Vikan


Vikan - 07.09.1999, Page 52

Vikan - 07.09.1999, Page 52
Molarnir: Það er í raun viðeigandi að þessar hversdagshetjur hafi eitt sinn ver- ið fastagestir heima í stofu - og staðreyndin er að stór hluti leikar- anna hóf feril sinn í sjónvarpi - og eru margir þar að einhverju leyti enn. . Greg Kinnear var þekktur sem líflegur þáttastjórnandi blaðursúpunn- ar „Talk Soup“ áður en Hollywood bankaði upp á. Ben Stiller vakti fyrst athygli í hinum margfrægu gamanþáttum „Sat- urday Night Life“, byrjaði svo með eigin þátt „The Ben Stiller Show“ og þar var þá óþekkt leikkona, Janeane Garofalo, einmitt fastagest- ur, svo sló hún í gegn í fyrstu mynd Stillers, Reality Bites - spreytti sig síðar í „Saturday Night Life“ eins og Stiller auk þess sem hún heillaði áhorfendur MTV á milli myndbanda. William H. Macy þekkja örugglega allir í sjón - ástæðan: Dr. David Morgenstern, yfirlæknir á Bráðavaktinni. Hank Azaria þekkja aftur á móti fæstir í sjón en röddin, eða raddirnar, er með þeim þekktari í heiminum, enda koma búðarlokan Apu, barþjónninn Moe, lögreglu- stjórinn Wiggum, erkikrimminn Snake, Dr. Nick Riviera og fleiri íbúar Springfield úr barka Azaria. Innan um þessa atvinnuleikara eru í minni hlutverkum hasarleikstjór- inn Michael Bay (Armageddon, The Rock) og músíkantinn Tom Waits. Geoffrey Rush) sökum þess að helsta ofurhetja borgar- innar, Captain Amazing (Greg Kinnear) er í óvina- höndum. Þó er ástæða hetjanna okkar fyrir því að berjast við illmenni borgarinnar ekki aðeins réttlætiskenndin. Þær vilja einnig komast í fjöl- miðlana og vekja athygli á sér, enda var Captain Amazing enginn fátækling- ur, með umboðsmann, styrktarsamning við Nike og Budweiser auglýsingu á skikkjunni. En að öllum lík- indum mun þó samviskan hafa betur að lokum enda vilja þau öll fyrst og fremst bara bjarga heiminum - á meðan Cassanova Franken- stein vill stjórna heiminn að illmenna sið. En hvað eru allir þessir leikarar að vilja? Það sem vekur nefnilega at- hygli er að þessar annars flokks ofurhetjur eru leiknar af nokkrum fyrsta llokks leikurum. Geoffrey Rush hefur tekið við af Gary Old- man og leikur nú flest öll ill- menni í kvikmyndum, nú síðast í Elizabeth og Vesa- Mystery Men heitir hún nýjasta ofur- hetjumyndin sem kemur frá draumasmiðj- unni. Það sem gerir ofur- hetjur þessarar myndar sér- stakar (eða í raun ekki sér- stakar) er að þær hafa í raun enga yfirnáttúrulega krafta. Til að mynda leikur Janeane Garofalo keiluspilarann The Bowler og er ekki einu sinni góð í keilu - aftur á móti er höfuð föður hennar inni í keilunni - og þó hann sé dauður nöldrar hann enn! Þá er það William H. Macy sem leikur snjómoksturs- manninn Shoveler hvers „ofur“kraftar eru að moka snjó, Hank Azaria sem Blái Raja og Kel Mitchell sem ósýnilegi drengurinn - sem að vísu er bara ósýnilegur ef enginn horfir á hann. For- ingi þeirra er svo Mr. Furi- ous, leikinn af Ben Stiller - sem er reiður. En það er engu að síður ljóst að þessar hversdagslegu ofurhetjur munu þó þurfa að bjarga Meistaraborg frá hinum illa Cassanova Frankenstein (óskarsverðlaunahafinn lingunum. Hank Azaria hefur stolið senunni í litlum hlutverkum í myndum á borð við The Birdcage, Janeane Garofalo sló í gegn í The Truth About Cats and Dogs og hefur síðan oft á tíðum verið það besta við allt of margar lélegar myndir - undantekning á því er þó hin kol- svarta Clay Pige- ons og vonandi þessi. Vinur hennar Ben Stiller var að elta hana Maríu hérna í fyrrasumar en hafði áður vakið athygli fyrir hina sjaldséðu perlu Zero Effect og leikstjórn sína á Reality Bites og The Cable Guy. Greg Kinnear vakti upphaf- lega athygli í Sabrina og fékk svo óskarstilnefningu fyrir As Good As It Gets. Þá er það William H. Macy sem fékk sína óskarstilnefningu fyrir Fargo og hefur síðan leikið í myndum á borð við A Civil Action og Pleasant- ville. Ástæðu þess að hann tók að sér hlutverkið segir hann vera þá að hann komst að því að leikstjórinn, Kinka Usher (sem hér leikstýrir sinni fyrstu mynd), hafi gert allar þær auglýsingar sem hann hafi hlegið að. Auk þeirra sem hér hafa verið nefndir eru leikarar á borð við þokkadísirnar Lenu Olin hina sænsku og Claire Forl- ani, samanþjappaði Bretinn Eddie Izzard, indíáninn Wes Studi, sem leikið hefur sjálf- an Geronimo og Paul Reu- bens, betur þekktur sem Pee-Wee Herman. Sem sagt fyrsta flokks leikarar, annars flokks ofurhetjur - en í hvaða flokki verður mynd- in? Vikan

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.