Vikan - 28.09.1999, Side 4
v^fflesandi...
'ikið var ég inni-
lega sammála
skólastjóra Breið-
holtsskóla um
daginn þegar
hann var spurður
'm hina miklu notkun nemenda á ung-
'ngsaldri á GSM-símum.
ionum fannst þetta ekkert vandamál,
<að vœri bara tímanna tákn og ekkert við
<ví að gera annað en að kenna krökkun-
m að nota þessa síma á réttan hátt,
þ.e.a.s. á réttum stað og tíma en ekki inni í kennslustundum. Far-
símar eru œtlaðir til að létta okkur lífið og það er ekkert að því.
Eg trúi því að vísu ekki að foreldrar séu nokkru nœr um hvar
krakkarnir haldi sig þótt þeir séu með símann í vasanum, né
heldur að það gangi eitthvað betur að ala þá upp. En með réttri
notkun er vel hœgt að halda notalegu sambandi við krakkana,
vini og vandamenn og koma áríðandi skilaboðum á framfœri.
Ég vona líka svo sannarlega að skólstjóra Breiðholtsskóla takist
að kenna nemendum sínum að umgangast þessi tœki á skynsam-
legri hátt en margir fullorðnir gera. Þessir símar eru vel útbúin
tœki, með símnúmerabirti og takka til að slökka á hljóðinu og
það er algert lágmark að fólk lœri að nota þessa möguleika.
Ég geng sjálfmeð einn slíkan á mér afillri nauðsyn og það
sama má segja um eiginmanninn. Aftveim vondum er hans sími
þó stórum meiri friðarspillir, enda heféggœtt þess vandlega að
aðeins valin prúðmenni hafi mitt símanúmer, en hann er svo
óheppinn að síminn er eins konar neyðartœki við vinnuna. En
hvað sem nytsemi þessa tækis líður finnst mér ömurlegt að horfa
upp á fullorðið fólk sem lœtur eins og GSM-síminn sé Guð þess.
Sumir eru svo gersamlega blindir í GSM-notkuninni að þeir
valda öðrum óþægilegum truflunum og stundum eru þeir bein-
línis hœttulegir umhverfi sínu.
Hver kannast til dœmis ekki við alla sauðina í umferðinni sem
aka á löturhraða eða í stórsvigi eftir götunum afþví að þeir eru
svo uppteknir afsímanum að þeir vita ekkert hvað
þeir eru að gera?
Síðast í gœr horfði ég konu aka upp á umferðareyju og mér brá
stórlega því ég hélt að hún vœri að fá aðsvifþví höfuðið á henni
hallaðist skyndilega út á hlið. - En nei, hún var bara með símann
undir kinn og réði ekki betur en þetta við aðstæðurnar.
Fyrir skömmu horfði ég líka á stóran, rauðan jeppa sem ók á
undan mér suður Vesturlandsveg vera nœstum kominn út í móa
meðan eigandinn leitaði með hausinn í mœlaborðshœð að sím-
anum sem greinilega var að hringja. Það munaði ekki hárs-
breidd að stórslys yrði þar! Því miður blasir við sú sorglega stað-
reynd að bílstjórar með GSM-símarnir eru orðnir hreinasta
plága á götunum og af þeim stafar mikil hœtta.
I mörgum löndum er búið að banna notkun farsíma undir stýri
nema notaður sé handfrjáls búnaður. Hvers vegna er það ekki
bannað hér? Reyndar hefur verið lagt fyrir Alþingi frumvarp
þess efnis, en einhverjir (vœntanlega símglaðir) þingmenn
svœfðu það. 1 umferðarlögum segir að menn eigi að hafa fulla
athygli við aksturinn, en það getur enginn meðan hann talar í
símann.
Mér finnst það vera réttur minn í umferðinni að aðrir bílstjórar
séu að hugsa um það sem þeir eru að gera. Er það til ofmikils
mœlst að menn leyfi bara símanum að hringja, aki lít í nœsta út-
skot eða bíði með að hringja til baka þangað til á áfangastað er
komið?
1 öllum guðanna bœnum, hœttið að tala í símann undir stýri!
Nú er komin ný Vika og þeim sem hafa hana í höndunum ætti
ekki að leiðast á nœstunni. Hér er að finna viðtöl við spennandi
fólk, skemmtUega smásögu, framhaldssögu, tvœr lífsreynslusög-
ur og Nýjan stíl. Þá er að finna í blaðinu greinar um einelti, nýja
starfið, danska prinsinn, offitu, haustið í garðinu ogfleira. Mat-
urinn er á sínum stað, sömuleiðis pósturinn, slúðrið, krossgát-
urnar, föndrið og ekki missa af. Það er eins gott að tefja ekki
lengur, heldur byrja að lesa.
Njóttu Vikunnar!
Ritstjóri Sigríður Arnardóttir Útgefandi Fróði
Seljavegur 2, Sími: 515 5500 Fax: 515 5599
Stjórnarformaður Magnús Hreggviðsson Aðal-
ritstjóri Steinar J. Lúðvíksson Sími: 515 5515
Framkvæmdarstjóri Halldóra Viktorsdóttir Sími: 515
5512 Ritstjórafulltrúi Jóhanna Harðardóttir Sími: 515
5582 Vikan@frodi.is Blaðamenn: Steingerður
Steinarsdóttir, Hrund Hauksdóttir og Margrét V.
Helgadóttir Auglýsingastjórar Kristín Guðmunds-
dóttir og Anna B. Þorsteinsdóttir Vikanaugl@frodi.is
Grafískur hönnuður Guðmundur Ragnar Stein-
grímsson Verð í lausasölu Kr. 459,-. Verð i áskrift ef
greitt er með greiðslukorti Kr. 344,-. Pr eintak . Ef
greitt er með gíróseðli Kr. 389,-. Pr. eintak.
Litgreining og myndvinnsla Fróði Unnið í
Prentsmiðjunni Odda hf. Öll réttindi áskilin varðandi
efni og myndir
Áskriftarsími:
515 5555
Steingerður Hrund Margrét V. Ingunn B. Anna B.
Steinars- Hauksdóttir Helgadóttir Sigurjóns- Þorsteins-
dóttir blaðamaður blaðamaður dóttir dóttir
blaðamaður auglýsinga- auglýsinga-
stjóri stjóri
Guðmundur
Ragnar
Steingrímsson
Grafískur
hönnuður