Vikan - 28.09.1999, Page 26
LISTIIM AD VERA FULLKOMINN
mér íbúð, nœsta ár œtla ég að
klífa Kilimanjaro, ég cetla að
gifta mig þegar ég verð þrítug,
vera búin að eignast tvö börn
áður en ég verð 35 ára, vera
komin íframkvæmdastjóra-
stöðu áður en ég verð fertug...
Okkar regla: Hættu að
geyspa! Málið er ekki það að
skipuleggja lífið frá A ti! Ö.
Það er bæði heimskulegt og
hundleiðinlegt. Auðvitað er
nauðsynlegt að hafa markmið,
en það er skynsamlegra að
setja sér nokkur langtíma-
markmið frekar en eitt stórt
markmið; svo sem að stefna
að því að fá stöðuhækkun eða
gifta sig eða kaupa íbúð. Eitt
stórt markmið getur skapað
vandamál. Það getur farið svo
að þér takist ekki að ná mark-
miðinu. En hvað gerist þegar
takmarkinu er náð? Jú, þú
hefur einfaldlega ekkert til
þess að stefna að í framtíðinni.
Sestu niður og skrifaðu nið-
ur markmiðin þín, hvort sem
þau snúast um það að taka til í
fataskápnum eða vinna
nóbelsverðlaunin. Settu þér
tímamörk. f hvert sinn sem þú
hefur náð einu takmarki,
strikaðu þá yfir það og skrif-
aðu annað í staðinn.
Sjöunda regla full-
komnunarsinnans:
Ég er stöðugt hrœdd um að
gera mistök.
Okkar regla: Þetta er svo
sannarlega ekki rétta upp-
skriftin að velgengni. En það
gæti orðið það svo framarlega
sem þú forðast leið fullkomn-
unarsinnans sem lætur stjórn-
ast af hræðslu og vanmáttar-
kennd. Sannur árangur, sem
byggir upp sjálftraustið, fæst
ekki með því að takast á við
eitthvað. Sannur árangur fæst
með því að hafa hugrekki til
þess að takast á við eitthvað
sem þér finnst ógnvekjandi og
segja þar með vanmáttar-
kenndinni stríð á hendur.
Ekki líta á vandamálin sem
óyfirstíganlega hindrun. Bíttu
á jaxlinn og haltu áfram. Ef
hlutirnir ganga ekki upp getur
þú alltaf hagrætt þeim og sett
þér annað markmið.
Næst þegar þú byrjar í nýju
sambandi, ferð fram á launa-
hækkun eða skiptir um háralit
skaltu gera það með jákvæðu
hugarfari. Ekki hugsa sem svo
að þetta komi aldrei til með
að ganga. Hugsaðu frekar:
Það getur vel verið að þetta
samband gangi ekki upp
þannig að ég ætla líka að byrja
í leikfimi, sækja um ábyrgðar-
meira starf og gæta þess að
hafa kvenlegasta kjólinn í
borginni alltaf til taks í fata-
skápnum.
Áttunda regla full-
komnunarsinnans:
Ég geri kröfu um aðeins
það besta, bœði til mín og
annarra.
Okkar regla: Fullkonmun-
arsinnar fá viðurnefni sitt
einmitt vegna þessa hugsunar-
háttar. Vissulega byggjast
væntingar þeirra á stjórnunar-
áráttu frekar en sjálfselsku.
Það er ólíklegt að einhver
leggi í það að ráðskast með
fullkomnunarsinnann.
Fullkomnunarsinninn tekst
á við tilfinningalausa kærasta,
freka fjölskyldumeðlimi,
kröfuharða yfirmenn, svikula
iðnaðarmenn, dónalega þjóna;
þ.e.a.s. alla þá sem eru til
vandræða, með því að lifa eftir
hinni gullnu reglu að gjalda
alltaf gott með illu.
