Vikan


Vikan - 07.09.1999, Síða 20

Vikan - 07.09.1999, Síða 20
Texti og myndir: Adda Steina Björnsdóttir heiminn í höndunum lukunum Dagurinn var 26. nóvember árið 1990. Staðurinnvar hin helga borg Varanasi við Ganges fljót á Indlandi. Var- anasi er einn þeirra staða sem gera tilkall til þess að vera nafli alheimsins. Þangað hafa trúaðir hindúar komið til að deyja í ár- þúsundir og Búdda sjálfur fékk uppljómun undir tré ekki langt þar frá. Loftið er þrungið þeim krafti sem maður finnur á stöðum þar sem stanslaust er beðið til æðri máttar og þrungið ýmsu öðru líka: lykt af reykelsum, brenndu holdi frá líkbrennslum, kúamykju, svita, raka og kryddi. Það var stanslaus ómur í lofti af söngli, bjöllum, bflaflautum og reið- hjólaflauti frá þríhjóla rikksjá leigubflunum sem oft voru fótstig- in upp á gamla mátann. Nafli al- heimsins og þeir sem þar dvelja hafa heiminn - eða það sem máli skiptir af heiminum - í höndum sér. Við hjónin bjuggum á litlu hóteli nálægt fljótinu. Þetta var ekki ódýrasta gisting sem völ var á; ekki farfuglaheimil eða subbulegt flóabæli með gægjugötum á veggjunum og blóðslettum upp um alla veggi, slettum sem koma þegar ferðalangar dreþa flugur og flær en aðeins of seint. Við höfðum oft gist á þannig hótelum en þetta var ekki í eitt af þeim skiþtum. í þetta sinn vorum við fréttaritarar Ríkisútvarpsins, Stöðvar tvö og Bylgjunnar á ferð um Asíu og bárum ábyrgð á dýr- um mynd- og hljóðupptökutækj- um. Þess vegna völdum við jafn- an miðstéttarhótel af þeirri gerð sem yfirleitt voru sótt af indversk- um kaupsýslumönnum og lágt settum embættismönnum, hótel þar sem herbergin höfðu salerni með gati í gólfi og fötu til að sturta vatni yfir sig; herbergi þar sem rafmagnið virkaði. Þennan tiltekna morgun var ég veik. Við húktum því inni, skrifuð- um pistla og reyndum að kokka upp efni sem gæti geðjast ís- lenskum hlustendum og áhorf- endum. Upp úr hádegi fórum við að heyra læti á ganginum fyrir utan herbergið, hlaup og hróp en þó ekki svo mikil að okkur þætti ástæða til að kanna málið. Um eittleytið vorum við orðin svöng og ákváðum að fara út í matarleit. Þegar við opnuðum hurðina vall þéttur reykur inn í herbergið. Það var kviknað í á hæðinni. Við snérum við, lokuð- um hurðinni og gripum í snarhasti farangurinn og tækin dýru. Svo opnuðum við aftur og brutumst fram eftir ganginum og niður stig- ann í afgreiðsluna. Á leiðinni tók ég eftir því að eldurinn var mest- ur í herberginu á móti okkar her- bergi. Enginn skipti sér af okkur. Hótelstjórinn var að reyna að hringja á slökkviliðið en náði greinilega ekki sambandi. Hann skellti niður símanum, hljóp út og veifaði á rikksjá. Gamall maður kom hjólandi í rikksjá og tók hann upp í. Enginn á götunni virtist kippa sér upp við lætin eða reykj- arlyktina úr húsinu. Hnetusalinn við innganginn leit ekki upp, helg- ar kýr lágu áfram og jórtruðu á götunni fyrir framan hótelið og rakarar skófu skeggbrodda af viðskiptavinum upp á gangstétt- inni. Starfsmenn hóteisins voru á þönum með vatnsfötur og klúta og við fengum okkur sæti niðri til að sjá hverju fram yndi. Korteri síðar kom slökkviliðið og með þeim hóteleigandinn. Eitthvað gekk þeim illa að koma bílnum að. Fyrst þurfti að semja við hnetusalann og svo þurfti að stugga við kúnum. Hið sfðar- nefnda gekk ekki áreynslulaust. Ekki má sýna helgum kúm dóna- skap og þær sinntu lítið kurteis- legu þoti brunaliðsins. Myndar- legur vatnabuffaló bættist í hóþ- inn gerði sig líklegan til að leggja - allt eftir því hvernig á það er litið. til atlögu við brunabílinn en var ýtt burt á síðustu stundu. Að lok- um tókst að leggja bílnum og þegar gild vatnsslangan var dreg- in upp að hótelinu sáu fulltrúar Ríkisútvarpsins, Stöðvar tvö og Bylgjunnar þann kost vænstan að koma dýrum tækjum út áður en allt flyti í vatni. Við færðum okkur út á götu og tókum okkur stöðu milli rakaranna og hnetusalans. Þá skynjaði hótelstjórinn að eitt- hvað amaði að hjá gestum hans. Hann kom hlaupandi á eftir okkur og spurði með undrunarhreim: Eru þið að bóka ykkur út? Fulltrúum RÚV, Stöðvartvö og Bylgjunnar varð fátt um svör í fyrstu en sögðust loks ætla að bíða átekta og sjá hvort eitthvert hótel yrði eftir til að gista á. Hót- elstjórinn tók skýringuna gilda og bauð okkur að bíða inni í mat- salnum, því þar væri enginn eld- ur. Hótelið brann ekki til kaldra kola, við gistum þar aftur næstu nótt en fengum nýtt herbergi þar sem hið gamla bauð heim hættu á reykeitrun. Hnetusalinn fór aftur á sinn stað, rakararnir héldu áfram starfi sfnu á götunni og innan skamms voru nokkrar heilagar kýr búnar að leggja sig fyrir framan hótelið að nýju. 20 Vikan

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.