Vikan


Vikan - 23.11.1999, Side 25

Vikan - 23.11.1999, Side 25
 allir þessir runnar voru allt um kring? Á laugardagsmorgninum höfðu ekki verið nein dýraspor á húddinu. Hann hefði sjálfsagt getað hoppað inn í bílinn, en skúnkar eru nú ekki þekktir fyrir að vera hástökkvarar. Lyktin minnkaði þegar ég ók eftir veginum en þegar ég lagði bíinum við lögreglustöðina blossaði hún upp aftur. En það var líka annað sem ég gerði mér grein fyrir. Frá upphafi hafði ég flúið lyktina í stað þess að reyna að komast að rótum hennar. Ég ákvað að sitja kyrr, þefa og líta í kringum mig. Og allt í einu uppgötvaði ég hvaða lykt þetta var. Fiskur! Sardínurn- ar! En er einhver lykt af niður- soðnum sardínum? Já, það er lykt af niðursoðnum sardínum. Og nú lá Greg aldeilis í því. Ég hljóp inn á lögreglustöðina og hrópaði: Ég get sannað að það var Greg sem gerði það! Komiði með mér! Mack kom með mér. Það gerðu einnig nokkrir einkennisklæddir lög- reglumenn og auðvitað Greg: Herra alltof góður og kurteis til þess að drepa. Herra hávaxinn. Hæðin var einmitt aðalatriðið. Ég hef ekki hreyft við neinu, sagði ég og gekk með þeim að illa lyktandi bílnum. Ég hljóp bara inn til þess að sækja ykk- ur. Nú getið þið séð þetta sjálfir. Þeir héldu fyrir nefið og skildu hvorki upp né niður. Mack, ekki spyrja mig hvers vegna, en ég er með sardínu- dós í bílnum á bak við sætið mitt. Ég opnaði dyrnar, stakk hendinni undir bílstjórasætið og náði í dósina. Eins og ég hafði getið mér til um var stórt gat á henni. Skilur þú nú hvað ég á við? Hér er ástæða þess að bíl- inn hefur angað frá því á laug- fingraför og það fannst mér segja sína sögu. Ef blæjan hef- ur verið hreyfð í gærkvöldi hljóta að vera fingraför á henni nema einhver hafi þurrkað þau í burtu, ekki satt? Fingraför eru sönnunargögn, skortur á þeim eru ekki sönnun- argögn, sagði Mack. Og hingað til höfum við bara fundið þín eigin fingraför. Hann tók fyrir nefið. Mikið er undarleg lykt hérna, sagði hann. Já, ég tók eftir því þegar ég var að keyra heim eftir skokkið. Maður gæti haldið að bílinn skammaðist sín fyrir að vera flæktur í dauða vesalings kon- unnar og gæfi frá sér þessa hræðilegu lykt til þess að láta í Ijós skömm sína. Ef þetta er þá ekki bara einfaldlega kattar- hlandslykt, flýtti ég mér að bæta við þegar ég sá svipinn á hon- um. Þetta er sterkari lykt en svo, sagði Mack. Ég þefaði út í loftið. Lyktin var orðin bæði sterkari og óþægilegri. Kannski var þetta skúnkur, sagði ég. Það býr einn undir svölunum mínum og fer á stjá á nóttinni. Kannski, sagði hann. Ég þekki ekki lyktina af skúnks- hlandi. Ég var ekki handtekin en mér var bannað að fara úr bænum. Ég ráðlegg þér að reyna að hafa uppi á einhverjum sem sá þig úti að hlaupa í gærkvöldi, sagði Mack. Hefur hann fjarvistarsönnun? Já. Ég varði því sem eftir var helgarinnar á hlaupastígnum án þess að sjá eitt einasta kunnug- legt andlit frá föstudeginum. Ég var langt niðri. Aðallega vegna þess að hafa eytt tímanum í drullusokk eins og Greg. Hafði ég alltaf verið svona slæmur mannþekkjari? Mér iiði auðvitað betur um leið og hann yrði handtekinn, en hvað ef hann yrði það ekki? Við áttum