Vikan


Vikan - 23.11.1999, Blaðsíða 27

Vikan - 23.11.1999, Blaðsíða 27
grét eins og barn í marga klukkutíma og reyndi mörgum sinnum að hringja aftur í hann en það svaraði aldrei. Hann hafði greini- lega tekið símann úr sambandi. Ég held að ég hafi verið á barmi tauga- áfalls þegar ég fór heim til mömmu næsta morgun. Ég var útgrátin og skjálfandi. Mamma var algjör hetja og tók mig í fangið eins og þegar ég var lítil stelpa og hugg- aði mig. Hún hjálp- aði mér við að ná áttum og jafna mig og fékk mig til að sjá framtíðina bjart- ari augum. Systur mínar voru mér ómetanlegur stuðn- ingur og vinkonur mínar líka. En ég sé samt á svip sumra að þeim finnst ég hafa hagað mér á óábyrgan hátt og ég geti nú bara sopið seyðið af því. Þetta fólk hefur líka rétt fyrir sér. Ég, sem telst veraldarvön og vel menntuð kona, lét blindast af ást við frum- stæðar aðstæður og hélt að ég gæti átt hamingjusama framtíð með nær ókunnum manni sem bjó í kofa í hálf- gerðum óbyggðum. En, það er eitt sem ég sé ekki eftir, það er lífið sem kviknaði við þessar kring- umstæður og ég ber nú und- ir belti. Ég mun aldrei sjá eftir því. Ég finn hreyfingar þess og ég strýk mér um magann og hvísia ástarorð til litla barnsins míns. Ég er Hann sneri sér að mér mjög illilegur á svip og hreytti út úr sér: „Hvernig vogar þú þér að gagnrýna lífstíl minn við ókunnuga?" Hann virtist fullur af stjórnlausri bræði aftur farin að vinna og lífið gengur bara ágætlega. Ég geri mitt besta til að njóta meðgöngunnar því ég hef lært að það er ekkert öruggt eða sjálfgefið í þessu lífi. Lesandi segir Hrund Hauksdóttur sögu sína Vilt þú deila sögu þinni meö okkur? Er eitthvaö sem hefur haft mikil áhrif á þig, jafnvel breytt lifi þínu? Þér er velkomið að skrifa eða hringja til okkar. Við gætum fyllstu nafnleyndar. við lækninn hafa verið á skynsamlegum nótum og að ýmislegt hefði komið í ljós sem við yrðum að skoða betur. En þegar við vorum að fara frá læknastofunni, sneri Mick sér að mér mjög illilegur á svipinn og hreytti út úr sér: „Hvernig vogar þú þér að gagnrýna lífstíl minn og heimili mitt við ókunna?" Hann virtist fullur af stjórn- lausri bræði. Viðbrögð hans komu mér mjög á óvart því þetta var hlið á honum sem ég hafði ekki kynnst áður. I raun þekkti ég Mick ekki mikið eftir aðeins mánaðar- kynni en þar sem við höfð- um búið saman við frum- stæðar aðstæður í full- kominni sátt og samlyndi, þá hélt ég að ákveðin reynsla væri komin á sam- band okkar. Á meðan á hinni löngu keyrslu heim frá lækninum stóð, reyndi ég að útskýra fyrir Mick að ég hefði alls ekki verið að gagnrýna hann á nokkurn hátt en einungis borið hag hins ófædda barns okkar fyrir brjósti. Það varð engu tauti komið við hann. Hann var sárlega móðgaður og fannst sér hafa verið mis- boðið. Aðstæður löguðust lítið á næstu vikum sem í hönd fóru. Ég þjáðist mjög af morgunógleði en Mick virti mig varla viðlits. Að lokum komu vinkona mín og mað- urinn hennar til okkar til þess að reyna að koma á einhvers konar sáttum. Þau höfðu fylgst með þróun mála og heimsótt okkur nokkrum sinnum og voru orðin áhyggjufull af líkam- legri og andlegri heilsu minni. Þau náðu að sann- færa Mick um að eitthvað yrði til bragðs að taka. Eftir miklar umræður og ýmsar bollaleggingar varð niður- staðan sú að við Mick urð- um sammála um að ég myndi fljúga heim til íslands þar sem ég ætti að sjálf- sögðu fullan rétt á tilheyr- andi læknisþjónustu og reglulegri mæðraskoðun. Hann ætlaði síðan að koma til mín þegar fæðingin nálg- aðist og vera viðstaddur fæðinguna sjálfa. Við ætluð- um síðan saman til Ástralíu þegar barnið væri orðið tveggja mánaða og aðeins farið að braggast. Kveðjustundin á flugvell- inum var sorgleg og ég átti mjög bágt með að halda aft- ur tárunum. Ég hataði til- hugsunina um að verða að fara frá Mick en ég var jafn- framt fullkomlega meðvituð um það að ég yrði að bera hag barnsins fyrir brjósti og fara heinr til íslands. Mér er það minnisstætt þegar ég gekk frá honum á flugvellin- um eftir faðmlög og kossa og hann veifaði mér bros- andi. Á barmi taugaáfalls Ég var búin að vera heima á íslandi í tvær vikur þegar ég hringdi til Micks og spurði hvort hann væri bú- inn að skipuleggja báta- reksturinn þannig að hann ætti auðvelt með að koma til íslands þegar barnið fædd- ist. Það kom löng og köld þögn í kjölfarið af þessari spurningu. Hérna megin á hnettinum sat ég með önd- ina í hálsinum og hjartað barðist um í brjósti mér. Svo sagði hann: „Nei. Ég ætla ekki að koma. Reyndu að fyrirgefa mér en ég get þetta ekki. Vertu sæl." Svo lagði hann bara símann á. Þetta var um miðja nótt og mér hefur aldrei á ævinni fundist ég vera eins einmana. Ég llciiiiilisrungiö cr: Vikun - „LiTsrcvnsliisu^u**, Scljavegur 2, 101 Kcykjuvík, Netfang: vikan@frudi.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.