Vikan


Vikan - 07.09.1999, Page 12

Vikan - 07.09.1999, Page 12
 Eg var öll tand- urhrein sem er ákaflega undar- legt þvi bílinn lá a hlið ofan í skurði og var eitt moldarflag. Ég verð stundum vör við eitthvað. Ég finn hluti svo- lítið á mér og tveir bræður mínir eru skyggnir. Ég er mikið að hugsa um að fara til miðils því mig langar að vita nákvæmlega hvað gerð- ist í slysinu. Einnig vil ég gjarnan vita hvort þessi til- finning mín að vakað hafi verið yfir mér sé rétt.“ Að hafa tvisvar staðið frammi fyrir dauðanum hlýtur að hafa mikil áhrif á einstaklinginn ekki hvað síst þegar um hraustan ungling er að ræða enda fæstir sem leiða hugann að hverfulleik lífisins á þeim aldri. Hvernig augum lítur Guðrún lífið og tilveruna eftir þessa reynslu sína? „Ég hef talsvert aðra lífs- sýn en ég hafði. Ég er fyrst og fremst þakklát fyrir að vera á lífi. Sérstaklega eftir fyrra slysið því þá munaði svo litlu. Ég met einnig nfjölskylduna meira en áður og minnist þess með mikilli hlýju að mamma, Baldur bróðir minn, Óli Sævar kærasti minn og pabbi hans biðu mín öll á sjúkrahúsinu á Akranesi þegar ég kom þangað eftir bílslysið. Það þótti óskaplega gott. En ég ætla að vona að nú sé þetta búið og ég þurfi ekki að lenda í fleiri óhöppum. Ég hef stundum gert að gamni mínu og spurt: „Hvað næst?“ eða sagt ættingjum að ef ég eigi eftir að deyja þá fari ég með miklum hvelli og glæsibrag.“ yggisbeltinu. í raun er það alveg undarlegt að mér hafi tekist það með hand- legginn úr lið. Bíllinn var al- gjörlega ónýtur og sennilega hefur hann farið eina veltu áður en hann lenti í skurðin- um. Miðað við hvernig hann leit út er kraftaverk að ég meiddist ekki meira. Ég fer ekki ofan af því að einhver var með mér þetta kvöld og hélt yfir mér verndarhendi. Svo mikið er víst að ég er ekki feig því ég hef verið einstaklega heppin.“ og hún skildi við. Ég fór fram og sá mömmu standa í svaladyr- unum heima. Þetta var snemma að morgni og mamma spurði mig hvort ég vildi ekki sofa lengur en ég sneri við og fór grátandi inn í herbergið mitt. Mamma vildi vita hvað væri að og ég sagði henni að amma væri dáin. Mamma var þá nýbúin að fá fréttirnar en ætlaði ekki að segja mér þær strax. Það var eins og amma kæmi til að kveðja mig þessa nótt. Einhver vakir yfir mér Guðrún þakkar yfirnátt- úrulegum öflum björgun sína en hverjir eru verndar- englarnir sem vaka yfir henni? „Það er annaðhvort amma eða systir hennar. Ég held helst að það sé amma. Þegar hún dó árið 1991 dreymdi mig nákvæmlega hvernig dauða hennar bar að og ég vaknaði upp á sömu stundu 12 Vikan

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.