í bar- áttu við óhemjuvarkáran ná- unga sem hafði ekki aðeins þurrkað fingraför af stýrinu, lyklinum, gírstönginni, dyrunum og sæt- unum. Hann hafði einnig þurrk- að þau af blæjunni! Hann sagði lögreglunni að ég væri skúrkur af verstu gerð. Slagorðið á númeraplötunum þýddi ekki að ég vildi frekar deyja en vera óheiðarleg. Nei, þvert á móti væri ég fær um að drepa alla þá sem stæðu í vegi fyrir mér. Þar fyrir utan væri ég óþolandi afbrýðisöm og hefði oft elt hann þegar hann færi heim til Janet. Og svo fengi ég óstjórnleg reiðiköst. Sagði hann. Ég er ekki endilega að segja að ég trúi honum, sagði Mack þegar hann sagði mér frá þessu á sunnudeginum. En hann er jú virtur maður en þú hefur orð á þér fyrir að vera, hvernig eigum við að orða það, kannski svolít- ið villt. Það vona ég svo sannarlega! Ég get ekki hugsað þá hugsun tii enda að á legsteininum mín- um eigi eftir að standa: Hún hafði gott orð á sér. Hvað viltu þá að standi á honum? Hún kunni að meta hrað- skreiða bíla og góða menn, hugsaði ég, en sagði það ekki upphátt. Það átti heldur ekki við lengur. Þá hefði þurft að strika út góða og breyta hraðskreiða í angandi. Eftir vinnu á mánudeginum var ég beðin að koma á lög- reglustöðina til frekari yfir- heyrslu ásamt Greg. Þegar ég nálgaðist bílinn fann ég lyktina langar leiðir. Um leið og ég sett- ist undir stýri hugsaði ég sem svo að ég yrði að útvega mér gasgrímu. Hvers vegna varð lyktin stöðugt verri? Og hvers vegna ætti skúnkur að pissa f bíiinn þegar öll þessi tré og ardaginn. Með hverjum sólar- deginum hefur lyktin orðið verri og verri. Hvernig haldið þið að þetta gat hafi komið á dósina, drengir mínir? Hann varð að færa sætið aft- ur, sagði Mack. Hann er með langa fótleggi. Og járnið á sæt- inu reif dósina upp. Þegar hann færði sætið fram, í sömu stöðu og það var áður, varð dósin eftir galopin. Rétt til getið, sagði ég. Og ég skal veðja að hann hefur verið svo upptekinn af því að þurrka fingraförin af blæjunni að hann hefur gleymt því að þurrka af sveifinni undir sætinu. Greg fölnaði upp og það leit út fyrir að það væri að líða yfir hann. Hann streyttist ekki á móti þegar hann var leiddur í burtu. Fingrafarasérfræðingurinn rannsakaði sveifina undir sæt- inu. Einhver setti sardínudósina í plastpoka. Mig hryllti við til- hugsuninni um ástandið á inni- haldinu þegar málið yrði tekið fyrir. Kvörn réttlætisins malar hægt og rólega eins og við öll vitum. Sönnunargagn Afæri létt með það að tæma réttarsalinn. Allt í einu varð ég gripin kvíða. Kannski dósin væri sönnunar- gagn B og bíllinn minn sönnun- argagn A. Þú hefur þó ekki hugsað þér að leggja hald á bílinn minn? spurði ég varlega. Ég skal athuga hvað óg get gert, sagði Mack. Kannski er nóg að þú lofir að fara ekki út úr bænum. í staðinn verður þú kannski svo góð að lofa mér því að hætta að skilja lyklana eftir í bílnum? Glöð í sinni ók ég heim á leið og gat varla beðið þess að fara út að skokka. Það var fallegur kóngulóarvefur undir mæla- borðinu í horninu við gluggann. Skyidi Mack vera skokkari? Lífið var yndislegt. Það var lykt- in líka. Vikan

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.