Það má segja að þetta sé
vænlegasta leiðin til þess að
rækta sjálfsvirðinguna. Þegar
þú hefur gert þér grein fyrir
hversu mikils virði þú ert og
sættir þig ekki við neitt rninna,
byggir þú á traustum grunni
og getur tekist á við hvað sem
er. Spurðu sjálfa þig: Hvor
heldur þú að nái betri árangri
í atvinnuleitinni/á stefnumót-
inu/í veislunni innan um fullt
af ókunnugu fólki, konan sem
gerir sér minnstu athygli að
góðu eða sú sem gerir sér fulla
grein fyrir því hvers virði hún
er?
Níunda regla fullkomn-
unarsinnans:
Ég reyni að forðast alla
áhættu.
Okkar regla: Ef þú ert
þeirrar skoðunar að áhættu-
fælni leiði til hægfara heila-
dauða og vanþroska þá hefur
þú rétt fyrir þér. En það er
líka heimskulegt að geta
aldrei verið í föstu sambandi,
að ráða sig í starf án ná-
kvæmrar starfslýsingar og
starfsheitis, eða lána peninga
án þess að vita hvort eða
hvenær þú sérð þá nokkurn
tíma aftur. Allt þetta er dæmi-
gert fyrir þá sem eru vanir því
að taka áhættu í lífinu.
Við mælum aftur á móti
með úthugsaðri áhættu. Flest
okkar ráðast í breytingar á líf-
inu þegar við erum vonsvikin.
Við hellum okkur út í hlutina
án þess að meta kostina og
gallana. I níu af hverjum tíu
tilfellum leiða slíkar breyting-
ar ekki til góðs.
Til þess að forðast mistökin
er gott að hafa fimm spurning-
ar í huga og svara þeim sam-
kvæmt bestu samvisku áður
en ráðist er í breytingar, hvort
sem þær snúast um útlit, at-
vinnu eða persónuleg málefni:
1) Mun mér snúast hugur ef
ég fresta ákvörðuninni um
einn dag? 2) Hvað er það
versta sem gæti gerst? 3)
Hvað er það besta sem gæti
gerst? 4) Hvað gerist ef ég
geri alls ekki neitt? 5) Ef mér
tekst áætlunin græði ég þá
meira en ég tapa ef mér mis-
tekst?
Þegar þú hefur svarað öllum
spurningunum skaltu taka
ákvörðun á eigin ábyrgð.
Tíunda regla fullkomn-
unarsinnans:
Kvíðalaus maður er kœru-
laus maður.
Okkar regla: Satt best að
segja er kvíði af hinu góða.
Sálfræðikannanir á samspili
kvfða og frammistöðu sýna að
því meira sem við kvíðum ein-
hverju því betri árangri náum
við...upp að vissu marki. Eftir
það, og enginn er betur með-
vitaður um það en fullkomn-
unarsinninn, stefnir allt niður
á við.
Hver er þá rétti kvíða-
skammturinn? Svarið er:
Kvíði er af hin góða svo lengi
sem hægt er að virkja hann á
jákvæðan hátt. Hugsaðu um
kvíðann sem jákvæða ofsókn-
aráráttu. Reyndu að gera þér
nákvæma grein fyrir því hvað
það er sem veldur þér kvíða.
Þar með getur þú tekist á við
kvíðann á uppbyggilegan hátt.
Eru lánin komin í vanskil?
Fáðu þjónustufulltrúann í
bankanum til þess að gera
raunhæfa greiðsluáætlun í
samvinnu við þig. Ertu að
drukkna í verkefnum í vinn-
unni? Fáðu yfirmanninn til
þess að setja raunhæfari skila-
daga. Ertu óánægð í núver-
andi starfi? Líttu í kringum
þig og lestu atvinnuauglýsing-
arnar. Ertu að þyngjast?
Farðu í leikfimi. Er enginn
maður í lífi þínu? Fáðu vin-
konur þínar til þess að kynna
þig fyrir huggulegu mönnun-
um sem þær vinna með. Lifir
þú ófullnægjandi kynlífi?
Farðu og keyptu þér titrara! í
stuttu máli sagt er málið
kannski einfaldlega það að
breyta örlítið gamla, góða
dægurlagatextanum og syngja
fullum hálsi undir sturtunni á
morgnana: Do worry, be
happy!
26 Vikfin