Vikan


Vikan - 07.09.1999, Side 10

Vikan - 07.09.1999, Side 10
Texti: Steingerður Steinarsdóttir Myndir: Baldur Bragason uðrún Lárus- dóttir er ekki göm- ul. Hún verður nítján ára í desember en samt þakkar þessi stúlka sín- um sæla fyrir að hún skuli vera á lífi og gleðst yfir hverjum nýjum degi. Guð- rún lenti í alvarlegu vinnu- slysi á lyftara þegar hún vann hjá Hagkaupum fyrir nokkrum árum og var hætt komin. Nú í vor fór bíll hennar út af örstutt frá Borgarnesi og mátti teljast kraftaverk að hún slapp lítið meidd úr þeim hildarleik. Um tildrög slyssins á lager Hagkaupsverslunarinnar segir Guðrún: „Ég ætlaði að taka mér far með lyftaranum og stóð milli stýrishúss lyftarans og gálgans. Drengurinn sem keyrði tók í ranga stöng svo gálginn færðist aftur og kramdi mig. Ég heyrði hvell þegar mjaðmagrindin brotnaði og ég missti meðvitund af sárs- auka. Þegar ég rank- aði við mér lá ég á hnjánum á gólfinu. Sársaukinn var mikill og ég varð mjög hrædd, ég hélt ég myndi aldrei aftur stíga í fæturna. Ég þurfti ekki að fara í uppskurð, brot- ið var það beint en ef blætt hefði inn á brot- ið væri ég ekki lifandi í dag. Ég vissi reyndar ekki fyrr en læknarnir sögðu mér það seinna hversu hætt ég var komin en þegar sjúkraflutningamenn- irnir óku mér inn á gjörgæsludeild var ég dofin af morfíni. Eitt- hvað fékk mig samt til að spyrja: „Er ég að deyja? En að sjálfsögðu segja þeir manni það ekki svo þeir svöruðu: Nei, nei það verður allt í lagi með þig.“ Ég lá í fjórtán daga á spít- alanum og einstaklega góð- ur bróðir minn, Kristján kom og heimsótti mig á hverjum degi og reyndist mér mikil stoð og stytta. Ég met enn við hann hversu frábærlega vel hann reyndist mér þennan tíma. Eftir slysið þjáist ég af bakverkjum og verkjum í rófubeini. Ég má ekki vinna mikið eða reyna á mig á annan hátt án þess að fá verki. Ef ég vinn lengi fæ ég einnig í bakið. Ég er í raun öryrki eftir þetta.“

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.