Vikan - 23.11.1999, Side 2
Texti: Steingerður Steinarsdóttir
Vinir og vandamenn
Erlu Óskar Arnar-
dóttur dást að list-
rænum hæfileikum hennar
og segja hana mikinn lista-
mann. Erna opnaði barna-
fataverslunina Bíum bamba
á dögunum og í stað þess að
fá hönnuð til að innrétta fyr-
ir sig málaði hún freskur á
veggi verslunarhúsnæðisins
og hannaði sjálf innrétting-
arnar. I versluninni er þess
vegna mjög sérstæður andi
og það er eins og að ganga
inn í annan heim að ljúka
þar upp dyrum og stíga inn
af grárri gangstéttinni. Erla
Ósk segist kjósa að láta aðra
dæma um hversu miklir
hæfileikar hennar séu en
hún hafi alltaf haft gaman af
að mála og teikna.
„Þetta er töluvert í fjöl-
skyldunni og systir mín,
Erna Huld, málar mikið;
meðal annars eru til sölu í
búðinni hjá mér handmálað-
ar styttur eftir hana. Eg nýt
þess að vinna við alls konar
sköpun og fékk útrás fyrir
það á veggjum verslunarinn-
ar. Seinna dreymir okkur
systurnar um að fara saman
út í að hanna og hand-
skreyta alls konar barnahús-
gögn. Við erum svolítið
byrjaðar og höfum boðið
upp á leikfangakistur í
gömlum stíl sem við skreyt-
um sjálfar. Gamall maður
sem býr í íbúðum aldraðra
við Vitatorg hefur verið að
smíða dúkkuvöggur, barna-
kolla og þessar kistur. Við
komumst í samband við
hann, fengum hjá honum
kisturnar sem við síðan sjá-
um um að mála. Það virðist
vera mikil eftirspurn eftir
svona gamaldags leikföng-
um og barnahúsgögnum.
Við eigum eftir að þróa og
vinna þessa hugmynd okkar
betur en það tekur alltaf
langan tíma. Ég vona bara
að við getum farið út í þetta
þegar fram líða stundir.
Ég tel það sannarlega ekki
eftir mér að mæta eftirspurn
eftir vörum af þessu tagi því
ég hef alltaf verið svolítill
fortíðardýrkandi. Allt sem
er gamalt eða í gömlum stíl
höfðar mikið til mín. Þannig
eru einnig fötin sem ég sel.
Þetta eru vönduð, klassísk
föt frá Bretlandi sem öll eru
i fínni kantinum, ætluð sem
spariföt, skírnarföt eða eitt-
hvað slíkt. Að því leyti eru
þau öðruvísi en það sem
fæst annars staðar."
Nafnið á búðinni þinni
hljómar vel, Bíum bamba.
Sennilega hafa flestar mæð-
ur einhvern tíma bíað börn-
in sín í svefn.
„Ég var lengi að velta
þessu fyrir mér. Ég vildi að
nafnið hefði gamlan hljóm
eða minnti á einhvern hátt á
liðna tíma. Fyrst ætlaði ég
að kalla hana Einu sinni var
en fannst það of langt og þá
varð Bíum bamba ofan á.11
Systurnar Erla Ósk og
Erna Huld veita viðskipta-
vinum Bíum bamba einnig
þá þjónustu að skreyta
skírnarkerti og skrautskrifa
eitthvað sem ætlað er að
endast lengi og svo teikna
þessar listrænu systur og
mála andlitsmyndir eftir
ljósmyndum.