Vikan


Vikan - 23.11.1999, Blaðsíða 13

Vikan - 23.11.1999, Blaðsíða 13
til kvennanna sem þeir elsk- uðu, ástarljóð sem vekja strauma hjá konum. Hin hliðin á peningnum er sjaldnar til umræðu en þeir kvöddu margir þessar ást- konur ansi kuldalega eftir að þær höfðu svikið þá. Söngur hefur alla tíð verið gæddur töfrum og blóðheitir ítalir og Spánverjar sungu „serenöður" undir glugga konunnar sem þeir vildu heilla. Hrifnæmar unglings- stúlkur (og mæður þeirra) bregðast jákvætt við falleg- um söng þótt lítið fari fyrir því að íslenskir karlmenn reyni að syngja sínum heittelskuðu til heiðurs. Þeir senda þeim frekar skilaboð á útvarpsstöðvunum og láta Elvis, Bjögga Halldórs eða Ragga Bjarna vinna verkið í sínu nafni, enda eru þeir svo einstaklega vel til þess falln- ir. „Are you lonesome tonight?11 Hver vildi ekki sjá þá konu sem gæti staðist karl- mann sem sendir henni kveðju með laginu „Only Fools Rush in", með Elvis eða „Vertu ekki að horfa svona alltaf á mig" með Ragga Bjarna. Karlmenn eru síður en svo ónæmir fyr- ir töfrum raddarinnar. Hver man ekki eftir Marlene Dietrich sem getur fengið hárin til að rísa í hnakkan- um á mörgum karlinum. Is- lendingar hafa á síðari árum eignast sína eigin Marlene en það er Margrét Vil- hjálmsdóttir leikkona. Aug- lýsendur sækjast eftir að fá Margréti til að lesa auglýs- ingar enda hefðu sennilega fáar leikið það eftir henni að gera bráðhallærislega Lu- kex auglýsingu „sexí." Marilyn Monroe gladdi Aðdúiin á Mario Lanza varft til aft hinda vináttiibönd milli tveggja iinglingstiilkna í Astralíu sem leiddu fil þess aft þær myrtii inóftur annarrar þeirra. Þessnni at- Inirfti eru gerft góft skil í niyndinni Heavenly Creafnres. verður sennilega seint sagt að hann hafi hljómþýða rödd en samt hefur hann hrært margt hjarta með söng sínum. Brúneygðar konur eiga til að tárast yfir flutn- John F. Kennedy og fleiri Bandaríkjamenn þegar hún söng með hásri svefnher- bergisrödd „Happy Birth- day Mr. President" og Vikan hefur sannfrétt að íslenskar konur hafi glatt eiginmenn sína með því að syngja af- mælissönginn í Monroe stíi og að sjálfsögðu í viðeigandi klæðnaði. Við slíkar kring- umstæður hittir röddin karl- manninn þar sem hann er veikastur fyrir og flestar konur vita vel hvernig á að beita röddinni. Það er alls ekki sama hvernig þú segir honum frá kjólnum flotta sem þú sást í verslunar- glugga á Laugaveginum, að minnsta kosti ekki ef þig langar til að eignast kjólinn. Og hver ykkar stenst eigin- manninn þegar hann biður um eitthvað og röddin dýpk- ar um áttund og verður und- urblíð? Þeir eru líka til sem líkt og fuglarnir beita röddinni til að laða til sín maka. Sigur- jóna Sverrisdóttir segist hafa dáðst að Kristjáni Jóhanns- syni sem söngvara áður en þau hittust augliti til auglitis og Ragnhildur Gísladóttir sagði frá því í viðtali að hún hefði verið mikill áðdáandi Stuðmanna áður en hún kynntist hljómsveitarmeð- limum þar með töldum eig- inmanni sínum og gekk í hljómsveitina sjálf. Selma Björnsdóttir og Rúnar Freyr Gíslasson sungu sig inn í hjörtu hvors annars í söng- leiknum Grease og Aristot- eles Onassis var svo hug- fanginn af söng Maríu Callas að hann lagði allt í sölurnar til að kynnast henni. Röddin nægði „dívunni" þó ekki þegar á hólm- inn var komið því þegar kona Onassis dó sveik hann þessa ástkonu sína til margra ára og giftist Jackie Kennedy. Sagt var að María hefði aldrei komist yfir sorg- ina sem svikin ollu henni. Sérstæðir töfrar Það er með raddir eins og fólk að sumir eru ekki beint gæddir fegurð en hafa svo sérstæða töfra að aðrir lað- ast óhjákvæmilega að þeim. Varla er hægt að hugsa sér ljótari rödd en söngrödd Bobs Dylans en samt hrifust ótalmargir af tónlist hans og boðskapnum sem hún bar með sér. Dylan sýndi þó og sannaði að hann átti fleira til þegar hann söng „Lay Lady Lay". Megas okkar ís- lendinga lék sama leikinn og þeir Súkkatfélagar hafa hægt og bítandi verið að færa sig á stall. Halldór Laxness hafði ekki aðlaðandi rödd en menn flykktust í hópum til að hlusta á hann lesa úr verkum sínum þegar færi gafst og hljómplata með honum varð geysivinsæl. Helgi Sæmundsson hafði heldur ekki fallega rödd en snjall kveðskapur hans og kímni heillaði alla og engin af vísum hans þótti söm ef hún var ekki kveðin af hon- um sjálfum. Margar fleiri sérstæðar og seiðandi raddir koma upp í hugann, þeirra í meðal rödd Billie Holliday, Ellu Fitzger- ald, Louis Armstrongs og Rod Stewarts. Um Mick Jagger í Rolling Stones ingi hans á „My Browneyed Girl" og konur með hvaða augnlit sem er klökkna yfir „Waiting on a Friend". A því er enginn vafi að röddin er sterkt vopn, gleðigjafi og síðast en ekki síst stórkost- legt hjálpartæki ástarlífsins. Ymlslegt sem sagt Itefur verið um rðddina. Fegursl allra hljóða cr rödd þeirrar konu sem vér unnum. La Bruyére Fagran heyrði ég sönginn frá Niflungaheim. Eg get ekki sofið fyrir hljóðunum þeim. Gamalt viðlag ...hrjúf, loðin, skræk ogjafn- framt kuldaleg kvenmanns- rödd. Jón Spæjó í rödd hennar hljómaði auður. F. Scott Fitzgerald (The Great Gatsby) Horfðu ekki á mig með þess- um raddblæ herra minn. Ur límaritinu Punch
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.