Vikan - 28.09.1999, Síða 24
Texti: Þórunn Stefánsdóttir
USTIIM AD VERA
O
11 þekkjum
við a.m.k.
eina konu
sem haldin
er full-
komnunar-
áráttu. Pað er konan sem
straujar rúmfötin og nærfötin
og á erfitt með að fyrirgefa
sjálfri sér ef henni verður eitt-
hvað á. Konan, sem er ekki
ánægð nema henni takist að
gera allt betur en við hinar.
Við vorkennum henni svolítið
og hlæjum jafnvel að henni.
En sá hlær best sem síðast
hlær. Ef við hugsum málið til
enda verður að viðurkennast
að þessi kona mætir líklega
aldrei of seint í vinnuna,
gleymir aldrei afmælisdögum
og símanúmerum og fellur
ekki fyrir vonlausum karl-
mönnum.
Ekki sem verst. Fullkomn-
unarsinnar eru nefnilega
skipulagðir, taka mark á smá-
atriðunum og bíta á jaxlinn
þegar þeir lenda í erfiðleikum.
En fullkomnunaráráttan
getur reynst dýrkeypt. Kann-
anir hafa sýnt að leitin að full-
komnuninni getur leitt til lé-
legs sjálfsmats, þunglyndis og
jafnvel, í einstaka tilfellum, til
sjálfsvígs.
Hér á eftir fara nokkrar
reglur fullkomnunarsinnans,
sem við höfum einfaldað og
mildað. Þær geta e.t.v. hjálpað
þér að ná betri tökum á lífinu.
Okkur dettur ekki í hug að
halda því fram að líf þitt verði
fullkomið, en við ábyrgjumst
að þú gerir færri glappaskot,
lendir ekki eins oft í ömurleg-
um ástarævintýrum, lifir betra
kynlífi, veikist sjaldnar, skrifir
færri innistæðulausa tékka og
hættir að fara í vonlausa
megrunarkúra.
Lestu reglurnar, veldu þær
sem höfða til þín, lifðu eftir
þeim, og hókus pókus, lífið
verður einfaldara og betra!
Fyrsta regla fullkomn-
unarsinnans:
Ég dœmi mig af mistökum
mínum, ekki því sem ég sem
geri vel. Ég einblíni á það sem
ég gœti hafa gert eða œtti að
hafa gert.
Raunhæfari regla:
Svona hugsanagangur er
ekkert annað en orkusóun. Þó
verður að viðurkennast að
mistökin eru til þess að læra af
þeim. Þau eru nokkurs konar
tækifæri í dulargervi; tækifæri
til þess að skoða hlutina frá
nýju sjónarhorni. Notaðu því
tækifærið þegar eitthvað
óvænt gerist í lífi þínu, svo
sem skilnaður eða hörkurifr-
ildi við bestu vinkonuna og
reyndu að læra eitthvað já-
kvætt af þeirri reynslu.
Þegar okkur líður illa eigum
við erfitt með að koma auga á
jákvæðu hliðarnar. En kostirn-
ir við mistökin eru þeir að við
getum lært að forðast þau
næst þegar þau verða á vegi
okkar. Leggðu viðvörunar-
merkin á minnið og notfærðu
þér þau.
reikninginn. Gallinn er hins-
vegar sá að tossalistaþrællinn
sér alltaf aðeins það sem hann
á eftir að gera. Það er miklu
raunhæfara að hafa fleiri en
einn lista í gangi. Einn fyrir
verkefni sem verður að af-
greiða hér og nú, annan fyrir
verkefnin sem geta beðið þar
til í næstu viku og enn annan
fyrir verkefni næsta mánaðar.
Skrifaðu listana í sérstaka
bók. Njóttu þess að strika
jafnóðum yfir það sem lokið
er við og listinn verður annað
og meira en enn ein skyldan.
Mundu svo að tossalistar
þurfa alls ekki að vera leiðin-
legir. Þeir eru fyrir
dagdraumana ekki síður en
skyldustörfin!
Onnur regla fullkomn-
unarsinnans:
Ég skrifa niður öll verkefni
dagsins og hœtti ekki fyrr en ég
er búin að strika yfir allt sem á
listanum stóð.
Raunhæfari regla: Flest
okkar burðast með einhvers
konar tossalista en munurinn
á fullkomnunarsinnanum og
okkur hinum er sá að þeir
nota listana. Þess vegna þurfa
þeir aldrei að spyrja tvisvar
um sama hlutinn, þeir muna
nöfn viðskiptavinanna og
muna eftir því að borga Visa-
um og svaraðu þeim þegar þú
kemur út mat. Segðu kærast-
anum þínum að hann verði að
taka til eftir sig eða ráða konu
til þess að þrífa. Ef þér finnst
vinnan vera farin að stjórna
lífi þínu notaðu þá tímann
betur með því að gera eitt-
hvað tvennt á sama tíma sem
veitir þér ánægju. Þú getur
mælt þér mót við vinkonu
þína á snyrtistofu og notað
tímann til þess að spjalla með-
an þið fáið handsnyrtingu eða
mælt þér mót við kærastann
þinn í líkamsræktarstöðinni.
Þriðja regla fullkomn-
unarsinnans:
Ég sameina starfið og lík-
amsrœktina með því að skipu-
leggja vinnudaginn í huganum
á meðan ég geng í vinnuna.
Raunhæfari regla: Full-
komnunarsinnarnir nota
hverja mínútu dagsins. Auð-
vitað. Það er þess vegna sem
þeir eru svo viðkvæmir fyrir
umgangspestunum sem ganga
hverju sinni. Vissulega er gott
að raða hlutunum í forgangs-
röð. Það kennir þér að gera
eitt í einu, þú lærir smám sam-
an að forgangsraða verkefn-
unum og hættir að æða úr einu
í annað. Skrifaðu niður allt
það sem hefur truflandi áhrif;
finndu leið til þess að draga úr
ótímabærum símhringingum
vinkonunnar sem hringir
stöðugt í þig í vinnuna til þess
eins að spjalla um daginn og
veginn, og kenndu kærastan-
um að taka til eftir sig. Það er
enginn sem segir að þú þurftir
alltaf að taka símann; safnaðu
saman mikilvægum skilaboð-
Fjórða regla fullkomn-
unarsinnans:
Ég athuga innistœðuna mína
í bankanum á hverjum degi og
fer aldrei að sofa fyrr en ég er
búin að vaska upp.
Okkar regla: Taugaveiklun?
Já, svo sannarlega. Finnst þér
fullkomnunin felast í smáat-
riðunum? Líklega ert þú
aldrei ánægð og finnst þú
aldrei gera nógu vel, jafnvel
ekki þótt þú sért tölvusnilling-
ur eða heimsfrægt tónskáld.
Þeir sem njóta velgengni gera
oft hluti sem okkur hinum
hundleiðist að gera og komum
okkur hjá. Þar með er ekki
sagt að fullkomnunarsinnun-
um leiðist ekki að gera þessa
hluti. Þeir láta einfaldlega
skylduna ganga fyrir. Hér eru
nokkrar einfaldar leiðir til
þess að auðvelda þér að lesa
smáa letrið í lífsbókinni: Opn-
aðu og lestu póstinn þinn jafn-
óðum og hann berst þér;
leggðu saman í tékkheftinu,
lestu yfirlitið frá kortafyrir-
tækinu og útbúðu sér möppu
fyrir kvittanir yfir það sem er
frádráttarbært frá skatti.
Mundu að þú þarft ekki að
þrífa allt hátt og lágt í hverri
viku, stundum er nóg að taka
Enginn er fullkominn. En við getum öll lært eitt og annað