Vikan - 23.11.1999, Blaðsíða 53
Lykillinnað.
falfegu han
Það virðist sem einstaka
konur séu fæddar með
fallegt hár og nái að
halda Huí glansandi og
heilbrigðu allt sitt líf án
mikillar fyrirhafnar. Svo
eru aðrar sem eru sífellt
að beriast við hárið á
sér. Það er of liðað eða
of slétt, of feitt eða of
hurrt. Hinn gullni meðal-
vegur er vandfundinn.
Mataræöiö getur haft áhrif á
hvernig hárið á okkur lítur út.
Ef fólk borðar ekki nægilega
holian mat, sérstaklega ef þaö
fær ekki nóg af E, C, A, og B
vítamíni, kemur það niður á
hárinu.
Líkaminn nýtir fæðuna fyrst og
fremst til að halda starfsemi
innri líffæranna gangandi en
það sem er afgangs fer til að
viðhalda húðinni, hárinu og
nöglunum.
Til að halda hári glansandi og
fallegu þarf líkaminn helst að
innbyrða 1500-1800 hitaein-
ingar á dag og mjög fjölbreytta
fæðu. Mikil vatnsdrykkja getur
líka komið í veg fyrir að hárið
þorni.
Hárþvotturinn skiptir miklu
máli. Varist að nota of heitt
vatn og alls ekki of mikið af
sjampói. Það er misjafnt hve
oft fólk þvær sér um hárið en
þeir sem þvo sér daglega með
sjamþói verða þess fljótt varir
að það fitnar fljótt. Það er
ágætt að minnka sjampónotk-
unina smám saman, t.d. láta 2-
3 daga líða á milli þess sem
sjamþó er notað. Þess á milli
er ágætt að skola það úr volgu
vatni, helst köldu. Sýrustig
sjampós skiptir líka miklu máli
og þeim mun lægra sýrustig,
því betra.
Þeir sem eru með litað hár eða
permanent þurfa að gæta þess
að hárið ofþorni ekki og mælt
er með því að þeir noti hárnær-
ingu. Djúpnæringu er ágætt að
nota einu sinni í mánuði en
hún er próteinríkari en hefð-
bundin hárnæring.
Hamingjusamir morgunhanar
Stuðboltarnir og morgunhanarnir eru að öllu jöfnu hamingjusamari en nattuglurnar. Þetta var niðurstaða
rannsóknar sem gerð var á vegum Háskólans í lowa. Rannsóknin var gerð á 215 einstaklingum, konum
og körlum og þar kom berlega í Ijós að þeir sem væru alltaf hressir og kátir á morgnana væru ham-
ingjusamari einstaklingar en hinir sem sofa framúr. David Watson, sálfræðingurinn sem stjórnaði rann-
sókninni, benti á að þeir sem vöknuðu snemma hefðu meiri reglu á svefni sínum, færu fyrr að sofa sem
gerði fólk skapbetra.
Nú ættu allir fýlupúkarnir að drífa sig snemma í háttinn og sjá hvað gerist!