Vikan - 23.11.1999, Qupperneq 54
Hverju svarar læknirinn ?
Kæri Þorsteinn læknir,
Þakka þér góða pistla sem ég
les alltaf. Kannski er það vegna
þess að ég er áhyggjufull út af
heilsu minni. Ég á nefnilega
vanda til að fá óregluleg hjart-
sláttarköst upp úr þurru. Mér
finnst eins og ég sé að kafna
(einhvers konar öndunarteppa í
leiðinni) og hjartað tekur nokk-
ur þung og hröð aukaslög í kjöl-
farið. Þetta gerist helst á kvöld-
in en það hefur líka komið fyrir
um miðjan daginn. Ég hef farið
til heimilislæknisins míns út af
þessu. Hann er búin að skoða
mig og senda mig í hjartalínurit
en hann segir að það sé ekkert
að mér. Ég trúi því ekki að ég
sé svona móðursjúk, ég er bara
ósköp venjuleg kona sem hef
áhyggjur af heilsu minni. Ég
hræðist þetta.
Hvað á ég að
gera?
B.J.
Sæi B.J.
Nei, þú ert alls
ekki móðursjúk.
En það er líka al-
veg rétt að
læknavísindin
finna oftast ekk-
ert í svona tilvik-
um eins og hjá
þér. Hjartsláttar-
og andþyngsla-
köst eins og þú
ert að lýsa eru mjög algeng, sér-
staklega hjá ungum konum. Oft-
ast hefur þetta með einhvers
konar streitu að gera og auðvit-
að búum við öll við streitu. Það
fá ekki allir hjartslátt eða and-
þyngsli við streitu, heldur fær
fólk vandamál eins og vöðva-
bólgu, höfuðverk, migreni, háan
blóðþrýsting, magaverk, háar
magasýrur, magasár, ristil-
krampa, niðurgang, útbrot,
svefnvanda, kvíðaköst, skap-
brestaköst, grátköst, fullkomn-
unaráráttu, drykkjuáráttu og
fleira. Við erum bara svona
gerð. Ef við tökum eitthvað inn
á okkur fær það útrás einhvers
staðar. Hvers vegna þú færð
hjartslátt, vöðvabólgu eða ristil-
krampa er ekki vitað, stundum
fær fólk þetta allt og jafnvel
fleira í einu. Þetta er ekki beint
uppörvandi upptalning.
Mikilvægasta meðferðin er
að hugsa betur um sjálfan sig og
taka lífinu af meiri yfirvegun og
ró. Það hjálpar ekkert að æsa
sig upp, hafa áhyggjur, kvíða
framtíðinni eða hafa áhyggjur
af þvf sem liðið er.
Það er hollt að lifa í nútíman-
um, í „núinu"og vera alltaf
bjartsýnn á góða og bjarta
framtíð á hverju sem gengur.
Teldu upp allt sem er jákvætt í
þtnu lífi og lifðu fyrir það og ef
þú finnur ekki nóg af því búðu
þér þá til jákvætt líf.
Maður er jafnvel fljótari að
gera hlutina ef maður spennir
sig ekki upp, heldur gerir hlut-
ina af ró og yfirvegun. Þú getur
valið að gera þér lífið erfitt, en
þú getur líka valið að gera lítið
úr erfiðleikunum og taka lífinu
létt. Þetta virðist auðveldara
svona á blaði en í raunveruleik-
anum, en þetta er allt spurning
um afstöðu, um val, - val að
gera lífið létt.
Þegar við læknar ætlum að
meðhöndla hjartsláttartruflanir
og andateppu, sérstaklega
vegna þrálátra kvartana, er yf-
irleitt gert hjartalínurit eins og í
þínu tiiviki en í mörgum tilvik-
um er líka notað sólarhrings-
hjartarit, svokallað Holter.
