Vikan


Vikan - 28.09.1999, Blaðsíða 28

Vikan - 28.09.1999, Blaðsíða 28
Spariskórnir léku mig grátt Þetta byrjaði sem hugguleg leik- húsferð hjá okk- ur hjónunum. Við fórum frek- ar sjaldan út að skemmta okkur en það var aðallega vegna þess að maðurinn minn hvolfdi yfirleitt hressi- lega í sig. Eins og vill verða undir slíkum kringumstæð- um þá varð oftast lítið úr eiginlegri skemmtun. Hann varð þvoglumæltur með víni og engu líkara en hann væri í öðrum heimi. Ég skamm- aðist mín fyrir framkomu hans. Mér fannst þetta af- skaplega leiðinlegt því sjálfri finnst mér mjög gaman að lyfta glasi í góðra vina hópi eða að njóta rauðvíns með matnum. Við hjónin höfðum margoft rætt þetta vandamál og hann lofaði alltaf að reyna að taka sig á og stilla drykkjunni í hóf. Það tókst honum hins vegar ekki. Þessa umræddu leikhús- ferð vorum við búin að ákveða með löngum fyrir- vara og ég hafði hlakkað mikið til. Við vorum með miða á Hellisbúann og mættum í okkar fínasta pússi í leikhúsið. Að sýningu lokinni hittum við bestu vin- konu mína á bar í miðbæn- um en hún var einhleyp og fór sjaldan út að skemmta sér. Hún var mikill heimilis- vinur og við tvær höfum alltaf verið mjög nánar svo að mér fannst gaman að hafa hana með og maðurinn minn var sama sinnis. Nú, kvöldið leið frekar hratt. Það var hljómsveit á staðnum og heilmikið fjör. Ég drakk sjálf frekar hratt. Það var svo langt síðan ég hafði farið út á lífið og ég ætlaði að njóta þess út í ystu æsar og vonaði að þetta skemmtilega kvöld tæki engan enda. Ég hafði líka ákveðið fyrirfram að láta drykkju hans ekki eyði- leggja kvöldið fyrir mér. Ég missti sjónar af manninum mínum um tvöleytið en hitti svo mikið af fólki sem ég þekkti að ég spáði lítið í það. Það var svo gaman hjá mér. Ég hafði að vísu tekið eftir því að hann var orðinn ansi drukkinn en samkvæmt áætlun minni ákvað ég að leiða það hjá mér. Ég ætlaði ekki að styðja hann blind- fullan heim alltof snemma og fara svekkt í háttinn eina ferðina enn. Árás í Hafnarstræti Þegar klukkan var orðin þrjú var ég vel við skál og fór að leita að manninum mínum. Vinkona mín var eitthvað óhress og döpur í bragði og fór heim á undan okkur. Ég fann bóndann hvergi svo ég gekk út á götu til þess að leita að leigubíl. Ég man óljóst hvað gerðist næst. Ég man eftir umferð í Hafnarstrætinu, rigningu og mannfjölda. Skyndilega var snúið harkalega upp á hand- legginn á mér og mér hrint niður í götuna af hávöxnum manni og sársaukinn nísti í gegnum merg og bein. Ég barðist á móti en átti ekkert í þennan sterka mann og allt í einu komu tvær óeinkenn- isklæddar lögreglukonur að- vífandi sem áttu í mestu erf- iðleikum með að rífa mann- inn ofan af mér. Hann fór hamförum, öskraði á mig og reyndi að hjóla aftur í mig þar sem við gengum í átt að lögreglustöðinni, sem var á næsta horni. Þegar við kom- um þangað inn var ég illa á mig komin. Ég var rennandi blaut, fötin mín rifin og ég var mjög hrædd. Maðurinn hélt áfram að kalla mig hræðilegum nöfnum og hann titraði af reiði. Ég var leidd afsíðis þar Skyndilega var snúið harkalega upp á handiegginn á mér og mér hrint niður í göt- una af hávöxnum manni og sársaukinn nísti í gegnum merg og bein. Ég barðist á móti en átti ekkert í þennan sterka mann. sem skýrsla var tekin af mér og mér var sagt að ég hefði hent öðrum spariskónum mínum í bíl þessa manns. Ég var spurð hvort ég viður- kenndi að hafa gert það. Ég kom af fjöllum en sam- þykkti að það gæti hafa gerst þar sem ég var bara í öðrum skónum. Hvers vegna ég færi að gera eitt- hvað svo furðulegt var hins vegar alveg á huldu. Ég var keyrð heim af lög- reglukonunum tveimur. Maðurinn minn var kominn heim og þótt hann væri drukkinn var hann mjög óhress með hversu seint ég kom en var jafnframt í sjokki yfir útganginum á mér. Ég hafði fengið lánaða rándýra, síða skyrtu hjá vin- konu minni en nú var hún gauðrifin. Sokkabuxurnar héngu vart utan á fótleggj- um mínum og pilsið var út- atað tjöru eftir að maðurinn henti mér í götuna. Ég skreið upp í rúm, vafði sænginni þétt utan um mig og kveið fyrir að vakna næsta dag. Lögreglan gaf árásarmanninum númerið mitt Morguninn eftir vaknaði ég helaum í líkamanum og staulaðist fram á bað. Mað- urinn hafði ráðist svo illilega á mig að spöngin í brjósta- haldaranum mínum hafði brotnað og gengið aðeins inn í brjóst mitt, auk þess sem það var skrámað eins og ég hefði verið klóruð. Brjóstahaldarinn fór í ruslið og öll fötin sem ég var í þetta kvöld. Næstu daga komu fram marblettir á mörgum stöðum á líkama mínum og mér leið líka mjög illa andlega. Ég skildi hvorki upp né niður í neinu. Hvers vegna ætti ég að hafa hent skónum mínum í bíl hjá bláókunnum manni? Hvers vegna réðst hann á mig? Ég fór á lögreglustöðina strax eftir helgina til þess að fá nánari upplýsingar um þetta atvik. Þar á bæ voru allir mjög elskulegir við mig þótt enginn gæti gefið 28 Vikan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.