kelur yfirleitt niður að rót yfir vet- urinn en þeir vaxa af krafti upp frá rótinni að sumarlagi. Þannig getur geitaskeggið orðið rúmur metri að hæð og af því er mikil garðaprýði, enda eru blómin stór og til- komumikil. Nokkrir kvistir geta einnig gagnast í þessu sambandi en þá er rétt að hafa í huga að flestir kvistir blómg- ast mest á veturgamla sprota og það getur því dregið veru- lega úr blómgun ef þeir eru klipptir niður að vori. Und- antekningar eru þó V rósakvistur, - • dögglings- kvistur og víðikvistur. (Heimild: Gróður & garðcir 1. tbl. 1993 og 2. tbl. 1995) Rangt Rett 23E

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.