Vikan


Vikan - 26.10.1999, Page 19

Vikan - 26.10.1999, Page 19
de Cuba er sögð vera fæð- ingarstaður byltingarinnar. Þar er hægt að komast í snertingu við hina kúbversku þjóðarsál. Hellar Havana stendur saman um að taka vel á móti ferðamönnum og sýna þeim gestrisni, velvild og vináttu. Höfuðborgin er sannköll- uð ævintýraborg með langa og merka sögu að baki. Minjar frá liðnum öldum eru á hverju horni. Borgin er vægast sagt heillandi, en þar mætir nútíðin fortíðinni á einkar töfrandi hátt. Það er auðvelt að skoða borgina á eigin vegum, hvort heldur sem er á reiðhjóli eða skell- inöðru, en Samvinnuferðir- Landsýn býður ferðamönn- um upp á skoðunarferðir um eyna og þar á meðal höf- uðborgina, þar sem fólki gefst t.d. kostur á að heim- sækja vindlaverksmiðju og sjá hvernig hinir frægu Havanavindlar eru gerðir. I hinu litla fiskiþorpi Matanzas er auðvelt að fá innsýn í líf íbúanna á Kúbu. I nágrenni Matanzas eru hinir frægu Bella Mar hellar sem enginn má missa af. Sigling meðfram ströndinni gleymist aldrei. Hægt er að fara í sigl- ingu á tví- bytnunni "Jolly Rogers", en þar ríkir söngur, grín og gleði auk þess sem matur- inn er frá- bær. Santiago de Cuba Hötelin Hún er á suðausturströnd eyjarinnar og er önnur stærsta borg Kúbu. Santiago Hótel Samvinnuferða- Landsýnar standa steinsnar hvort frá öðru við Varader- oströndina, sem er vin- sælasta og að marga mati fegursta strönd Kúbu. A Hotel Sol Palmeras **** eru þrír veitingastað- ir og boðið er upp á skemmtidagskrá á hverju kvöldi. Tvær sundlaugar eru í stórum og fallegum sundiaugargarðinum og bar og litlar verslanir eru á neðstu hæð hótelsins. á Hotel Melia Varadero***** eru fjórir veitingastaðir, verslanir, bar, líkamsræktarsalur, snyrti- stofa, nudd- og hárgreiðslu- stofa. Þar er einnig boðið upp á fjölbreytta skemmti- dagskrá á hverju kvöldi og þar eru tvær sundlaugar ásamt barnasundlaug. í hverju herbergi er minibar. Á báðum hótelunum eru loftkæld herbergi með baði, svölum, síma, útvarpi, gervi-1 hnattasjónvarpi og öryggis- hólfi. Dansaðu púmbu á Kdbu arlð 20001 Ekki missa af tækifæri til að fara í ógleymanlega aldamótaferð til Kúbu, - OKEYPIS! í næstu sex blöðum munu birtast spurningar sem les- endur eiga að svara, safna saman og senda síðan inn til Vikunnar. Dregið verður úr réttum svörum milli jóla og nýjárs. Góöa skemmtun! ,,, Vikan 19

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.