Vikan - 28.09.1999, Síða 21
hjálpað þér til að öðlast
meiri skilning á starfinu.
Leiðbeiningar með sím-
anum, tölvunni eða ein-
hvers konar lýsing á
starfinu eru góð lesning
fyrstu dagana. Það getur
flýtt fyrir því að þú náir
að skipuleggja þig sjálf
og finnir verktilhögun
sem hentar þér.
• Heilsaðu öllum á vinnu-
staðnum með handa-
bandi fyrsta daginn og
brostu eins oft og mikið
og þú getur. Það er mjög
jákvætt að rétta fram
höndina og heilsa öllum
sem maður er kynntur
fyrir fyrsta daginn í nýju
starfi. Breitt bros sýnir
að þú ert vingjarnleg og
opin manneskja sem
notalegt er að vinna
með.
• Vertu glaðleg, opin og
jákvæð en gefðu ekki of
mikið færi á þér til að
byrja með. Þú vilt kynn-
ast þessu fólki en vilt
ógjarnan mynda kunn-
ingsskap sem þú sérð
eftir að hafa átt frum-
kvæði að síðar. Bland-
aðu þér í hóp sem
flestra, talaðu við alla
og forðastu að hengja
þig á nokkra klíku.
Vertu vingjarnleg við
alla það opnar þér leið-
ina til að finna út hverjir
samstarfsmanna þinna
eiga best við þig og þitt
lunderni.
• Ekki blanda þér í deilur
innan vinnustaðarins.
Oft er ekki allt sem sýn-
ist og sjaldan einum að
kenna þegar tveir deila.
Þú getur lent í miklum
vandræðum síðar ef þú
tekur alfarið svari ein-
hvers vinnufélaga þíns í
einhvers konar orða-
skaki fyrstu dagana. Hér
getur nefnilega ýmislegt
legið að baki. Valdatog-
streita undir yfirborðinu
eða gamlar væringar
sem aldrei hafa verið
fullkomlega útkljáðar.
Viti maður forsöguna
eða hina raunverulegu
ástæðu fyrir titringnum
kann að vera að deilu-
málin líti allt öðruvísi út
en manni fannst meðan
orðaskiptin áttu sér stað
á kaffistofunni. Að vísu
þegar kemur að þér í
fyrsta sinn. Er ætlast til
að þú farir á föstum
tíma í mat eða átt þú að
leysa einhvern ákveðinn
af og hann þig og hvern-
ig vill viðkomandi þá
haga því? Ekki taka of
langan matar- eða kaffi-
tíma fyrstu dagana jafn-
vel þótt aðrir geri það.
Þú ert ný og það borgar
sig að sýna áhuga. Þú
verður hvort sem er
fljótlega látin finna það
sé þér óhætt að vera
nokkrum mínútum of
sein þegar þannig stend-
ur á hjá þér.
• Vertu ekki of stíf á
meiningunni fyrst í stað
og flaggaðu ekki um of
persónulegum skoðun-
um þínum á málum
ekki heppileg umræðu-
efni á meðan þú ert enn
að kynnast fólkinu.
Einhver samstarfmanna
þinna kann að hafa
mjög ákveðnar skoðanir
á þessum málum og það
gæti haft áhrif á sam-
starfið ef hann veit að
þú ert langt frá því að
vera sama sinnis og
hann. Slík misklíðarefni
eru mikið auðveldari að
eiga við þegar fólk
þekkist betur.
• Að sjálfsögðu er tillits-
semi og kurteisi alltaf
vel metin í mannlegum
samskiptum og best að
hafa það að leiðarljósi
hvort sem maður er að
byrja í nýrri vinnu eða
bara að mæta enn og
aftur á sinn vinnustað.
er vel líklegt að annar
hvor deiluaðila reyni að
vinna þig, nýja starfs-
manninn, á sitt band en
komdu þér undan að
svara í lengstu lög og
taktu aldrei afgerandi
afstöðu á neinn hátt.
• Leggðu þig fram við að
komast að hvernig
skipulagningu matar- og
kaffitíma sé háttað. Er
t.d. einhver ákveðinn
aðili sem sér um að
hella upp á kaffi eða
skipta menn því á milli
sín? Ef menn skiptast á
að sjá um kaffið eða
innkaup fyrir kaffistof-
una vertu þá viss um að
þú klikkir ekki á því
ótengdum vinnunni.
Þínar skoðanir á því
hvernig hagkvæmast er
að vinna starfið kunna
að vera aðrar en þeirra
sem stjórna á vinnu-
staðnum. Meðan þú ert
enn að ná tökum á starf-
inu og komast inn í hlut-
ina á nýja staðnum er
ekki tímabært að láta í
ljós að þú æskir breyt-
inga. Eins er ákaflega
óæskilegt að vera of stíf-
ur á meiningu sinni
komi stjórnmál eða
önnur umdeild mál til
umræðu. Hvað þú kýst,
hvort þú ert með eða á
móti fóstureyðingum,
trú þín eða trúleysi eru
Það er þó aðeins eitt
sem er alveg dauða-
dæmt sé maður að byrja
í nýju starfi og það er að
biðja um kauphækkun
strax fyrstu dagana.