Vikan


Vikan - 28.09.1999, Blaðsíða 63

Vikan - 28.09.1999, Blaðsíða 63
... Mall of America. Það er þess virði að heimsækja þessa risavöxnu og heimsþekktu verslunarsamstæðu þó ekki væri nema til að skoða mannvirkið sem slíkt. Þar eru rúmlega 500 verslanir, fjöldi veitingahúsa, næturklúbba og kvikmyndahúsa. Planet Hollywood ert.d. í byggingunni. f Mall of America er líka að finna stóran skemmtigarð fyrir börn með rússíbana og öllu tilheyrandi. Það er hægt að kaupa allt sem hugurinn girnist innan veggja þessarar hallar Mammons. Ótrúlegan fjölda sérverslana er þar að finna, ásamt risum á borð við Bloomingdale's, Nordstrom, Macy's og Sears. Það er ráðlegt að fara vel úthvíldur og í mjög góðum gönguskóm ef ætlunin er að eyða deginum í Mall of America. Stærð byggingarinnar er yfirgengileg og mannfjöldinn er óskap- legur. Það getur tekið bæði á taugarnar og þrekið að vera þarna á rölti. Einnig skyldi fólk hafa á bak við eyrað að verslanir í Mall of America eru með hátt verðlag að mati Minneapolisbúa og því verður heldur ekki neitað að fyrirbærið hefur yfirbragð „túristagildru." Það er skynsamlegra að versla annars stað- ar og líka mun skemmtilegra. ... The Loon Café. Þetta er mjög vinsæll staður meðal borgarbúa og orðspor hans hefur borist víða um Bandaríkin. Fólk hittist gjarnan á The Loon Café eftir vinnu til þess að fá sér hressandi drykk eða til að snæða einhvern af hinum fjölmörgu réttum sem eru á matseðlinum. Chíli sem þar fæst er margverðlaunað og einnig mælum við með súpunni sem er eitt af aðalsmerkjum staðarins, villihrísgrjónasúpu. Hún er afar bragðgóð og er eins konar „þjóðarréttur" Minnesotabúa. Einnig er hægt að fá úrval af pizzum, mexíkóskum mat og girni- legum salötum. Það er heilmikið fjör á The Loon Café þegar líða tekur á kvöldin og þar er opið til eitt eftir miðnætti eins og tíðkast á öllum vínveitingahúsum í Minneapolis. íslendingar sem eru vanir öllu lengri opnunartíma skemmtistaða skyldu hafa það í huga og fara fyrr en ella út að skemmta sér. The Loon Café er á 500 First Avenue North. banks — ... Bank's. Þessi óhefðbundna og svolítið skrýtna verslun lætur ekki mikið yfir sér og fer oftast fram hjá ferðamönnum sem heim- sækja borgina og eru í þeirri góðu trú að Mall of America sé besti kosturinn til innkaupa. Það er nú öðru nær. Bank's er frábær kostur fyrir þá sem hafa gaman af að gramsa og leita uppi frábær kjör á merkjavöru eða eru einfaldlega að leita sér að flippuðum fötum eða hlutum fyrir heimilið. Bank's er sennilega eitt af best geymdu leyndarmálum Minneapolis en þar eru meiriháttar tilboð í gangi. Stund- um taka þeir sig til og eru með 90% afslátt af t.d. skóm. Þá mæta konur í hrönn- um og fylla heilu innkaupakörfurnar af skóm og þeir eru ekkert slor. Sumar kauþa 40-50 pör enda er erfitt að standast freistinguna þegar parið af Etienne Aigner, Kenneth Cole eða Bruno Magli fæst á 700 krónur, íslenskar. Eflaust geta ekki allir hugsað sér að versla í svona búð þar sem skipulQniA Q -- mjög fátækt fólk á sveimi eftir ódýrum nauðsynji Amtsbókasafnið á Akureyri svona verslunarmáti getur verið mjög skemmtile kaup með smávegis þolinmæði og fyrirhöfn. 03 591 168
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.