Vikan - 23.11.1999, Blaðsíða 4
Hillesandi
Kast í
Kringlunni!
'W.....^fkki alls fyrir löngu brá ég mér í
m J Kringluna í þeim göfuga til-
m ' gangi að kaupa gúmmístígvél á
M J son minn. Mér brá hins vegar í
brún þegar ég nálgaðist áfangastaðinn því
bílamergðin var með eindœmum og það
er skemmst frá því að segja að það tók dá-
góða stund að fá bílastœði. Pegar inn var
komið varð mér Ijóst að í gangi var svo-
kallað „Kringlukast" en
það laðar að ótrúlegan
mannfjölda sem á sér
enga ósk heitari en að
geta keypt eitthvað með
smárœðis afslœtti.
A Kringlukastsdögum
breytist musteri versl-
ana í hálfgerðan
skemmtigarð. Það var
engu líkara en ég vœri
stödd í Disneyworld.
Börn voru hlaupandi
um með blöðrur merkt-
ar fyrirtœkjum,
skemmtiatriði voru ífullum gangi á göng-
unum og greinilegt var að foreldrum
barnanna fannst Kringlukastið vera hin
ákjósanlegasta fjölskylduskemmtun. Eg
hefþó ákveðnar og rökstuddar efasemdir
um að börnin séu á sönm skoðun. Troðn-
ingurinn og biðraðirnar minntu einna
helst á að stríðsástand vœri íþann mund
að skella á og nú vœri hver að verða síð-
astur að birgja sig upp afhvers konar vör-
um. Eg tróðst áfram, orðin örvœntingar-
full um að kannski fengi ég ekki stígvél á
barnið. Auk biðraða og œsikennds hama-
gangs í kringum fataslár var varla hœgt að
komast ferða sinna fyrir brynvörðum inn-
kaupakerrum, stútfullum afvarningi og
börnum. Já, börnum. Þessum litlu sak-
leysingjum er gert að taka þátt í œðiskast-
inu og þeim er troðið rétt eins og hverjum
öðrum varningi ofan í innkaupakörfurnar
innan um mjólk, sunnudagslœrið og
bingógallann sem mamma var að kaupa.
Þarna hnipra þau sig saman, oftast grát-
andi og með hor í nös, nœr dauða en lífi
afangist eða hreinum leiðindum. Sumir
foreldrar mœta í Kringluna fullir stolts
beint af fœðingardeildinni og það er vœg-
ast sagt sorglegt að sjá nýfœdd krílin píra
augun í flúorljósunum, örugglega skelf-
ingu lostin yfir hávaðanum og Itinu
spennuþrungna andrúmslofti sem ríkir
oftast í stórum verslanasamstœðum. Svo
ekki sé minnst á smithœttuna sem erfyrir
hendi á slíkum stöðum, en Ijósmœður og
hjúkrunarfræðingar vara fólk við því að
œða afstað með ungbörn á staði þar sem
svo mikill mannfjöldi safnast saman. Það
virðist hins vegar ekki ná til eyrna allra
foreldra.
Eftir mikla fyrirhöfn náði ég loks að
kaupa blessuð gúmmístígvélin og reyndi
sem best ég gat að hraða för minni burt
frá darraðardansinum. Það var langt frá
því að vera hœgttr leikur þvíþað virðist
orðið til siðs að halda eins konar míníætt-
armót á göngum verslanamiðstöðva.
Heilu stórfjölskyldurnar hittast þarna,
ýmist fyrir tilviljun eða afráðnum lutg
enda kannski ekki svo galin hugmynd
þegar salarkynnin kosta ekkert og effólk
erheppið, eru veitingarnar fríar líka.
Smakk afvöfflum, ostatertum eða eðal-
nautakjöti virðist alltafvera vel þegið og
fólk borðar fylli sína á meðan það spjallar
við œttingjana.
Þegar ég kom illa haldin, sveitt og pirruð
út á bílastœðið, var annars konar kast í
gangi en það snerist um að ná bílastœði.
Bílstjórarnir sem sátu fyrir stæðum fengu
kast þegar þeir sáu manneskju koma
gangandi, dinglandi bíllyklum. Þá stigu
þeir spenntir á bensíngjöfina og kitluðu
hana með tilheyrandi hljóðum sem voru
til þess ætluð að reka á eftir manni. Egfór
heim í kasti; hláturskasti.
Eftir svona stressferðir er mjög notalegt
að koma heim og hreiðra um sig með Vik-
una sína. Sem endranœr er Vikan full af
skemmtilegu efni. Hörður Torfason lætur
gamminn geysa í áhugaverðu viðtali, við
erum með umfjöllun um lœvísa refi á
vinnustöðum og kjaftforar mömmur, sem
margir kannast eflaust við, og Guðni bak-
ari er með uppskriftir af hefðbundnum
jólasmákökum. Við skyggnumst líka að-
eins inn í heim klámdrottninganna í
Hollywood og bjóðum upp á glæpasmá-
sögu sem heitir „illa lyktandi lausn ". Sem
sagt; eitthvað fyrir alla!
Njóttu Vikunnar,
Hrund Hauksdóttir
Jóhanna Steingerður Margrét V. Ingunn B. Anna B. Guðmundur
Harðardóttir Steinars- Helgadóttir Sigurjóns- Þorsteins- Ragnar
ritstjóri dóttir biaðamaður dóttir dóttir Steingrímsson
blaðamaður auglýsinga- auglýsinga- Grafískur
* stjóri stjóri hönnuður
Ritstjórar Jóhanna G. Harðardóttir og Hrund
Hauksdóttir vikan@frodi.is Útgefandi Fróði
Seljavegur 2, Sími: 515 5500 Fax: 515 5599
Stjórnar-formaður Magnús Hreggviðsson
Aðalritstjóri Steinar J. Lúðvíksson Simi: 515 5515
Framkvæmdastjóri Halldóra Viktorsdóttir Sími: 515
5512 Blaðamenn: Steingerður Steinarsdóttir og
Margrét V. Helgadóttir. Auglýsingastjórar Anna B.
Þorsteinsdóttir og Ingunn B. Sigurjónsdóttir
Vikanaugl@frodi.is Grafískur hönnuður Guðmundur
Ragnar Steingrímsson Verð í lausasölu 459 kr. Verð
í áskrift ef greitt er með greiðslukorti 344 kr. pr
eintak . Ef greitt er með gíróseðli 389 kr pr. eintak.
Litgreining og myndvinnsla Fróði Unnið í
Prentsmiðjunni Odda hf. Öil réttindi áskilin varðandi
efni og myndir
Áskriftarsími:
515 5555
v ■