Vikan - 26.10.1999, Blaðsíða 16
Texti: Jóhanna Á.H. Jóhannsdóttir
rj
U
jj u j'jjíi j1 ui/ujjjj/yjjjjjjjjjjjj
Hvers vegna eru sumir svo lánsamir að falla í svefn á augna-
bliki eða næstum því meðan aðrir þurfa að bylta sér, lesa,
borða eða taka inn lyf til þess að fá næturhvíldina? Ástæður
eru mönnum hulin ráðgáta en þó hefur vísindamönnum tekist
að finna út ýmsa efnisþætti í líkamanum sem áhrif hafa á svefninn.
Einnig hefur það verið rannsóknarefni hvers vegna sumir þurfi átta
klukkustunda svefn eða meira að jafnaði til þess að teljast úthvíldir
en aðrir halda fullri starfsorku þrátt fyrir að sofa allt að helmingi
skemur.
Napóleon, Winston Churchill og Thomas Alva
Edison eru dæmi um menn sem þurftu sáralítinn
svefn, enda komu þeir miklu í verk. Sagt er að
Edison hafa verið „vakinn og sofinn" yfir því
verkefni að finna upp Ijósaperuna. Hann hafi
jafnvel vonast til þess að Ijósaperan yrði til þess
að fólk gæti sleppt svefninum alveg. Svipaða
sögu er að segja af Leo XIII páfa sem refsaði þjónum sínum ef þeir
„sofnuðu á verðinum" með þeim afleiðingum að þeir létu hann sofa
lengur en þrjá tíma. Albert Einstein þurfti aftur á móti mikinn svefn
sem kemur heim og saman við þá staðreynd að þeir, sem eru haldnir
miklum sköpunarkrafti og þykja sérvitrir, þurfa fremur mikinn svefn.
Rannsóknir á svefnvenjum hófust ekki fyrir alvöru fyrr en á sjötta
áratugnum.
Það sem vísindamenn halda fram er að svefnvenjur okkar stjórnist
af líkamsklukkunni. Hvert okkar sé fætt með innbyggða hringrás sem
stjórni því hvenær við verðum syfjuð og hvenær við vöknum. Þessi
hringrás vari að mestu allt okkar líf en við getum tekið stjórnina í
okkar hendur í ákveðnum tilvikum, segja sérfræðingar. Mörgum líður
þó afar illa ef ruglingur verður á svefntímanum, til dæmis ef flogið er
yfir mörg tímabelti. Ein af nýrri kenningum um svefn og svefntíma
gengur út á það að magn serótóníns í heilanum hafi hér áhrif. Hvað
sem öðru líður er svefninn nauðsynlegur fyrir líkamlega og andlega
heilsu okkar.
Það er líka öldungis rétt þegar talað er um fegurðarblundinn því
húðfrumurnar endurnýjast örast á tímabilinu frá miðnætti til fjögur að
morgni. Nóttin er auk þess sá tími sem líkaminn endurnærist best.
Þannig að góður nætusvefn gefur manni ekki aðeins betri líðan á sál
og líkama heldur kemur hann í veg fyrir ótímabær ummerki ellinnar.
Hins vegar er misjafnt hvað hver og einn telur nægan svefn. Sumir
segjast sofa of mikið en aðrir of lítið. Sérfræðingar segja að svefn-
leysi sé hægt að magna upp með því að hafa áhyggjur af því að sofa
ekki. Að liggja andvaka af og til er hundleiðinlegt en það er ekki
ástæða til að hafa sérstakar áhyggjur af því. Líkaminn nær sér
undrafljótt á strik aftur og heimtar að fá svefnskuldina greidda ef svo
má að orði komast. Einnig hafa rannsóknir leitt í Ijós að margir sofa í
raun lengur og betur en þeir vilja halda fram. Sumir þeirra sem tóku
þátt í rannsókninni töldu sig þurfa klukkutíma til þess að detta út af
en í raun leið að meðaltali kortér þar til hroturnar byrjuðu að heyrast
og mælitæki staðfestu að viðkomandi
væri kominn inn í draumalandið.
Besta ráðið við svefnleysi? Ekki
vera andvaka yfir þvi!!
íð tn ----------------
, detta
ut af i huellí
Matur og drykkur
Það er hreint ekki sama hvað
við látum ofan í okkur ef við
erum viðkvæm fyrir
svefnleysi. Það er ráð
að borða heilsu-
samlegt fæði á
kvöldin, t.d. salat
sem inniheldur
náttúruleg
róandi
efni. Stór
skammt-
ur af sal-
ati með
jurtabland-
aðri salatsósu
ætti að róa taugarn-
ar fyrir svefninn (svo fremi sem fólk
sleppi tei og kaffi). Gamalt húsráð var
^að
f drekka
flóaða
mjólk fyrir
svefn. Nú hefur
verið sannað að það er
alls ekki galin
hugmynd því í mjólk
er efni sem heitir
tryptoph-
an. Efni þetta er amínósýra sem hef-
ur áhrif á efnafræði serótóníns.
Önnur matvæli sem
innihalda
J
\
/
tryptophan
g eru bananar, túnfiskur,
kalkúni, egg og jógúrt.
Olíur, jurtir og nudd
llmolíur hafa mjög róandi áhrif og
þá sérstaklega olíur sem innihalda
kamillu, lofnarblóm og salvíu. Smá
skammtur í heitt baðvatn eða létt
nudd með ilmolíu hefur róandi
áhrif. Jurtir hafa löngum verið
notaðar til að ná góðri hvíld.
Drykkir blandaðir jurtum eru
slakandi og sömu áhrifum er
r hægt að ná með því að setja poka
með jurtum við höfðalagið. Prófið
kamillu, garðabrúðu (valerian),
hrokkinmyntu (spearmint) eða lofnar-
blóm (lavender).
Fótanudd hefur góð áhrif á lík-
“■ ama og sál. Mælt er með því að