Vikan - 28.09.1999, Blaðsíða 54
efniá
hjálpar
Um árabil hefur
fjölskylda mín
barist við mikla
fjárhagsörðug-
leika. Pabbi og mamma hafa
bæði átt mjög erfitt líf og
það er hræðilegt að þurfa að
horfa upp á þau berjast
stöðugt í bökkum. Við höf-
um smátt og smátt verið að
missa allt. Fyrst húsið, svo
bílinn og nú erum við flutt í
annað bæjarfélag og búum í
lítilli leiguíbúð. Að hluta til
er það rangri fjármálastjórn
bankans okkar að kenna að
svo er komið. Þeir tóku
völdin af pabba og mömmu
og stjórnuðu alveg hvernig
og hvað var borgað af lán-
unum. Foreldrar mínir
hefðu viljað láta gera hlut-
ina öðruvísi og ef það hefði
verið farið að þeirra vilja
ættum við sennilega bílinn
ennþá. Þetta hefur allt
reynst mér mjög erfitt og ég
hef tekið það ákaflega inn á
mig hvernig ástandið í fjöl-
skyldunni er.
Systir mín og mágur eru
mömmu og pabba mjög reið
vegna fjárhagsörðugleika
þeirra og oft hef ég þurft að
hlusta á þau rífast heiftar-
lega. Ég tek það nærri mér
og loka mig venjulega inni í
mínu herbergi þegar það
gerist til að þurfa ekki að
hlusta á þau. Ég skil í raun-
inni ekki hvernig mamma
þolir allt sem á hana er lagt.
Það er eins og allt snúist
gegn henni. Hún lenti í
bílslysi fyrir ári síðan og hef-
ur verið óvinnufær síðan.
Þegar ég var yngri var ég
léttari í skapi og átti auð-
veldara með að sætta mig
við erfiðleikana. Kannski
skil ég betur nú hvað for-
eldrar mínir eru að ganga í
gegnum.
Við vorum líka um tíma á
götunni eftir að við neydd-
umst til að flytja. Bjuggum
öll saman í lítilli stúdíóíbúð
sem var bara eitt herbergi,
eldhúskrókur, lítil stofa og
bað. íbúðin sem við fengum
síðan er heldur stærri en
samt allt of lítil fyrir fjöl-
skylduna. Við systurnar
þurfum að vera saman í her-
bergi og það er erfitt þegar
maður er hálffullorðin og
vill hafa eitthvað út af fyrir
sig.
Nokkrum árum áður en
við fluttum byrjaði ég svo að
vera með strák og varð yfir
mig ástfangin af honum.
Hann var hluti af vinahóp
sem ég fór að vera mikið
með. Mamma hefur sagt
mér að henni hafi fundist ég
breytast mjög mikið eftir
það. Ég hafi verið mjög til-
litslaus, uppstökk og erfið í
allri umgengni. Innan þess-
arar klíku var mjög mikill
söguburður í gangi. Um mig
gengu hræðilegar sögur. Ég
átti stöðugt að vera að halda
framhjá kærastanum að
sögn vina hans. Þetta særði
mig mikið og mér fannst ég
alltaf þurfa að vera að verja
mannorð mitt og bera af
mér rangar sakir. Kærastinn
var svo sem ekkert of hlýr
heldur og ég fann að hann
vildi raunverulega ekki ann-
að en hafa mig þegar honum
hentaði en geta síðan fleygt
mér frá sér þess á milli.
Ég var með þessum strák
um tíma en síðan sagði hann
mér upp á þeirri forsendu
að hann gæti ekki orðið
verulega hrifinn af stelpu.
Hann væri ekki tilbúinn til
að binda sig tilfinningalega.
Stuttu síðar frétti ég svo að
hann væri byrjaður með
annarri. Það var mér mikið
áfall og sérstaklega þegar
hann mætti með hana í partí
heim til mín. Ég
missti alveg stjórn
á mér og grét og
grét.
Þrátt fyrir þetta
byrjaði ég með
honum aftur þegar
hann leitaði eftir því. Ég
vissi hvernig hann var og
hvernig vinir hans voru en
samt festist ég í sama farinu
aftur. Það sama gerðist og
áður. Framkoma mín breytt-
ist mjög til hins verra og mér
leið aldrei vel. Ég reyndi
eins ég mögulega gat að
falla í kramið hjá þessu fólki
en það var alveg sama hvað
ég gerði hópurinn bjó enda-
laust til illkvittnislegt slúður
um mig. Þá var mér sagt að
hann væri með öðrum stelp-
um líka þótt við ættum að
heita í ástarsambandi. Mér
var að sjálfsögðu nóg boðið
og ákvað að ég yrði að hætta
þessu. Sjálfsvirðing mín var
engin orðin. Ég hefði ekki
átt að láta þetta ganga jafn-
lengi og það gerði en ég var
bara svo hrifin af honum að
ég trúði því að hlutirnir
myndu lagast.
Mér fannst hann eini mað-
urinn sem ég gæti treyst og
það vantaði ekki að oft var
hann mjög góður við mig og
sýndi mér mikinn skilning.
Ég vonaði að þannig yrði
það alltaf en gerði mér að
lokum grein fyrir að hann
myndi ekki breytast. Það
versta er að ég ber enn hlýj-
ar tilfinningar til hans og
það á sennilega eftir að taka
mig langan tíma að komast
yfir það. Sárið sem hann
skildi eftir er mjög djúpt.
Eftir þetta hætti ég alveg
að umgangast þennan hóp
og gerði mitt besta til að
gleyma þessu sambandi. Ég
fann að ég átti erfiðara með
Mér fannst allt einhvern veginn svo ómögulegt
og vonlaust og ég fann að ég vildi bara hverfa.
Ég fann að ég átti erfiðara með
að treysta fólki en áður eftir
þessa reynslu og var ákveðin í
að reyna að vanda betur val
mitt á vinum.
54 Vikan