Vikan


Vikan - 23.11.1999, Síða 14

Vikan - 23.11.1999, Síða 14
Anne Heche elskar Ellen meira en allt annað Anne Heche var búin að finna hina vandrötuðu sióð í glans- andi Hollywoodheiminum og loksins farin að fá góð hlut- verk. Hún var fyrirmyndarleik- kona á tímabili, lék í hverri kvikmyndinni á fætur annarri sem hlaut metaðsókn og birtist með fallega elskhuga í réttu veislunum. Það hvarflaði ekki að henni að opinberun ástar- sambands hennar við gaman- leikkonuna Ellen DeGeneres myndi breyta starfsframanum en sú varð nú raunin. í dag sit- ur hún pirruð, sár og reið yfir því hvernig annað fólk hefur komið fram við hana af þeirri einföldu ástæðu að hún er lesbía. örgum karlmönn- um finnst erfitt að átta sig á Anne Heche. Hún er ekki dæmigerð lesbíutýpa að þeirra mati. Hún þykir of fín- gerð og allt of kynþokkafull til að geta fallið inn í ímyndina. Samband hennar við gaman- leikkonuna Ellen er eitt umtal- aðasta ástarsambandið í Hollywood hin síðari ár. Anne Heche hafði átt í nokkrum ást- arsamböndum við þekkta leik- ara, var meðal annars unnusta Steve Martin í tvö ár. Hana grunaði ekki hversu miklum umskiptum líf hennar átti eftir að taka á meðan hún bjó sig undir að mæta í enn eina Hollywoodveisluna, í þetta skipti hjá Vanity Fair en þar hitti hún Ellen í fyrsta skipti. Frá þeirri stundu var ekki aftur snúið. Allt í einu fann hún eitt- hvað sérstakt sem hún hafði aldrei upplifað áður. Ástfangin upp fyrir haus ákvað hún að bjóða heiminum birginn og fara ekki í felur með samband sitt við Ellen. Ellen gjörbreytti lífinu „Fjórum dögum eftir að við hittumst, keypti ég gullhring handa Ellen. Tveimur mánuð- um seinna var hún flutt inn til mín. Frá fyrstu stundu vissi ég að hún væri sú rétta. Ég hafði aldrei hrifist af konum fyrr en ég hitti Ellen. Ég var búin að vera með mörgum, ólíkum mönnum en samband mitt við þá var ekkert líkt þessu nýja sambandi mínu. Ellen var miklu varkárari en ég. Hún margspurði mig: Veistu hvað mun gerast þegar fólk fréttir af sambandi okkar? Ertu alveg viss um að þetta sé það sem þú vilt? Ég var handviss, því það gerðist eitthvað innra með mér um leið og við hittumst. Fyrsta nóttin okkar var dásamleg, eftir að hafa upplifað jafn unaðsleg- ar stundir var ég ákveðin í að láta ekkert koma í veg fyrir samband okkar." Hollywoodbrautin hefur löngum verið þyrnum stráð og til að halda ímyndinni þurfa leikarar að fylgja óskráðum reglum. Ein þeirra er að vera gagnkynhneigðir og ekki er verra að þeir skipti reglulega um bólfélaga. Heche hafði aldrei getað ímyndað sér að hún yrði fyrir jafn miklu mót- læti og raun bar vitni þegar samband hennar og Ellenar var komið á hvers manns varir. „Ég skildi ekki hve mikil áhrif það hafði. Þegar ég sagði Ellen að það skipti engu máli hvað annað fólk segði um okk- ur sagði hún: „Anne, þú skilur ekki hvernig fólkið í kringum okkur á eftir að láta." Það var alveg rétt hjá henni, ég gerði mér enga grein fyrir því. Ég vissi ekki að HoIIywoodheimur- inn gerði svona upp á milli fólks. Ef ég væri svört, þá væri ekki hægt að neita mér um hlut- verk, það væri misrétti og ég hefði lagalegan rétt á að fá sömu hlutverk og hvít leikkona. En það er allt í lagi að brjóta á mér af því að ég er samkyn- hneigð. Að upplifa slíkan hlut var ný reynsla fyrir mig." Tökum á kvikmyndinni Volcano var nýlega lokið þar sem Heche lék eitt aðalhlut- verkið á móti Tommy Lee Jo- nes og þegar þær Heche og Ellen mættu á frumsýninguna. „Ég hafði aldrei hrífist af konum fyrr en ég híttí Ellen. hönd í hönd. urðu margir undr- andi. Þær voru margoft spurðar hvað væri í gangi og fjölmiðlar fengu nýtt efni til að fjalla um. Þá fyrst hófust vandræðin fyrir alvöru. Á sama tíma var búið að velja Heche til að leika á móti Harrison Ford í myndinni „Six Days, Seven Nights" en þegar orðrómurinn um nýjasta ástar- sambandið var farinn að berast leikstjórum og framkvæmda- aðilum, var Heche tilkynnt að hún myndi ekki fá hlutverkið ogjafnvel engin hlutverk í framtíðinni. „Ég var að deyja úr ást og vildi segja öllum heiminum hversu heitt ég elskaði Ellen. Héldu þessir menn að ég myndi fórna henni fyrir hlutverk í einni kvikmynd? Aldrei! Þeir vildu að ég steinþegði og færi í felur með sambandið. Hvað er aðfólki?" Dómstóll götunnar Eins og oft vill verða þegar slíkar umræður hefjast, þá hef- ur almenningur ákveðna skoð- un á hlutunum. Heche fékk að heyra það úti á götu að hún ætti ekkert erindi í þessa kvikmynd því þar ættu þau Ford að leika par. Hún gæti ekki leikið slíkt hlutverk þar sem hún elskaði konu, ekki mann! Heche fékk skyndilega bandamann þegar umræðurnar um hlutverkið hennar hófust fyrir alvöru. Harrison Ford, mótleikari hennar, krafðist þess að hún héldi hlutverkinu. Hann sagði einfaldlega: „Hún er fín í hlutverkið". Þá snerist almenn- ingur á sveif með honum og samþykkti hana. „Þegar Ford var búinn að segja að ég væri nógu góð, þá samþykktu aðrir mig. Það er með ólíkindum hve heimskt fólk getur verið. Ef ég væri að leika þriggja barna móður, þá væri ég að leika því ekki er ég móðir í raunveruleikanum. Á sama hátt var ég að leika ást- konu Ford í kvikmyndinni, ég er það ekki í alvörunni. I þess- um heimi snýst allt um að leika og því skil ég ekki af hverju kynhneigð mín skiptir svona miklu máli." Kvikmyndin varð að veru- leika og þau Ford og Heche voru í aðalhlutverkum. Að- sóknin var góð og þau fengu bæði góða dóma. „Ég vona að kvikmyndin hafi opnað augu fólksins í Hollywood fyrir því að þetta snýst ekki um hjá hverjum maður sefur, heldur hversu vel maður getur leikið" Heche vildi gjarnan að þær Ellen vinni meira saman í fram- tíðinni. Hana langar mest að skrifa handrit að kvikmynd sem Ellen myndi leika í. „Kosturinn við það að vera búin að opinbera sambandið er það að þá losna ég við að leika fyrir alla þá sem eru uppfullir af fordómum og mig langar ekki- ert að vinna með. Þeir hringja alveg áreiðanlega ekki í mig. Hinir, sem ég get hugsað mér að vinna með, eru ennþá að bjóða mér hlutverk." Anne Heche og Elien DeGeneres leyna ekki ást sinni hvor á annarri, alveg sama hvar þær eru staddar. Samantekt: Margrét V. Helgadóttir

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.