Vikan


Vikan - 28.09.1999, Blaðsíða 52

Vikan - 28.09.1999, Blaðsíða 52
Texti: Margrét V. Helgadóttir Á haustin fyllast heilsuræktarstöðvarnar af fólki sem vill komast í gott líkamlegt form. Heilsuræktarátakið rjátlar af mörgum eftir nokkrar vikur og í staðinn fyrir vellíðan gýs upp sektarkennd yfir því að standa sig ekki í líkamsræktinni. Ef þú ert á leiðinni í ræktina, mundu þá að hugurinn og innri styrkur skiptir gífurlega miklu máli ef árangur á að nást. \ Fljótvirkasta og áhrifamesta leið- in til að takast á við líkama sinn er að vera and- lega tilbúin og líta á líkams- rækt með jákvæðu hugar- fari. Það segir sig sjálft að sá sem hugsar með sér: „Oh, ég neyðist til að fara í lík- amsrækt í kvöld" er ekki til stórræðanna líklegur. Margir gera líka þau rnistök að vera sífellt að bera sig saman við aðra, t.d. vinkonur sínar. Mundu að þú getur einungis borið þig og þinn árangur saman við sjálfa þig. Þótt að Stína eða Sigga hafi lést um 5 kíló í ræktinni en þú bara um 3 kiló, hvað með það? Kannski varst þú léttari en þær í upphafi eða átt eftir að taka meira af þér seinna. Mundu bara að þótt árang- urinn láti bíða eftir sér, þá kemur að því að þú komist í gömlu gallabuxurnar eða fallega pilsið. Vilji er allt sem þarf! Hér á eftir koma nokkur atriði og heilræði varðandi umræðuna um gagnsemi lík- amsræktar. Munið þó að á vegum heilsuræktarstöðva eru starfandi sérfræðingar sem eiga að geta svarað flestum þeim spurningum sem brenna á vörum ykkar varðandi heilsu og þjálfun. ISund er besta líkamsræktin því þar er minnsta hættan á að slasa sig. Sund er mjög góð alhliða íþróttagrein sem margir eiga tök á að stunda. Áreynslan við sundiðk- un er þó best fyrir hjartað. Margir velja sund vegna þess að þar er lítil hætta á að togna eða snúa sig auk þess sem sund hentar vel fyrir þá sem eiga við einhvers konar meiðsl að stríða. Heilræði Þú reynir meira á vöðva líkamans með æfingum á þurru landi. Fyrir aðra vöðva en hjart- að eru æfingar á þurru landi mun hentugri. Hröð ganga, hlaup og þrekstigar reyna miklu meira á vöðvana og geta komið í veg fyrir bein- þynningu. 2 gam Meiri sársauki - betra form. Ameríska orðatil- tækið „no pain - no er mikið notað í íþrótta- þjálfun. Mikill sársauki og erfiðleikar eiga að leiða til betra forms samkvæmt þessu en svo er nú ekki í raun- veruleikanum. Eftir eðlilega áreynslu í líkamsrækt er eðlilegt að þú sért örlítið þreytt en sú þreyta ætti að vera liðin hjá eftir ^ J klukku- - . w, 'Stund. / Það er full- komlega eðli- legt að þú finnir fyrir áreynslu en þú átt ekki að þjást. Ef þú finnur virkilega til bæði á meðan þú stundar líkamsrækt og eftir hana ertu hugsanlega að ofreyna þig eða átt við meiðsl að stríða. Heilræði Meiri styrkur - aukin vellíðan. Til að komast í gott form og viðhalda því er nauðsyn- legt að bæta álagið smátt og smátt. Ef þú ert komin í það gott form að þú getir hlaup- ið 20 mínútur í senn, skaltu reyna að auka tímann í 22 mínútur næstu vikuna. Lík- ami þinn ræður auðveldlega við meira álag sé það aukið hægt og rólega. 3 Líkamsrækt á hverjum degi skilar toppár- angri. í mörg ár hefur sá mis- skilningur ríkt að dagleg lík- amsrækt skili bestum ár- angri. Hvfld er líkamanum nauðsynleg og líkamsræktin er þar hvergi undanskilin. Fjögur skipti í viku er nóg til að koma þér í form en þá verður þú líka að passa upp á að detta ekki út úr því ferli. Heilræði Mundu að taka þér hvíld. Sinntu líkamsræktinni í 30-45 mínútur fjórum sinn- um í viku og njóttu þess að gera eitthvað annað skemmtilegt hina dagana. Sérfræðingar í heilsufræðum 52 Vikan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.