Vikan - 28.09.1999, Page 25
FULLKOMINN
til. Farðu reglulega í krabba-
meinsskoðun, heilsan er ekki
síður mikilvæg en bankareikn-
ingurinn. Ef þú gætir þess að
safna ekki saman leiðinlegu
skylduverkefnunum hefur þú
meiri tíma til þess að gera það
sem er allra mikilvægast; allt
það sem þú hefur gaman af að
gera.
Fimmta regia full-
komnunarsinnans:
Ég veit nákvœmlega hvernig
ég vil haga lífi mínu.
Okkar regla: Það er dæmi-
gert fyrir fullkomnunarsinn-
ann að hafa framtíðina á
hreinu. Okkur hinum finnst
þetta e.t.v. ógnvekjandi en við
verðum samt að viðurkenna
að skýr markmið eru undir-
staða þess að ná settu marki.
Háskóli nokkur í Bandaríkj-
unum stóð fyrir langtíma-
könnun sem stóð yfir í tuttugu
ár. Niðurstaðan sýndi að þeir
nemendur sem höfðu sett sér
skýr markmið og tekist að ná
þeim voru hamingjusamari í
hjónabandinu, nutu meiri vel-
gengni, voru ánægðari, heil-
brigðari og höfðu það betra
fjárhagslega en bekkjarsyst-
kini þeirra sem ekki höfðu
sett sér markmið.
Það skiptir ekki máli hversu
dugleg og iðin við erum ef við
höfum ekki í huga þá ágætu
reglu að í upphafi skyldi
endirinn skoða. Ef þú veist
hvað þú vilt kemst þú hjá því
að eyða dýrmætum tíma í eitt-
hvað sem skiptir engu máli.
Þú átt einnig síður á hættu að
sitja uppi með ómögulegan
kærasta, þreytandi vini og
vonlausa vinnu.
Sjötta regla fullkomn-
unarsinnans:
Þetta árið œtla ég að kaupa
af þeim sem streða alla ævina við að verða það