Yfirleitt eru niðurstöðurnar
eðlilegar eða algjörlega hættu-
laus hjartsláttaróregla kemur
fram. Þú verður að athuga að
við getum öll verið með hjart-
sláttaróreglu sem í flestum til-
vikum er hættulaus. Sumir
verða aldrei varir við neitt með-
an aðrir finna alltaf fyrir
minnstu óreglu. Rétt er að
framkvæma blóðprufu og skoða
blóðmagn, járnbúskap líkamans
og skjaldkirtilshormón. Al-
menn skoðun, hjartahlustun og
blóðþrýstingsmæling er líka
mikilvæg. Yfirleitt er
þetta allt eðlilegt. Hægt er
að bjóða upp á lyf og er
nokkuð umhugsunarvert að í
tilvikum eins og hjá þér, eru
hjartalyf sem yfirleitt eru not-
uð, jafngild róandi lyfjum í
verkun. Með öðrum orðum ár-
angur er sá sami af róandi lyfi
og hjartalyfi sem hlýtur að segja
þér eitthvað um orsökina að
baki vandamálinu.
Ég mæli með því að þú reynir
aðra hluti áður en þú ferð á lyf.
Þú ættir t.d. að forðast allt
örvandi sem þú tekur inn eða
neytir. Ég er að tala um að
hætta að drekka koffíndrykki,
t.d. kaffi, kók og te. Athugaðu
að reynandi er að fara yfir í
koffínlausa drykki. Vendu þig
samt hægt og rólega af koffíni
til að fá síður fráhvarfsein-
kenni, þ.e. óróleika
og höfuðverk. Þá
er gott að borða
ekki sterkan mat.
Sumir þola ekki að
drekka heita
drykki. Ég mæli
líka með því að þú
fylgist með því
hvaða mat og
drykk þú þolir
ekki. Afengi gerir
yfirleitt illt verra
og stundum hleypir
það öllu í bál og
brand. Þær eru
margar ungu konurnar sem
hafa komið á slysadeild og leit-
að læknis við hjartsláttar- og
öndunarteppuköstum eftir að
hafa fengið sér í glas á föstu-
dagskvöldi. Streitan leitar út
þegar þær fara að slaka á yfir
glasi af áfengi. Aðferðin er yfir-
leitt að fara með þær afsíðis og
tala róandi til þeirra og láta
anda í bréfpoka og drekka ekki
meir. Ef þetta dugar ekki er rétt
að hringja í lækni eða leita á
læknavaktina.
Það hefur mjög góð áhrif við
þessum hjartsláttartruflunum
að stunda jóga, hlusta á róandi
tónlist og fara að sofa nógu
snemma til að vera útsofin að
morgni. Og síðast en ekki síst
að hætta að hafa áhyggjur.
Gangi þér vel
Þorsteinn
Kæri læknir.
Ég er ein af þeim sem er
alltaf í vandræðum með húðina
á mér á veturna. Húðin í
andlitinu verður hörð og rauð
þegar byrjar að kólna og mig
klæjar þegar ég kem inn úr
kuldanum. Ég er búin að reyna
margt og helst líður mér vel
þegar ég nota hydrocortison en
ég er svolítið hrædd við það, því
það stendur á túpunni að ef
maður noti það lengi geti það
þynnt húðina. Venjuleg dag-
krem (snyrtivörur) virðast ekk-
ert duga við þessu. Áttu ein-
hver ráð?
Ninna
Sæl Ninna
Þetta er oftast kallað kulda-
exem og það er alveg rétt hjá
þér að hydrocortison virkar vel
á þetta. Yfirleitt er mælt með
því að klæða vel af sér kulda,
nota feita áburði eins og vaselín
eða júgursmyrsl, (e.t.v. ekki
spennandi í andlit) en virkar yf-
irleitt. Húðþynning af völdum
hydrocortison er vissulega
möguleiki en þá er fólk að nota
þetta í miklu magni oft á dag.
Flestum dugar að nota það einu
sinni á dag. Þegar hydrocorti-
son er notað á að bera það á í
mjög þunnu lagi og nudda vel
inn í húðina. Mundu að strjúka
má burtu með klút það sem
ekki gengur inn í húðina á stutt-
um tíma og það er samt nóg eft-
ir til að gefa fulla verkun. Þú
þarft að finna eitthvað jafnvægi
milli notkunar á hydrocortisoni
og vandamálsins. Suma daga
ertu fín, aðra daga allt í lagi og
enn aðra slæm. Reyndu að
þreifa þig áfram með notkun
sem hentar þér.
Gangi þér vel
Þorsteinn
Spurningar má
senda til „Hverju
svarar læknirinn?“
Vikan, Seljavegi 2,
101 Reykjavík.
Farið er með öll
bréf sem
trúnaðarmál og
þau birt undir
dulnefni.
54 Vikan
Netfang: vikan@frodi.is