Vikan


Vikan - 12.04.1999, Qupperneq 51

Vikan - 12.04.1999, Qupperneq 51
eftir Richard Macker ekki, þá mun Graff fela lög- reglunni málið til rannsóknar. Hann mun einnig láta lögregl- una vita af öllum morðtilræð- unum. Ég fullvissa ykkur um að Graff er mjög samviskusamur maður og hann mun gæta hagsmuna minna, hélt hann áfram. Framundan yrðu erfið- ir tímar fyrir ykkur öll. Þið yrðuð í sviðsljósinu af hræði- legum ástæðum. Hinn seki mun hljóta makleg málagjöld. Ef hann aftur á móti gefur sig fram hér og nú mun hann fá að ganga héðan sem frjáls, en arflaus maður. Eins og ykkur hefur e.t.v. skilist gerði ég erfðaskrá í mörgum útgáfum. Það fer eftir því hvert ykkar myrti mig hvaða erfðaskrá verður notuð. Carl Vinger hall- aði sér aftur og kveiki sér í nýjum vindli. I langa stund mátti heyra saumnál detta. Arild Vinger rauf þögnina. Hann sagði lágri röddu: Segðu mér Graff, eru þessar aðgerðir löglegar? Lögmaðurinn lét spurning- una ekki koma sér úr jafn- vægi. Eins og ég hef áður sagt fer ég í einu og öllu eftir óskum umbjóðanda míns. Og hversu mörg myndbönd ætlar þú að neyða okkur til þess að horfa á áður en þess- um skrípaleik lýkur? Lögmaðurinn benti á stafla af númeruðum myndböndum. Það er undir ykkur komið. Möguleikarnir eru fleiri en einn og fleiri en tveir. Carl Vinger var alla tíð sérstaklega nákvæmur maður. Það var hann svo sannar- lega, samþykkti Arild Vinger. En ekkert okkar myrti hann. Þessi myndbandssýning er grófleg móðgun við okkur, börn hans og erfingja. Við lát- um ekki bjóða okkur þetta. Við munum... Hann þangaði í miðri setn- ingu og sneri sér í átt að borð- stofudyrunum. Þau hin heyrðu það sama og hann. Háan, hvellan hlátur sem kastaðist á veggina. Svo heyrðist einhver hrópa: Hér er ég, kæru börn! Joachim Vinger reis upp úr stólnum. Fæturnir skulfu und- ir honum. Heyrðuð þið þetta? Þetta er pabbi..! Hann kastaði sér á hurðina. Arild Vinger kom á hæla hon- um. Alveg vissi ég þetta, sagði hann. Pabbi er alls ekki dáinn. Hann setti þetta allt saman á svið til þess að hrella okkur. Auðvitað, hvíslaði Joachim Vinger. Við höfðum mátt segja okkur það. Guði sé lof fyrir að karlskrattinn er á lífi. Hann klappaði hálfbróður sínum á bakið og í fyrsta sinn þetta kvöldið brostu þeir til hvors annars. Þeir voru glaðir og reifir. Svo litu þeir í kring- um sig í borðstofunni en komu hvergi auga á pabba sinn. Hvar ertu pabbi, hrópaði Joachim Vinger. í því hljómaði hláturinn aft- ur í eyrum þeirra. Arild Vin- ger benti á stóran skáp sem stóð í einu horninu. Hláturinn kom þaðan. birtist andlit Carl Vinger aftur á skjánum. í þetta sinn skein sorg úr andliti hans. Nú vitum við hver er söku- dólgurinn. Það varst þú Bente sem myrtir mig. Og nú hefur þú komið upp um þig. Þú varst sú eina sem vissir að ég var dáinn. Hvar var gleðin í andliti þínu þegar þú heyrðir rödd mína. Það eina sem hægt var að lesa úr því var hræðsla og kvíði, vegna þess að þú vissir að leikurinn var tapaður. En þú ert þrátt fyrir allt dóttir mín og blóð er þykkara en vatn. Þess vegna mun ég standa við orð mín. Þú mátt fara héðan frjáls ferða þinna. En ekki fyrr en þú hefur skrif- að undir skjalið sem staðfestir að þú afsalir þér þínum hluta arfsins „af sérstökum ástæð- um“, eins og Graff orðar það í skjalinu. Það er það eina sem Nokkrum sekúndum síðar höfðu þeir opnað skápinn en eftirvænting þeirra breyttist fljótlega í vonbrigði. Þetta er segulbandstæki, sagði Joachim Vinger. Nú þoli ég þetta ekki öllu lengur. Graff lögmaður gekk til þeirra og sagði mildilega: Verið þið svo góðir að koma aftur inn í arinstofuna. Sýn- ingin er brátt á enda. Inni í arinstofunni sat Bente Vinger Dale, kríthvít í andliti. Graff lét nýja spólu í mynd- bandstækið. Andartaki síðar stendur þér til boða. Ef þú skrifar ekki undir skjalið inn- an fimm mínútna fer málið til lögreglunnar og þú verður op- inberlega ákærð fyrir morð. Valið er þitt. Bente Vinger Dale faldið andlitið í höndum sér. Svo stóð hún snögglega á fætur, horfði á Graff, gekk að borð- inu og skrifaði undir skjalið. Svo flýtti hún sér út án þess að líta um öxl. Hálfbræðurnir sátu og störðu fram fyrir sig eins og þeir hefðu enn ekki áttað sig á því sem gerst hafði. Graff setti nýja spólu í myndbandstækið og enn einu sinni birtist andlit Carl Vinger á skjánum. Kæru synir, sagði hann vin- gjarnlega. Mér þykir leitt að hafa orðið að leggja þetta á ykkur. Áður en ég kveð ykkur fyrir fullt og allt langar mig til þess að skála við ykkur í kampavíni. Edna, þú mátt koma með glösin. Ráðskonan birtist með flösku og tvö glös á silfurfati. Hún hellti í glösin og dró sig síðan í hlé. Carl Vinger lyfti glasinu. Hálfbræðurnir gerðu slíkt hið sama, með tárvot augu. Skál drengir mínir. Megi Guð og gæfan fylgja ykkur. Gamli maðurinn tæmdi glasið og lagði það síðan frá sér. Litmyndin á skjánum breyttist í bláan bjarma og brátt var skjárinn auður. Vikan 51
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.