Vikan - 07.09.1999, Side 16
Samantekt: Margrét V. Helgadóttir
Vinkonan
vinsæla
Jennifer Aniston
Sjónvarpsþættirnir um vinina skemmtilegu eöa
„Friends" njóta mikilla vinsælda. Leikararnir
sex, sem mynda þennan ágæta vinahóp, eru allir
meira og minna hlaðnir verkefnum samhliða
sjónvarpsþáttagerðinni. Jennifer Aniston, sem
er í hlutverki Rachel, virðist njóta mestra
vinsælda leikaranna þegar Ijósmyndarar og
fjölmiðlafólk eru annars vegar. Ein megin-
skýringin á miklum vinsældum Jennifer að
undanförnu gæti verið ástarsamband hennar
við kyntröllið sjálft, Brad Pitt.
ennifer Aniston var
óþekkt andlit áður en
hún tók að sér að leika
Rachel í hópi sexmenning-
anna vinsælu. Hún var engu
að síður töluvert reynd leik-
kona áður en hún fékk hlut-
verkið í Vinum.
Jennifer Aniston er fædd í
Kaliforníu þann 11. febrúar
1969 en fluttist ung að árum
ásamt fjölskyldu sinni til New
York þegar faðir hennar, leik-
arinn, John Aniston, fékk
hlutverk í sápuóperu. Foreldr-
ar hennar skildu þegar hún
var barn að aldri. Umhverfið
Vinirnir og turtildúfurnar
Rachel og Ross gegna niikil-
vægu hlutverki í vinahópnum.
16 Vika n
sem hún ólst upp í var allt
tengt leiklist á einn eða annan
hátt og því varð enginn undr-
andi þegar hún hóf nám við
Rudolf Steiner School Drama
Club. Jennifer segir sjálf að
hana hafi alltaf langað til að
verða leikkona. Reynsla henn-
ar úr leiklistarskólanum hafi
lagt grunninn að leikferlinum.
Hún útskrifaðist úr skólanum
árið 1987 og fékk fljótlega
hlutverk á Broadway. Fyrsta
hlutverkið í sjónvarpsþætti var
í þáttum sem báru nafnið
Molloy. Jennfer fékk smáhlut-
verk í þáttum og kvikmyndum
og sem dæmi lék hún í Quant-
um Leap sem voru sýndir í
nokkur ár hérlendis.
Hamingjusöm í
Hollywood
Samkeppnin í Hollywood
er hörð og menn leggja mikið
á sig til að fá rétta hlutverkið.
Jennifer þótti of feit að mati
Hollywood leikstjóra og var
send heim með þau fyrirmæii
að grenna sig ef hún vildi
verða stjarna. Jennifer var
ekki á sama máli en hún vó
rúmlega sextíu kfló. Engu að
síður ætlaði hún sér að næla í
almennileg hlutverk og því
fuku tæp fimmtán kíló á einu
ári. Hún þurfti að hafa heil-
mikið fyrir því að léttast og
hafði sérfræðinga sér til að-
stoðar. Hún æfði undir stjórn
einkaþjálfara einu sinni á dag
og var með næringarráðgjafa.
Jennifer getur engan veginn
litið á sjálfa sig sem kyntákn.
I „í hvert skipti sem ég sé sjálfa
Jennifer ásanit sínum
heittelskaða, Brad Pitt.
Vinahópurinn stendur þétt
saman í blíðu og stríðu bæði í
upptökusalnum og á öðrunr
stundum.
mig á forsíðu tímarits eða í
sjónvarpsþætti er ég mikið
förðuð og flott greidd. Mér
finnst þetta ekki vera ég sjálf.
Ég heyri oft að ég sé með svo
fallegt hár. Það er kannski fal-
legt núna en það hefur ekki
alltaf verið svona. Þegar ég
var yngri var það mjög liðað
og stóð út í allar áttir. Á tíma-
bili reyndi ég að herma eftir
hárgreiðslu annarra
leikkvenna en það var hræði-
legt. Maður á aldrei að reyna
að herma eftir stfl annarra."
Þegar vigtin stóð í réttri tölu
voru Jennifer allir vegir færir
og hlutverk Rachel barst upp í
hendurnar á henni. Eftir að
Vinir urðu vinsælir fékk
Jennifer betri kvikmyndahlut-
verk og hefur hún leikið í
hverri kvikmyndinni á fætur
annarri. Þar má nefna Object
of My Affection, She’s the one
og Picture perfect.
Fljótlega eftir að sýningar á
Vinum hófust kom í ljós að
þarna var fundin formúlan að
fullkomnum þætti og þættirnir
nutu strax gífurlegra vinsælda.
í haust hefjast tökur á þátt-
unum í sjötta sinn og hafa
leikararnir sex sammælst um
að halda áfram svo framarlega
sem allir hinir halda áfram í
þáttunum.
Ástamál Jennifer hafa verið
mikið í sviðsljósinu allt frá því
hún varð þekkt andlit í
Hollywood. Á tímabili var
Jennifer með Adam Durirz,
söngvaranum úr Counting
Crowds. Eftir að hafa kynnst
Tate Donovan við upptökur á
þáttum um Vinina byrjuðu
þau að rugla saman reitum
sínum. Sambandið entist ekki
lengi. Tate Donovan er ís-
lenskum sjónvarpsáhorfend-
um góðkunnur því hann leikur
prestinn í þáttunum Þrenning-
in, sem sýndur er í sjónvarp-
inu um þessar mundir.
Jennifer gerir greinilega