Vikan - 30.11.1999, Side 18
Texti: Hrund Hauksdóttir
Uíð hlustuðum af andakt á
hryllíngssögur hans og
vorum stjörf af óhug en
jafnframt heilluð af ein-
stakri frásagnargáfu hans.
Á bessum árum var Steven
King fúlskeggjaður og
gekk í snjáðum gallabux-
um. Hann var hessi týpíski
ameríski „hiooa'kennarí
18 Vikan
í heljargreipum hrollvekjnmeistarans
tephen Edwin King er fæddur 21.
september 1947 í Portland, Maine.
Foreldrar hans ættleiddu ung-
barn tveimur árum áöur
en Stephen fæddist og
fleiri barna varö þeim
hjónum ekki auðið.
Kingfjölskyldan var
ósköp venjuleg fremur
fátækt fólk, þar til kvöld
eitt er faðirinn skrapp út eftir
sígarettupakka og kom aldrei aftur.
Það hefur ekki spurst til hans síðan.
Ruth Pillsbury King, móðir drengj-
anna tveggja, sá því ein um heimil-
ishaldið upp frá því og barðist í
bökkum við að láta enda ná saman.
Stephen ólst upp í mikilli fátækt.
Aðeins 12 ára gamall fór hann að
sýsla við skriftir en það var árið
1959 þegar þeir bræðurnir ákváðu
að gefa út bæjarblað upp á eigin
spýtur. Stephen gekk í gagnfræða-
skólann Lisbon High í Maine og á
þeim tíma gaf hann út safn 18
smásagna, í félagi við besta vin
sinn. Hann fór síðan í háskóla og
útskrifaðist frá Háskólanum í Maine
árið 1970 með BA próf í ensku og
með kennsluréttindi sem gerðu
honum kleift að kenna við gagn-
fræðaskóla. Hann var blankur um
þetta leyti sem svo oft áður og vann
m.a. fyrir sér sem afgreiðslumaður
á bensínstöð. Hann hélt þó
ótrauður áfram að skrifa og
fór að fá greitt fyrir smásögur
sem birtust í ýmsum tímaritum.
Ekki leið á löngu þar til hann
komst á samning hjá bókaút-
gáfufyrirtæki og ferill hans tók
stefnuna beint á toppinn. Aðals-
merki Stephen Kings eru hrollvekj-
ur sem oft á tíðum gerast í fá-
mennu og strjálbýlu umhverfi, þar
sem einkennilegar persónur koma
við sögu. Frásagnarmáti hans er
spennuþrunginn og lesandinn veit
aldrei hvar eða hvernig hin ímynd-
aða martröð mun enda. Bækur
hryllingsmeistarans hafa verið
þýddar á 33 tungumál og margar
kvikmyndir hafa verið gerðar sem
byggðar eru á þeim. Stephen King
leikur gjarnan lítil hlutverk í mynd-
unum. Hann lékt.d. prestinn í Pet
Sematary og lyfjafræðinginn í
Thinner.
íslendingur í kennslu-
stundum hjá Stephen
King
Jens Pétur Jensen, hagfræðingur
á Þjóðhagsstofnun, var skiptinemi í
Lake Region High School í Maine á
árunum 1976-77, en Stephen King
var einn af stundakennurum skól-
ans og hann kenndi Jens nokkrum
sinnum. ÞegarVikan falaðist eftir
viðtali við Jens færðist hann hlæg-
andi undan og fannst ekki mikið til
þess koma að hafa setið kennslu-
stundir hjá hrollvekjumeistaranum:
,, Stephen King var nú ekki orðinn
heimsfrægur rithöfundur á þessum
tíma þrátt fyrir að hann væri nokk-
uð þekktur á þessum slóðum fyrir
spennusögur sínar. Hann leysti
stundum
ensku-
kennarann minn af en það var frek-
ar óspennandi kona og ég man að
okkur krökkunum í bekknum fannst
mjög gaman þegar hann kenndi
okkur. Kennslustundirnar hjá
Stephen King voru með mjög
óhefðbundnu sniði og því skemmti-
leg tilbreyting. Hann átti það til að
segja okkur spennandi sögur sem
hann virtist spinna upp á staðnum
og það er óhætt að segja að þegar
Stephen King, í eigin persónu, segir
hrollvekjusögur, þá gleymir maður
stund og stað. Það var mjög greini-
legt að þarna var á ferðinni hæfi-
leikaríkur sögumaður með ótrúlega
víðfemt hugmyndaflug! Við hlustuð-
um af andakt á hryllingssögur hans
og vorum stjörf af óhug en jafn-
framt heilluð af einstakri frásagnar-
gáfu hans. Á þessum árum var
Stephen King fúlskeggjaður og
gekk í snjáðum gallabuxum. Hann
var þessi týpíski ameríski „hippa"
kennari. Ég hef lesið nokkrar af
bókum hans eftir að hann varð
heimsfrægur rithöfundur og mér
finnst gaman að sjá hvernig um-
hverfið sem hann ólst upp við end-
urspeglast í sögunum hans. Flestar
þeirra gerast í smábæjum eða í
eyðilegu umhverfi þar sem langt er
á milli húsa og mjög snjóþungt.
Einkennilegar persónur, sem oft á
tíðum lifa við sára fátækt og hafa
afar einfaldan lífsstíl, eru ein-
kennandi fyrir sög-
urnar hans. Enda
leitar Stephen King
fanga á heimaslóðir
sínar í Maine."
Árás og ör-
vænting
Stephen King er einn
af þeim rithöfundum sem prýða
bókamarkaðinn um þessar mundir
því gefnar hafa verið út á íslensku
bækurnar Örvænting og Árásin. Ric-|
hard Bachman er titlaður höfundur
bókarinnar Árásin en nafn Stephen
Kings er í sviga á bókarkápunni.
Stephen King segir að rithöfundur-
inn Richard Bachman hafi endað
lífdaga sína vegna krabbameins
árið 1985 og ekkja hans hafi fundið j
handritið að bókinni Árásin í skrif-
borðsskúffu hans. En hver tekur
Stephen King trúanlegan? Málinu
er nefnilega þannig háttað að hann
og Richard Bachman eru einn og
sami maðurinn ... Árásin gerist á
síðsumarkvöldi í smábæ í Ohio þar
sem lífið gengur sinn vanagang í
friðsælu umhverfi. En paradís milli-
stéttarfólksins er umturnað áður en |
dagurinn er liðinn því skelfilegir at-
burðir eiga sér stað. Heimili og líf
fólksins í smábænum er ein rjúk-
andi rúst. Hvers vegna? Örvænting
er heiti hinnar bókarinnar sem var
að koma út. Umhverfi sögunnar er
bær í miðri Nevadaeyðimörkinni
sem ber hið nöturlega nafn Örvænt-|
ing. Á árum áður var bærinn blóm-
strandi námubær en í dag á enginn |
erindi þangað. Eða hvað? Fólk sem
á leið um þjóðveg 50 kemst ekki
hjá því að koma við á staðnum, en
hann býr yfir hræðilegum leyndar-
dómum og þeir sem drepa þar nið-
ur fæti, verða að berjast fyrir lífi
sínu. Hrollvekjusögur spennusagna-|
meistarans Stephens King eiga ör-
ugglega eftir að verða mörgum
hugleiknar nú þegar dimmur, ís-
lenskur vetur gengur í garð, enda
tilvalin lesning þegar hríðin lemur
gluggana og myrkrið umlykur
landsmenn.